Vikan - 24.07.1969, Side 13
verið til kostað að end-
urspegla atburðina
sem nákvæmlegast og
má fastlega gera ráð
fyrir að myndin verði
kassastykki víða um
heim. Við birtum mér-
með nokkur sýnishorn
úr myndinni.
Árásin kom Bandaríkjamönn-
um gersamlega á óvart, enda
voru varðhöld þeirra á staðn-
um ekki upp á marga fiska,
þótt svo að meginhluti Kyrra-
hafsflota þeirra væri þarna
samankominn. Þessi mynd, sem
er úr kvikmyndinni, sýnir lúð-
urþeytara í bandarísku her-
búðunum vekja mannskapinn
að morgni árásardagsins.
Japanski ofurstinn, Mínorú Genda. sem
skipulagði árásina. Með henni hugsuðu
Japanir sér að lama hernaðarmátt
Bandaríkjanna á Kyrrahafssvæðinu langt
fram í tímann. Sá tilgangur náðist að-
eins að nokkru leyti, þótt tjónið yrði
gífurlegt.
Um borð í japönsku herskipi. Genda útskýrir árásaráætlunina fyrir yfir-
manni sínum, Jamamótó flotaforingja.
Árásarflugflotanum stjórnaði Mitsúó Fútsjída
ofursti, sem í myndinni er leikinn af Taka-
híró Tamúra. Eftir stríðið turnaðist Fútsjída
til kristni og gerðist friðflytjandi mikill.
4 Bandaríska loftvarnaliðið varð furðu
viðbragðsfljótt, þótt enginn í bækistöð-
inni eða á flotanum hefði hugmynd um
hvað var að gerast fyrr en sprengjumar
fóru að falla. En vörnin var of veik og
óviðbúin til að hindra árásarliðið að ráði.
Slökkvilið orrustuskipanna barðist af ör-
væntingu við eldinn, en stöðugt gusu upp
ný bál og sprengingar skóku skipsskrokk-
ana.
so- tw. VIKAN 13