Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 2

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 2
Colgate fluor gerir tennumar sterkari við hverja burstun Spyrjið tannlækni yðar... hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar. Byrjið í dag - það er aldrei of seint... Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna. Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur. Heldur kálmaðkinn takk Það væri synd að segja, að kyrrlátt jafnvægislíf væri í þjóðfélagi íslendinga. Við er- um víst þeim ósköpum álögð, að vera svo sundurlynd að geta aldrei náð samstöðu um nokkurn hlut, sem verulegu máli skiftir fyrir okkur, jafn- vel þótt skoðanamunurinn sé aðeins um aðferðina, en ekki niðurstöðuna. Og þó eru okk- ar vandamál ósköp lítilf jörleg, miðað við það sem gerist hjá mörgum stærri þjóðum. Við þurfum til dæmis ekki við það að búa, að drengirnir okkar séu sendir á sínum frískustu manndómsárum til þess að láta skjóta sig á ein- hverjum vígstöðum hér og þar. Við þurfum ekki að eiga von á því, að járngrá drottn- unarþjóð ráðist með eldi yfir okkur þótt einhver ný stefna verði tekin í þjóðmálum. Við eigum ekki við kynþátta- vanda að etja né kynslóðaþró- aðan menntunarskox-t. Við bú- um ekki yfir þeim náttúru- auðlindum, að við þurfum að verja þær með kjafti og klóm. Við þurfum ekki einu sinni að berjast við verri pöddur en kálmaðkinn. Aðalvandi okkar er póli- tísku flokkarnir. I raun réttri skilur lítið á milli þeirra og þeir gapa allir yfir sama bit- anum. Samt nægir okkur ekki að eiga fjóra flokka sem hnot- bítast með öllum tiltækum bolabrögðum; margur hefði haldið að réttar hefði verið að sameina einhverja þeirra og fækka þeim þannig, þótt það hefði kostað að einhver hefði orðið að slá af persónu- leírri metorðagirnd sinni. En það verður ekki upp á ten- ingnum, heldur hefur nú ver- ið stofnaður einn enn, sem yf- irlýsir meira að segja við stofnun, að hann telji fráleitt, jafnvel „dauðasök", að vinna með öðrum flokkum. Mættum við þá heldur biðja um kálmaðkinn, takk. 1 S.H.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.