Vikan - 19.06.1969, Page 5
gelatinefni til að styrkja
neglur.
Einhvern tíma heyrðum
við getið um efni, sem átti
að auðvelda fólki að hætta
að reykja, en ekki virðist
það hafa gert mikla lukku,
að minnsta kosti er okkur
ekki kunnugt um neinn,
sem hefur notað það. Við
getum aðeins gefið eitt ráð
til að hætta að reykja: Að
vilja það sjálfur og beita
sig hörðu. Til að halda
tönnunum livítum kunnum
við það bragð helzt að
vera nógu iðinn að þrífa
þær. Flest tannhreinsiefni
eru mjög góð nú til dags,
en þó telja margir tann-
læknar, að þau efni, sem
innihalda flúor, séu öðrum
betri. — Þeir sem reynt
hafa rafmagnstannbursta,
segja líka, að tannhirðan
sé margfalt auðveldari og
árangursríkari með þeim.
Reglan er að bursta tenn-
urnar kvölds og morgna og
eftir hverja máltíð, en
forðast sætindaát eða auka-
bita milli mála, og umfram
allt: Sofa með tandurhrein-
ar tennur.
EINMANA FÓLK OG FEIMIÐ
PÓSTINUM hefur borizt
töluvert af bréfum frá ein-
mana fólki, sem óskar
bréfaskrifta, án þess að það
vilji láta nafna sinna getið
opinberlega. Ákveðið hef-
ur verið að hafa milligöngu
um bréfaskiptaupphaf fyr-
ir þetta fólk, með þeim
hætti, sem nú skal greina:
Þeir, sem óska að skrifa
eftirgreindu fólki, skulu
láta bréf til þess í LOKAÐ,
FRÍMERKT UMSLAG ÁN
UTANÁSKRIFTAR, en
senda það í ÖÐRU UM-
SLAGI UTAN YFIR, frí-
merktu og utanáskrifuðu
til VIKUNNAR, pósthólf
533, Reykjavík. Með í ytra
umslaginu skulu fylgja fyr-
irmæli um, hverjum eigi
að senda ómerkta bréfið.
ATHUGIÐ: Þau bréf,
sem gengið er frá á ófull-
nægjandi hátt, fyd. ekki
nægilega frímerkt, lenda í
ruslakörfunni. Hér koma
svo upplýsingar um þá, sem
óska bréfavina á þennan
hátt:
EIN 18 ÁRA, við pilta og
stúlkur á aldrinum 18—22
ára. Hún lofar að svara öll-
um bréfum, en mynd fylgi.
EINMANA AFDALA-
STRÁKUR, við stúlkur,
aldur skiptir ekki máli.
EIN EINMANA I, við
unglinga 17—19 ára.
EIN EINMANA II, við
fólk á öllum aldri, helzt þó
ungt fólk.
EINN EKKI ÁNÆGDUR,
við stúlku 27-—37 ára.
HANN SEGIR EKKI HALLÓ
Kæri Póstur.
Ég hef lent í miklum erf-
iðleikum. Og langar mig
þess vegna að leita ráða
hjá þér. Í5g kynntist strák
á aldur við mig og vorum
við hinir beztu vinir sem
á er kosið. En nú er allt
búið á milli okkar. Ég var
hrifin af honum þegar allt
lék í lyndi og er það enn.
En svo frétti hann að ég
væri hrifin af sér og hætti
hann þá að tala við mig og
sagði aldrei halló við mig
eins og hann hafði áður
gert. Nú langar mig til að
spyrja þig hvort ljósmerkið
Hvað á ég að gera til að
það náist aftur sú vinátta
sem áður var?
Mig langar einnig til að
spyrja þig kæri Póstur.
og sporðdrekamerkið eigi
vel saman?
Ein sem ekki vill
láta nafns síns getið.
Það er trúlega ekki
margt að gera. Nema þú
látir það berast til hans, að
þú sért nú aldeilis ekki
hrifin af honum lengur, og
vafasamt, að þú hafir
nokkurn tíma verið það. Þú
mátt líka vei minnast þess
gamla spakmælis, sem seg-
ir að fjörður skyldi milli
frænda en vík milli vina.
Um ljón og sporðdreka
segja heimildir okkar, að
bæði merkin séu stórlynd
og baldin í öllum viðskipt-
um, og muni þess skammt
að bíða að til alvarlegra
deilna komi, er þau lenda
saman, enda séu grundvall-
ar eðlisþættir þessara
merkja með öllu ósam-
ræmanlegir.
— Það er ekkert skrítið að
þú nærð ekki í samband,
þetta er osturinn.
Því er slegið föstu:
Hvergi meira fyrir peningana
15 dagar, Mallorca. Kr. 11.800
- 25% fjölskylduafsláttur. - HÓPFERÐAAFSLÁTTUR.
Brottför annanhvern miðvikudag, og að auki annanhvern föstudag,
júlí, ágúst og september. Þér getið valið um 15 daga ferðir til
Mallorca, eða viku á Mallorca og viku á meginlandinu. Viku á
Mallorca og viku með skemmtiferðaskipi um Miðjarðarhafið,, en
flestir velja aðeins Mallorca, þar er skemmtanalífið, sjórinn og
sólskinið eins og fólk vill hafa það. Fjölsóttasta ferðamanna paradís
í Evrópu. Fjölbreytt úrval skemmtiferða til Barcelona, Madrid, Nizza
og Alsír. Nú komast allir í sumarleyfi til sólskinslandsins, með
hinum ótrúlega ódýru leiguferðum SUNNU beint til Spánar. Mið-
vikudagsferðir flestar 17 daga. — Tveir dagar í London á heimleiS.
Kaupmannahöfn, 15 dagar. Kr. 11.800
Brottför 5. júlí, 19. júlí, 2. ágúst, 16. ágúst og 30. ágúst.
Óvenjulegt tækifæri til að komast í ódýrar sumarleyfisferðir til
Kaupmannahafnar og margra annarra landa, þaðan í sambandi við
þessar ódýru ferðir.
Biðjið um nýja ferðaáætlun. Eigin skrifstofur SUNNU á Mallorca
og í Kaupmannahöfn, með íslenzku starfsfólki, veita farþegum
okkar ómetanlegt öryggi og þjónustu. Pantið snemma, því marg-
ar SUNNU-ferðir í sumar eru að verða þéttbókaðar.
Þér fáið hvergi meira fyrir peningana og getið valið úr öllum
eftirsóknarverðustu stöðum í Evrópu.
f Sunnuferðum
eru eingöngu notuð góð hótel. A Mallorca notar Sunna nú alls
ekki ódýrustu verðflokkana og öll hótel og íbúðir, sem Sunna
ræður þar yfir, eru með einkabaði, svölum og oftast fylgir sundlaug.
Leiguflug og hagkvæmir samningar til langs tíma við hótel erlendis
er skýringin á hinu ótrúlega lága verði SUNNUFERÐA. Kjörorð
okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við
gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu, sem reynt
hafa SUNNUFERÐIR og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur
verð og gæði annarra ferða, sem á boðstólum eru, og vandið
valið. Þér munuð þá eins og þúsundir annarra íslendinga hafa
komizt að því að SUNNA opnar yður ótal ævintýraleiðir til ódýrra
utanlandsferða. Sunnuferðir eru vinsælar og viðurkenndar af þeim
fjölmörgu, sem reynt hafa, þær eru ódýrar úrvalsferðir og þess-
vegna eru það SUNNUFERÐIRNAR, sem fólkið velur.
FERDASKRIFSTOFAN SIINNA
25. tbi. VIKAN 5