Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 32
★ M1Ð3PRENTUN Takið upp hina nýju aðferð og látið prenta alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, tilkynningar, kvitt- anir o. fl. á rúllupappír. Höfum fyr- irliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar afgreiðslubox. Leitið upplýsinga. HlLNie mf Skipholti 33 — Sími 35320. V____________________________________________________________________________________________ Bill stakk höfðinu út um svefn- herbergisdyrnar, með augun hálf- lokuð og hárið úfið. — Hvað er að? Hvað gengur að þér? — Það er ekkert að mér. Alls ekki neitt, sagði hún, og fann hjá sér einhverja óviðráðanlega löngun til að leika píslarvott. — Jæja, komdu þá í rúmið. — Ég er bara með svolítin brjóst- sviða. Þetta píslarvætti var eins og að skúbba eldhúsgólf, án þess að nokkur tæki eftir því. — Jæja, taktu þá þessar maga- töflur þínar. Hann klóraði sér í höfð- inu og skreið upp ! rúm. Hann var ekkert harður eða tiI- finningalaus, hann var bara hálfsof- andi. Og þó, hugsaði hún, áður en Janet fæddist, hefði hann örugg- lega staðið yfir henni, boðizt til að hjálpa og gert allt til að létta henni óþægindin. En hún hafði bara aldrei haft brjóstsviða, áður en Janet fædd- ist. Hún var ergileg, þegar hún hugsaði til þess að hún hafði neit- að sér um eplasalatið, sem hana langaði mikið í, og samt var hún með þennan andstyggilega brjóst- sviða. Hún skrifaði „brjóstsviði" á bréfræmu og límdi hana á minnis- töfluna í eldhúsinu. Hún mundi al- drei eftir þv! sem hún ætlaði að spyrja lækninn um, þegar hún var komin til hans. Framvegis ætlaði hún að skrifa allt niður. Það gerði hún samvizkusamlega næstu þrjár vikur, en þegar hún fór til að hitta lækninn, gleymdi hún minnisblaðinu. — Er nokkuð að þér, Maggie? spurði Hillies læknir, þegar hann hafði lokið venjulegri skoðun. — O, — nei. — Þetta var nú ekki beint jákvætt svar. — Ég skrifaði ýmislegt á minnis- blað, en ég gleymdi blaðinu, og ég man ekki hvað stóð á því. — Þetta er stórkostlegt! Vanda- mál, sem þú manst ekki einu sinni eftir, geta varla verið alvarleg. Ég sé þig þá eftir mánuð. Gleymdu ekki vítamínstöflunum. Hún sneri sér snögglega við í dyrunum. — Brjóstsviði. Það var það sem ég skrifaði. — Ó, það er ósköp algengt. Ertu stöðugt með brjóstsviða? Hún hristi höfuðið. — Nei, eigin- lega ekki. — Jæja, kauptu töflur í lyfjabúð- inni. Hann var hvorki harður né áhugalaus, hann var aðeins störfum hlaðinn, og ánægður með líðan hennar. Hún fór inn í móttökuherbergið til að taka spjaldið sitt, og meðan hún beið eftir því, virti hún fyrir sér hinar konurnar á biðstofunni. Síðan hún fór að fara ( reglulega skoðun, var hún farin að kannast við þessar konur; þarna var þessi þvengmjóa, Ijóshærða, sem var eins og hún hefði gleypt stóran bolta (eins og Peg McCloskey, hugsaði Maggie); hin Ijóshærða konan, sem var alltaf með lítinn dreng með sér. Hann sat á stól, með myndabók í annarri hendinni og samloku, sem hann boriðaði ekki, ! hínní, og Maggie hugleiddi hvað hann væri að hugsa, innan um allar þessar blómlegu konur, sem töluðu saman um ástand sitt. Venjulega var það frú Williston sem byrjaði og hafði líka síðasta orðið. Frú Williston var svo hjartanlega ánægð með ástand sitt, að það var ekki laust við að Maggie öfundaði hana, hún elskaðí allt, jafnvel brjóstsviðann. — Ég hefi þyngst um tvö kílór sagði hún nú, og ! framhaldi af því fóru konurnar að tala um mat- aræðið. — Ég þyngist alltaf um 15 kíló, það er sama hvað ég gerí,. sagði sú mjóa, Ijóshærða, og hinar sögðu frá: — .........vinkona m!n þyngdist um 23 kíló .... —.......... get ekki séð kartöflur... — ........ var að drepast í þrjá mánuði, en nú er ég sísvöng .... Maggie fann löngun til að taka undir, en hún hafði ekkert sérstakt að tala um, nema brjóstsviðann. Hún sagði það, sér til undrunar, og hún hafði þá kjánalegu tilfinningu að enginn hefði heyrt til sín, nema litli drengurinn. En móðir hans hafði heyrt það, og það kom í Ijós að hún vissi allt um þau óþægindi. — Ó, já, sagði hún, — það er andstyggilegt, það er bezt að maula sódakex, það geri ég. — Mjólk, sagði ein, — smásopa. — Það er vegna þess að barnið er með mikið hár, sagði frú Willis- ton, grafalvarleg. — Það hættir, þegar barnið fer að hreyfa sig . . . . —.......hreyf- ingar, þetta er rumba .... — Drott- inn minn, það er þó satt. Ég vakna við þetta klukkan tvö á nóttunni, rétt eins og við vekjarklukku, og ég hirði ekki um að vita á hvað það veit .... — Það veit ekki á neitt sérstakt, nema þá að barnið er drengur .... — Drengir hreyfa sig meira, alveg frá byrjun .... Maggie tók við spjaldinu og fór, og það var ekki laust við að hún hefði sömu tilfinninguna og þegar hún fór fyrst í skóla, og það var raunar ekki svo undarlegt. Þegar á það var litið, voru þetta allt ung- ar konur, og aðaláhugamál þeirra næstu árin snerust um börn, bæði þeirra eigin og annarra. Þær eru eins og sérstakur klúbbur, en félags- skfrteini mitt rann út með Janet. Hún átti að hitta Grace á fundi, þar sem ræða átti hjálparstarfsemi á sjúkrahúsum, kom of seint til há- degisverðarins, það var komið að ábætinum. — Ég vil bara kaffi, sagði hún þjónustustúlkunni, en varð þá litið á diskinni hjá Grace, sem ekki var hálfnuð með aðalmatinn, og svip- ur hennar lýsti svo mikilli öfund, að Grace ýtti diskinum frá sér. — Þetta barn þitt er það bezta sem gat komið fyrir matarlystina ( mér, sagði Grace. — Hvernig líður þér? Þú lítur stórkostlega vel út. Það er ekki hægt að sjá að þú sért ófrísk. — Mér líður prýðilega. Maggie rétti úr sér, ánægð yfir því að fá nú tækifæri til að tala um ástand sitt. — Reyndar var ég að koma frá 32 VIICAN 25-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.