Vikan - 19.06.1969, Síða 30
Þotuflug er ferðamáti nútímans
Nútíminn gerir fyllstu kröfur
til hraða og þæginda á ferða-
lögum og þota Flugfélagsins
uppfyllir þær. Ferðin verður
ógleymanleg, þegar þér fljúgið
með Gullfaxa. 13 þotuferðir
vikulega til Evrópu í sumar.
ÞJONUSTA HRAÐI ÞÆGINDI - HVERGI ODÝRARI FARGJÖLD
FLUCFÉLAC /SLAJVDS
FORYSTA í ÍSLENZKUM FLUGMÁLUM
Yfir AtlantshafiS ...
Framhald af bls. 47
gamalla báta, allt frá árinu
2475 fyrir Krist burð. í sam-
einingu tókst þeim síðan að
finna mennina, þá einu í öll-
um heiminum, sem eru færir
um að byggja slík skip:
nokkrir kolbikasvártir Mið-
Afríkubúar, sem lifa í mikilli
einangrun við vatnið Tchad.
Afríkubúarnir þrír, Moses,
Omar og Abdullah, hafa aldr-
ei byggt svo stóran papýrus-
bát, og þeim líst ekki meira
en svo á þetta uppátæki
hvíta mannsins. Heyerdahl
segir þá mjög skarpa og
snjalla.
Ra samanstendur af 14
papýrus-knippum, svipuðum
risastórum kornbindum, sem
liggja langsum, og tveim
þversum. I allt vegur þessi
15 metra langi og 5 metra
breiði bátur tæp 15 tonn.
Vinna við smíðina tók um
það bil þrjár vfkur, úti i
steikjandi eyðimörkinni fyrir
utan Kairo. Þaðan var hann
dregnn með aðstoð 500
egypskra stúdenta inn í borg-
ina, og þaðan var báturinn,
sem enginn vissi þá hvernig
myndi láta í sjó, fluttur til
Marokkó, þar sem lagt var
upp í J^essa ævintýralegu og
áhættusömu ferð.
Um borð eru, auk Heyer-
dahls og Svíans, sá kolsvarti
Abdullah, Egypti, sem bras-
ar ofan í fullhugana, Amerí-
kani, Ttali og Fransari.
Fljótlega eftir að Heyer-
dahl og félagar hans á Ra
lögðu af stað frá Casablanca,
bárust þær fregni rfrá þeim,
að tveir af áhöfninni væru
veikir. Og um svipað leiti kom
í ljós, að vindar höfðu borið
þá nokkuð af leið, eða tölu-
vert suður fyrir Kanaríeyjar,
en upphaflega var ætlunin að
fara norðan við þær sömu
evjar. En sólguðinn sjálfur
virðist vera í fylgd með nafna
sínum, og nú er Ra aftur á
réttri leið, og allir sprækir.
Mjög erfitt er að ná sambandi
við Ra, þar sem um borð er
aðeins ein mjög ófullkomin
sendistöð. Þó hefur mönnum
skilist, að stuttu eftir að þeir
komust á rétta leið, hafi þeir
hreppt óveður, og sennilega
orðið fyrir einhverju tjóni.
Hefur Ra þó reynzt mun bet-
ur í sjó en upphaflega var
þorað að vona, og er Heyer-
dahl hæstánægður með byrj-
unina.
I Egyptalandi sitja papýr-
ussérfræðingar á rökstólum,
og ræða möguleikana á því að
sjávardýr setjist utan á bát-
inn, og hreinlega cti hann
upp, sem væru heldur lág-
kúruleg endalok. Norskir sér-
fræðingar óttast hins vegar
mest, að mastrið á Ra muni
ekki geta staðizt hvassa Atl-
anthafsvinda, og þar með
væri sú ferð sennilega úr sög-
unni.
Hvað sem öllum (hrak)-
spám líður, þá bíður heimur-
inn með öndina í hálsinum
eftir fregnum af Ra, og von-
ar að Heyerdahl takist að
varpa einhverju ljósi á þetta
mál. Eða svo notuð séu orð
Iians sjálfs: „El' ég get það,
þá hafa þeir getað það Iíka.“
☆
30 VIKAN 25- tbl'