Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 4

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 4
r i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i r i i i i i i L. A EVUKLÆÐUM EINUM I UDEN EN TR/EVL | Hin margumrædda og æsidjarfa metsölubólí á Norð- urlöndum, eftir norska rithöfundinn Jens Björneboe. er nú fáanleg í íslenzkri þýðingu. Bókin, sem er bönnuð í heimalandi höfundar, lýsir flestum stigum kynlýfsreynslu ungrar stúlku í mörgum stórborgum meginlandsins á frjálslegri, opinskárri og teprulaus- ari hátt en tíðkast, og hefur nú þegar verið kvik- mynduð. Bókin verður aðeins seld til áskrifenda, á meðan hið takmarkaða upplag endist, og geta þeir sem óska að eignast hana, gerzt áskrifendur með þvf að útfylla greinilega meðfylgjandi pöntunarseðil og senda hann ásamt áskriftargjaldinu I ábyrgðarbréfi í Giro-reikn: ing númer 65 við Útvegsbanka islands í Reykjavík og öllum útibúum hans. Ef bókin hefur ekki borizt yður innan þriggja vikna frá pöntun, þá látið vinsámlegast Giro-þjónustu Útvegs- bankans strax vita. ÚTGEFANDI Gíró-reikningur númer 65 i Útvegsbanka islands: Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að bókinni A EVUKLÆÐUM EINUM, og sendi hér með greiðsl- tina kr. 400.00. Bókin sendist mér burðargjaldsfrítt. Nafn Heimili Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum. Postulíns-veggflísar — stærðir 7Vaxl5, 11x11 og 15x15 cm. Amerltkar gólfflisar — Good Year, Marbelló og Kentile. þýzkar gólffiísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baSgólfdúkur. Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfól. Rvfkur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóSur — br. 55 cm. VeggfóSur — br. 50 cm. <_____________:--------------------------------------------------------J 4 VIKAN 25-tbl- HUN ROÐNAR Kæri Póstur! Hvað get ég gert þegar ég roðna og er feimin? Er ekki hægt að fá krem eða pillur við því eins og öllu öðru? Og stundum þó að ég sé bara tekin upp í tíma, þá roðna ég. É'g hef aldrei farið í partý, en kannski er ég ekki orðin svo stór, ég veit það vel, en samt þarf ég ekki að roðna. Viltu gefa mér góð ráð, ef þú mögulega getur. Þökk fyr- ir birtinguna og svarið. Ein með roðaveikina. Það er eðlilegt og fall- egt að roðna, og ekkert við því að gera. Sumar roðna fram á elliár, og hvað er fallegra en fimmtug frú, sem enn kann að roðna? Við getum aðeins gefið þér eitt ráð, en það hefur líka reynzt mörgum haldgott: Hættu að hugsa um hvað þú roðnar, því oft roðnar þú aðeins af því að þú ótt- ast að roðna. Getirðu losað þig við þann beyg, er ör- uggt, að þú roðnar ekki eins oft. ER INNIVERA SLÆM FYRIR HÁRIÐ? á hárvöxtinn. Við teljum, að um vöxt höfuðhárs manna gildi allt annað lög- mál en um vaxtarskilyrði plantna eða spírun kart- aflna, um síðasta atriðið er vel vitað, að mikil innivera gerir spírurnar langar, glærulegar og stökkar. Þú ættir að geta haft dágott hár ef þú þrífur það vel og reglulega og burstar það vel niður í svörðinn með stífum hárbursta, þótt þú komir aldrei undir bert loft. En guð hjálpi litar- afti þínu og útliti að öðru leyti! Við höfum ekki heyrt getið um slæmar verkanir sólskinssápu hvorki á and- lit né hár, en okkur þykir ekki sérlega góð af henni lyktin og leggjum til, að þú þvoir þér að minnsta kosti um nasirnar með ein- hverju Iystilegra efni. HÁR, NEGLUR, TÓBAK OG TENNUR Kæri Póstur. Mig langar að fá svör við nokkrum spurningum, sem ég vona að þú getir leyst Úr. 1. Hvernig er hægt að fá þykkt hár? 2. Ráð til að styrkja neglurnar. 3. Er til efni, sem gerir það aS verkum, að fólk langar ekki í tóbak, og hvar er hægt að fá það? 4. Hvað á að gera til að halda tönnum hvítum? Með fyrirfram þökk fyr- ir birtinguna og skemmti- legt efni í blaðinu yfirleitt. Með kveðjum. G.S. Kæri Póstur! Þú, sem virðist leysa allra vanda fljótt og vel, getur jafnvel gefið mér greið og rétt svör. Það, sem mér liggur á hjarta, er að fá vitneskju um, hvort mikil innivera hefur skaðleg áhrif á hár- vöxtinn. Er sólskinssápa, „Sunlight“, slæm fyrir húðina í andliti og þá fyrir hárþvott líka? Vinsamlega reyndu að svara fljótlega. Með kæru þakklæti og beztu viðurkenningu fyrir þáttinn, Pósturinn. Stóri-Skuggi. i Við eigum afar erfitt með að ímynda okkur, að innivera hafi nokkur áhrif Sá sem hefur þunnt hár samkvæmt eðli þess, getur tæplega með nokkru móti fengið þykkt hár. í gamla daga þótti gott að þvo hár- ið reglulega upp úr keytu eða nýju kúahlandi, trú- lega koma nýtízku vellykt- andi efni með ammoníak- innihaldi að svipuðum not- um. Allsherjar ráðlegging myndi liklega vera nostur- söm hirða um hárið og að forðast greiðutætingu (tú- heringu), því hún slítur hárið og fer illa með það. Einu sinni þótti gott ráð að styrkja neglurnar með því að bursta þær tvisvar á dag með stífum bursta og sverfa þær vel til svo ekki komi tii að þær rifni. Einn- ig munu fást á apótekum

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.