Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 37

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 37
Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI. — Ég kom ( morgun, áður en ég fór í skólann, og þau leyfðu mér að sjá hana. O guð, sagði hún og baðaði út höndunum af ákafa, — hún var aðeins fjögra klukkutíma gömul. — Beygðu þig svo ég geti kysst þig, sagði Maggie. — O, mamma, fyrir hvað? Maggie gat hugsað sér að minnsta kosti fimmtán svör, en öll of flókin til að útskýra þau ! fljótheitum. — Fyrir að hugsa um heimilið fyrir mig, sagði hún. Þær fóru eins og þær komu, tvær og tvær saman, og Maggie hallaði sér aftur á koddann, sætlega syfjuð og ánægð með að vera það. Hún heyrði því ekki að það var drepið varlega á dyrnar. Ung kona, í baðkápu og inniskóm læddist inn. — Frú Salem? Maggie leit upp og deplaði aug- unum. — Ég þekkti yður ekki, sagði hún, og var nærri búin að segja: — Án kúlunnar. — Hillis læknir sagði mér að þér hefðuð komið í gærkvöldi. Hann sagði að þér hefðuð eignazt stúlku. Það eignaðist ég líka, og það var það sem við óskuðum í raun og veru. Auðvitað var okkur nokkurn- veginn sama, en við óskuðum eftir dóttur. Hvernig líður yður? Mér líð- ur dásamlega. Það er auðvitað ekki undarlegt. Mín var sextán merkuri' Hillis læknir segir að það sé óvenju- legt, af stúlku að vera. Hún er líka hávaðasöm. Hillis hefir aldrei heyrt annan eins hávaða úr nokkru barni. Eigið þér þá með svarta hárið? Það eru þrjú með mikið hár, og fimm sköllótt, — mín er með mikið hár, og það er rautt! Hillis læknir sagði . . En Maggie var steinsofnuð, með bros á vör ..... ☆ E?tt dægur á milli Framhald af bls. 11. ýmissa mála. Kvikmyndahúsin eru ekki jafnmikill áhrifavaldur og fyrr. Sjónvarpið hefur komið í staðinn. — Einn nemandi er dugmikill og traustur, annar miður. Á einu heimili njóta börnin hlýju og umönnunar og venjast á háttvísi og hlýðni. Hjá öðrum er þetta í molum. Svipur barnanna segir — Þetta er einn af þeim dögum sem mér finnst ég hafa fram- kvæmt eitthvað! frá. Hann er opinn og trúr án orða. En þannig hefur þetta ver- ið í því nær fjörutíu ár, sem ég hef haft nokkur kynni af ungu fólki á þroskaskeiði. Séu unglingar taumlausari og villtari í viðbrögðum nú en þeir hafa áður verið, þá mun það fyrst og fremst koma fram þegar þeir vilja „upp á dekk“ í hópi hinna fullorðnu og láta þar að sér kveða. Agaleysi verður varla að öllu leyti skrifað á reikning þess, sem aganum á að lúta, öllu fremur hins, sem taumhaldinu ræður. Æskan er í eðli sínu glöð og undirhyggjulaus. Það er aðeins er skuggi af rangsnúinni lífs- mynd þeirra, sem á undan ganga fellur á sál hennar, að örlögin ráðast í undirheimum. Rótlausir og byltingakenndir þjóðfélagshættir, þar sem hávaði og hraði verða yfirþyrmandi og baráttan um algleymi lífsmunað- ur í fyrsta sæti, hljóta óhjá- kvæmilega að setja sinn svip á framkomu og hátterni þeirra sem upp vaxa í því andrúmslofti. ís- lenzk börn þroskast ekki lengur utan alfaraleiðar. En þótt nú séu liðin tíu ár síð- an ég var hér fyrr á ferð finnst mér hugblærinn sá sami og að- eins hefði eitt dægur á milli leg- ið, þegar yfirborðsöldurnar læg- ir. ☆ Ýmislegt úr súpukjöti Framhald af bls. 22. BRÚNUÐ SMÁSTEIK 1% kg súpukjöt, er soðið með grænmeti, svo sem gulrótum, gulrófum og iauk. Bitarnir látn- ir kólna, velt upp úr eggi og raspi, brúnaðir í smjörlíki. Bú- in til sósa úr soðinu og græn- metinu. AFGAN GARAGÚ 3 matsk. smjörlíki 3 matsk. hveiti. 1 fínhakkaður eða rifinn lauk- ur. Smjörlíki og hveiti er bakað upp, þynnt með kjötsoði og mjólk eins þunnt og óskað er, lauk bætt í og soðið vel saman. Smá- brytjuðum kjötafgöngum bætt í, saltað og piprað að þörfum. Ef grænmetisafgangar eru til er gott að láta þá í sósuna. Soðin hrís- grjón eða kartöflustappa borin með. ☆ ■ mimillliH — Get ég fengið bókina um það að menn séu komnir af öpum? 85. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.