Vikan - 24.07.1969, Page 18
POMPIDOU
MYRTUR
Kæri draumráðandi!
Ég hef verið að hugsa
um draum sem mig
dreymdi fyrir nokkru og
langar mig mikið að vita
hvað hann merkir.
Ég og aðrir heimilismeð-
limir hér vorum að hlusta
á fréttir í útvarpinu. Allt
í einu rauf þulurinn stutta
þögn sem hafði orðið og
sagði síðan hægt og alvar-
lega: „George Pompidou,
forsetaefni Gaullista í for-
setakosningunum í Frakk-
landi var myrtur í gær-
kveldi er hann var í kosn-
ingaleiðangri í suðurhluta
landsins." Síðan kom löng
þögn. Ég vaknaði er þulur-
inn byrjaði á nýrri frétt og
við vorum að ræða atburð-
inn.
Svo langar mig að vita
hvað það táknar að
dreyma prest og að maður
sé búinn að stofnsetja
verzlun.
Með fyrirfram þökk fyr-
ir birtinguna.
Ein sem dreymir oft.
Draumur þinn er þegar
kominn fram: Pompidou
er orðinn forseti Frakk-
lands. Að dreyma prest í
skrúða, einkum sé hann
við embættisverk er yfir-
leitt ekki fyrir góðu- —
Stundum getur það boðað
að þér verður trúað fyrir
mikilvæaru leyndarmáli og
sumum sretur það táknað
h.iónaband. Verzlun er
góðs viti.
LTKKISTA OG
KELERÍ T
F.iORUNNI
Kæri draumráðandi!
Mi<? langar til að biðja
big að ráða fyrir mig eft-
irfarandi draum:
Við vorum nokkrir
krakkar samankomnir fyr-
ir utan kofa hér í þorpinu
og inni í kofanum var vin-
kona mín og önnur stelpa
með henni og fannst mér
þær vera að flytja líkkistu.
Var hún brún að lit, löng
og mjó og mjög skrautleg.
Allt í einu kom þar að
strákur sem ég er mjög
hrifin af en hann er með
stelpunni sem var með
vinkonu minni í kofanum
(eins og er); hér eftir mun
ég kalla strákinn X. — X
gekk beint til mín og lagði
höfuð sitt að mínu og við
byrjuðum að kela þarna,
og stelpan sem hann er
með (eins og er) horfði
öfundaraugum á. Þá kom
vinur X og spurði okkur
hvort við vildum ekki
heldur vera ein einhvers
staðar. Svo labbaði hann
af stað og við X á eftir.
Niður í fjöru benti hann
okkur á einhvers konar
tóftir, og við fórum að
kela þar. Mér fannst mjög
skrýtið að við kysstumst
ekkert en báðum leið okk-
ur vel. Allt í einu greip
mig einhver ótti; mér
fannst alltaf einhver vera
að koma.
Svo varð draumurinn
ekki lengri.
Með beztu kveðjum.
S utan af landi.
Eins og áður hefur ver-
ið getið í þessum dálki, er
það útbreidd skoðun að
mann dreymi oft það sem
maður hefur verið að
hugsa um daginn áður. Því
vil ég meina að þessi
draumur þinn sé hrein og
bein óskhyggja. En lík-
kistan setur strik í reikn-
inginn, og er hún tákn
slæms fyrirboða, fjárhags-
legs tjóns eða jafnvel
dauða ástfólgins vinar-
SVAR TIL RÖSU:
Draumur þinn er fyrir
mikilli hamingju og far-
sæld í öllu því sem þú
munt taka þér fyrir hend-
ur í nánustu framtíð; ekk-
ert í honum bendir til
langvarandi né alvarlegra
erfiðleika.
FÁNINN
STÖÐ UPP OR
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi, að ég væri
búin að hengja upp þvott
á snúrur, sem stóðu við
sjávarbakka. Á snúrunum
18 VIKAN 30-tbl-