Vikan - 19.06.1969, Page 21
RÉTTARHÖLD UNDANFARIÐ. EN VÍSINDIN ERU ÞESS ENN EKKI UMKOMIN AÐ SVARA HENNI.
1AÐ VERBA MORÐINGIAR ?
rannsókninni eiga þeir þess utan oft við húðgalla í andliti að
stríða, fá ungir skalla og verða nærsýnir.
Með blóðrannsókn er hægt að uppgötva XYY samsetningu
hjá nýfæddum sveinbörnum. En það er dýr og erfið rannsókn,
og þar að auki er ekkert hægt að gera við XYY tilfelli, annað
en slá því föstu. Þess vegna er álitið þýðingarlítið að prófa ný-
fædd sveinbörn.
Það er náttúran, sem ákveður krómósómsamsetninguna. —
Mannslíkaminn er gerður úr frumum, og sé allt eðlilegt, eru 46
krómósóm í hverri l’rumu, og er þeim skipt í pör. 22 paranna
ákveða líkamlega og sálræna eiginleika okkar, liára- og augna-
lit, lunderni og svo framvegis. 23. parið ákveður kynferðið.
Hjá eðlilegri konu er 23. parið tvö „kvenleg" krómósóm, XX.
Hjá eðlilegum karli er parið eitt kvenkrómósóm, X, og eitt
karlkrómósóm, Y. Eðlilegur karl er sem sagt XY.
Egg eðlilegrar konu ei- aðeins XX. Sæði eðlilegs karls er hins
vegar tvenns konar, X krómósómberandi eða Y krómósómber-
andi. Ef Y krómósómberandi sæði frjóvgar eggið, eyðir Y
krómósómið öðru X krómósómi þess, fóstrið fær XY samsetn-
ingu og verður sveinbarn. Sé sáðfruman X krómósómberandi,
verður fóstrið XX og meybarn.
En stundum bregzt meira að segja náttúrunni bogalistin. Hún
hleypir einu of margt krómósómi í gegn, og afleiðingin verður
XYY — eða XXY.
Þegar samsetningin verður XXY, tvö kvenleg krómósóm og
eitt karllegt, verður fóstrið stúlkubarn, en með sterkum karl-
legum eiginleikum. Þær stúlkur eru stundum kallaðar „stálkon-
ur“ eða „fjallkonur“, og þær gera einkum garðinn frægan í sam-
bandi við íþróttir. Þeirra tilfelli gerðist töluvert frægt í sam-
bandi við síðustu Ólympíuleika, þegar nokkrar slíkar konur voru
dæmdar úr leik vegna of ákveðinna karllegra eiginleika, eða XXY
krómósómsamsetningar, sem í ljós kom við blóðrannsókn.
En einnig í þeirra tilfellum hefur orðið vart við glæpahneigð,
og getgátur eru uppi þess efnis, að sumar af mestu svörkum og
kvendum sögunnar hafi verið XXY tilfelli.
En nú er sem sagt að því komið að taka lagalega afstöðu til
þeirra, sem hafa einu krómósómi of margt í 23. parinu. Á að
milda dóma á slíku fólki? Dómstóllinn í Melbourne gerði það,
og í New York var Sean Farley, XYY maður, sem myrt hafði
49 ára gamla konu, dæmdur undan refsingu á þessum grund-
velli. En aðrir telja, að séu XYY menn svona hættulegir, beri
eindregið að varðveita þá bak við lás og slá.
— Enn vitum við ekki mikið meira um XYY krómósómsam-
setninguna en það, að hún er ekki arfgeng, segir prófessor Eors-
man. — En hvernig stendur á henni vitum við ekki. Fyrsta kast-
ið verðum við því að segja, að hún sé tilfallandi. En ég held,
að einhvers staðar hljóti að liggja einhver orsölc til hennar. Og
hún verður að finnast.
■fr
25. tbi. viKAN 21