Vikan - 24.07.1969, Side 7
EG ER ENNÞA KONIINGUR
salað mér völdum, en ég er
ekki trúaður á að konung-
dæmi verði nokkurn tíma end-
urreist í Búlgaríu. Mig langar
ekki til að verða konungur,
en formlega séð, er ég það
ennþá, og núverandi stjórn er
ólögleg.
Hann er unglegur og mjög
aðlaðandi maður. í litlu höll-
inni, sem hann á í Madrid,
er fullt af fjölslcyldumyndum
á veggjum, þar er líka búlg-
arski fáninn, og í einum sain-
um er dýrmætt safn helgi-
mynda (ikona).
Æskuár Simeons voru ör-
lagarík. Faðir hans, Boris III.
fór li! Fýzkalands í boði
Hitlers. Nokkru eftir að hann
kom heim, veiklist hann
skyndilega og lézt 28. ágúst
1943.
— Dauði föður míns var
liræðilegt áfall fyrir mig, seg-
ir Simeon. — Við erum enn-
þá á þeirri skoðun að Hitler
hafi látið byrla honum eitur.
Simeon var sex ára, þegar
hann varð konugur. Kyril
frændi hans var ríkisstjóri,
þar til Rússarnir komu.
Búlgaría var gerð að lýðveldi,
og Kyril myrtur.
— Móðir mín varð að flýja
Jand, með mig, systur mína
og frænku. Við fórum að lok-
um til Egyptalands, og þar
gekk ég í skóla, bar til ég varð
fjórtán ára. Árið 1951 flutt-
um við til Spánar. Við vor-
um ekki vel fjáð, en það lag-
aðist, þegar móðir mín fékk
arf eftir föður sinn. Móðir
Simeons var dóttir Viktors
Emanuels, konungs ítala, og
systir Ilmbertos konungs, sem
nú er landflótta í Estoril í
Portugal. Þegar Simeon
kvæntist, flutti móðir hans í
litla villu, rétt hjá bróður sín-
um í Portúgal, svo ungu hjón-
in gætu búið vel um sig í höll-
inni.
— Mér líður ágætlega, seg-
ir Simeon. — Ég vinn við
bankastarfsemi og fasteigna-
sölu.
Framhald á bls. 37.
1. Þetta er nokkuð hátt,
pabbi, en hvað gerir
maður ekki fyrir ljós-
myndarann.
2. Simeon að hjálpa son-
um sínum við barna-
hjólakappakstur-
3. Búlgarska konungs-
fjölskyldan í Madrid;
Simeon, Margarita og
synimir fjórir.
4. Konungshjónin hafa
yndi af að leika við
drengina.
5. Yngsti sonurinn, Kon-
stantin, í faðmi móður
sinnar.
30. tbl.
VIKAN