Vikan - 19.06.1969, Page 6
SOFFIfl BE
SONUR HENNAR
Fyrir ekki mjög löngu birtum viS myndir af
Soffíu Lóren á sænginni, aS afloknum barns-
burSi, sem heppnaSist stórvel, leikkonunni og
öllum hennar mörgu velunnurum til gífurlegs
fagnaSar. Nú er Soffía vitaskuld fyrir löngu
komin heim af fæSingardeildinni og dvelur nú
skammt frá Róm á landssetri, sem þau Ponti
hennar eiga. NábýliS er ekki dónalegt, því aS
rétt hjá er Gandólfs-kastali, sem er einn af fræg-
ari bústöSum páfans.
Hér er Soffía með drenginn í barnavagni á
göngu skammt frá landssetri þeirra.
Soffía og sonur hennar njóta nú slíkra vinsælda á Ítalíu,
að hætt er við að þau slagi hvað það snertir hátt upp f
önnur mæðgin, sem lengi hafa notið meiriháttar virðing-
ar í því landi. En þótt Carlo litli sé sagður mesta efnisbarn,
er enn ekki séð hvort hann verður nokkur bógur á móts
við son Maríu.
Soffía bæði matar drenginn sjálf og skiptir á honum og
segist hafa ósegjanlega gaman af því.