Vikan


Vikan - 24.07.1969, Page 10

Vikan - 24.07.1969, Page 10
IJARTA1111H Frásögn japanska flugforingjans Fútsjída se1 Hver var tilgangur Japana með árásinni á Pearl Harbor? Jú, þeir ætluðu að gereyða Kyrrahafsflota Banda- ríkjamanna í einu höggi til að geta síðan því sem næst við- námslaust farið sínu fram í Austur-Asíu og Ástralíu. Frá því um fyrri heimsstyrjöld hafði keppni Banda- ríkjamanna og Japans um yfirráðin á Kyrra- hafi farið síharðnandi, og Japanir þóttust sannfærðir um að fyrr eða seinna syrfi til stáls. Þeir gerðu sér Ijóst að bæði hvað mannafla og þó einkum þungaiðnað snerti stóðu þeir Bandaríkjamönnum langt að baki. Eina von þeirra um hagstæð úrslit í glímunni við Sám frænda var því bundin skyndiárás, er kæmi óvininum í opna skjöldu og lamaði hann langt fram í tímann. Sjálfri árásinni á Perluhöfn stjórnaði flugforingi að nafni Mitsúó Fútsjída. Hér birtum við frásögn hans af atburðunum. Flotadeildir okkar lögðu af stað til Pearl Harbor næstum mánuði fyrir hina örlagaríku atburði sjöunda desember. Um morgunin tíunda nóvember lögðu þannig fyrstu skipin úr flota Sjúitsji Naúmós aðmíráls úr höfn flotastöðvarinnar Kúre á suðurströnd Honsjú, skammt frá Hírósjíma. Önnur skip flotans lögðu af stað næstu átta dægrin. Strangasta leynd hvíldi yfir þessari aðgerð, enda fór svo að hvorki Bretar eða Bandaríkjamenn komust á snoðir um hvað á seyði var. Fyrsti áfangastaður var Tankan-flói á Etorfú, sem er stærst Kúrileyja. Sex dægrum sfðar vorum við reiðu- búnir fyrir næsta þátt, sem endanlega skyldi koma okkur í stríð við Engilsaxa. Tuttugasta og sjötta nóv- ember komu skip Nagúmós saman á fyrirfram ákveðn- um mótstað við Kúrileyjar og hófu aðgerðina, sem stríðsleiðtogar okkar kölluðu „hið guðdómlega verk- efni". Hver maður um borð í skipunum, sem voru tutt- ugu og þrjú talsins, var þrautþjálfaður. Sennilega hefur aldrei floti með betri útbúnað og undirbúning lagt upp í stríð. Flugmennirnir, sem áttu að mola Pearl Harbor, voru úrval úrvals. Enginn þeirra hafði á bakvið sig færri flugtíma en átta hundruð, og margir höfðu flogið tíma í þúsundatali. Fjölmargir þeirra höfðu þegar hlotið eld- skírnina í Kínastríðinu. Seró-orrustuflugvélarnar okkar voru þær beztu á öllu Kyrrahafssvæðinu. Tundurskeytaflugvélar okkar voru þær hraðskreiðustu í heimi af sinni tegund, og steypi- flugmenn okkar höfðu árum saman fullkomnað tækni sína yfir meginlandi Asíu. Annan desember var allur flotinn sameinaður og kominn út á haf á ný. Sjólag var slæmt, vso að þetta varð engin skemmtisigling. Margir sjóliðar skoluðust fyrir borð, en ekkert skip nam staðar til að bjarga þeim. Áherzla var lögð á að flotinn yrði ekki á eftir áætlun, og þvf voru allar tafir bannaðar. Stormurinn reif merkja- flöggin í tætlur og þykkir þokubakkar gerðu að verkum að oft lá við árekstrum. Allar loftskeytasendingar milli skipanna eða milli þeirra og stöðva f landi voru bann- aðar. Sama morgun og flotinn lagði af stað, fékk Na- gúmó lokafyrirskipunina frá yfirmanni sínum, hinum fræga aðmírál (sorokú Jamamótó, sem Bandaríkjamenn sökktu síðar. Skipunin hljóðaði þannig á dulmáli: Niítaka Jama Nóbóre. Orðrétt þýðir þetta: Klifrið Niítaka-fjall, en hin raun- verulega merking var að teningunum væri kastað. Leið- togar Japana höfðu ákveðið að strfðin tvö, sem undan- farið höfðu geysað í Evrópu og Afrfku og í Kína, yrðu nú að einni heimsstyrjöld. Nagúmó fyrirskipaði flota sínum að auka hraðann og breyta stefnunni f suðurátt. í flotanum voru flugvéla- móðurskipin Akagi og Kaga, Sorjú og Hirjú, Súfkakú og Sjókakú, orrustuskipin Híei og Kírisjima, tvö stór beitiskip, Tóne og Sjíkúma, eitt beitiskip minna, nfu tundurspillar og þrjú hjálparskip. Floti Nagúmós var ekki sá eini, sem stefnt var til Pearl Harbor. Tuttugu kafbátar fóru á undan. Flestir þeirra voru stórir og ætlaðir til langsiglinga. Ellefu þeirra fluttu sína njósnaflugvélina hver; voru flugvélar þessar þannig gerðar að taka mátti af þeim vængina. Voru þær geymdar í vatnsþéttu hólfi aftanvið turninn. Fimm aðrir kafbátar höfðu dvergkafbáta í togi. Á hverj- um dvergbátana var tveggja manna áhöfn og jafnmörg tundurskeyti. Kafbátaflotinn fór til Kwajalein í Marshalleyjum, þar sem þeir tóku eldsneyti og aðrar nauðsynjar. Síðan var haldið áfram til Havaí. Þegar þangað kom, námu bát- arnir staðar í varðkeðju utanvið Pearl Harbor. Aðfara- nótt sjöunda desembers lögðu dvergbátarnir af stað uppað strönd Oahu til að kanna strandvarnir Banda- rfkjamanna. Klukkan tuttugu og þrjár mínútur yfir þrjú um nótt- ina gaf ég, þá staddur um borð í Akagi, flugmönnum mfnum, þrjú hundruð fimmtíu og þremur að tölu, eftir- farandi skipun: Allar flugvélarnar skulu þegar í stað ráðast á stöðv- ar óvinarinsl Nokkrum klukkustundum síðar tók ég sjálfur flug frá flugþilfari Akagis, fyrstur minna manna. Klukkan var þá sex. Sjálft flugtakið var mjög hátíðlegt. Um borð í Akagi var nefnilega merkjaflagg það er Tógó aðmfráll hafði notað f rússnesk-japanska stríðinu þrjá- tíu og fimm árum áður, er hann gaf flota sfnum skipun um að ráðast til atlögu við Tsújíma. Flaggið hafði verið flutt um borð f gulllögðu skrfni og með stórri viðhöfn. Nú var það aftur notað til að gefa árásarmerki. f þetta skipti skyldi ekki ráðizt á Rússa, heldur Bandarfkja- menn, og það voru ekki skip sem lögðu til atlögu, heldur flugvélar. Himinninn var skýjaður, og það vorum við ánægðir með, því að það auðveldaði okkur að leynast. Við nálguðumst Havaíeyjar, og fljótlega komu Kauai og Oahu í Ijós framundan mér og undir. Þegar klukkuna vantaði nákvæmlega fimm mínútur f átta á sunnudags- morgni, geystumst við innyfir Pearl Harbor, og sprengj- urnar féllu. Fyrstu sprengjunni kastaði flugvél af gerðinni Aitsji, sem lautinant að nafni Akíra Sakamótó stýrði. Mark hans var orrustuskipin, og sömuleiðis yfir tuttugu fé- laga hans, sem fylgdu honum fast eftir. Á eftir þeim komu tuttugu og sex steypiflugvélar undir stjórn Kakúit- sji Takahasji yfirlautinants. Þær réðust á Hickam-flug- völl og breyttu flugvélunum þar og byggingunum f brennandi óskapnað á nokkrum sekúndum. Næst kom röðin að Ford Island, þar sem flestar bandarísku flotaflugvélanna höfðu bækistöð. Sjálfur hélt ég mér hæst á lofti til að fylgjast með verkinu og stjórna því. Njósnarar okkar á eyjunum höfðu áður upplýst okkur um skotmörkin, og nú lædd- ust dvergkafbátar okkar uppað ströndinni og vísuðu okkur beint á þau. Meirihluti Seró-orrustuflugvélanna og nokkrar sprengjuflugvélanna stefndu nú til árásar á Bellows-flugvöll, Wheeler-flugvöll, Kaneohe-flugbæki- stöðina og herbúðirnar í Schofield, þar sem bandarfsku hermennirnir sátu þá að morgunverði. Aðrir fbúar Oahu sváfu flestir. Verkefni okkar var ekki erfitt. Nú leikur kannski einhverjum hugur á að vita, hvernig mér hafi liðið meðan á árásinni stóð. Er ekki 10 VIKAN 30- «*•

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.