Vikan - 24.07.1969, Qupperneq 23
ur reyktan lax. Þá er auðveld-
ara að fá þunnar og fínar
sneiðar.
Gott er að nota hárgreiðu
til þess að halda naglanum ef
við þurfum að reka nagla í
vegg og erum hræddar um
fingurna. Þá er bara að styðja
við greiðuna og hættan verð-
ur sáralítil.
ílát, sem ekki heldur vatni get-
ur verið skemmtilegt blómaílát
og þá er ekki annað en láta
blómin fyrst í sultuglas, skyr-
ílát, kökuform eða hvað annað
þétt ílát, sem blómin og karfan
svo hylja sameiginlega.
Þessi smápistill er engin til-
sögn í blómaskreytingu, heldur
ætlaður til þess að vekja athygli
á þeim skemmtilegu möguleik-
um sem blómin gefa í sjálfu sér.
Það gefur mikla ánægju að
reyna sig með ýmiss konar nið-
urraðanir, fikra sig áfram, at-
huga myndir af blómaskreyting-
um og blómin sjálf, þar sem þau
vaxa, þau gefa oft vísbendingar
sjálf.
Nokkrar myndir eru hér á
síðunum, því miður eru þær all-
ar erlendar, en hugmyndir er
hægt að fá um niðurraðanir og
blóm í svipuðum dúr er víða
hægt að finna hér, svo og gras
og lauf. Góða skemmtun!
☆
GOTT AÐ VITA
Til þess að draga úr hávaða
í hrærivél eða síma er gott að
klippa til hæfilega stórt
svampgúmmí, sem síðan má
klæða með skemmtilegu efni
og láta hrærivél eða síma
standa á, það dempar hljóð-
ið.
Það hressir mikið upp á
gúmmístígvél, sem farin eru
að láta á sjá, að bera á þau '
gott gólfbón, gjarnan fljót-
andi.
— o —
Gott er að búa til saman-
brotna lengju úr álpappír og
vefja neðst utanum ostinn, sé
hann borinn í heilu stykki á
borð og ætlazt til að hver
skeri sína sneið.
Þannig þarf ekki að hand-
leika ostinn sjálfan.
— o —
Nokkrir ediksdropar, sem
látnir eru drjúpa á heita raf-
magns- eða gasplötuna, taka
mest alla matarlykt úr eld-
húsinu.
— o —
Frosið kjöt er oft orðið
bragðlítið um þetta leyti árs,
reynið að láta ögn af mys-
ingi í sósuna, það skerpir sósu-
bragðið.
Síldarlykt er oft erfitt að
ná burt úr plastílátum. Reyn-
ið að láta kaffikorg standa
í ílátinu yfir nótt a.m.k. og
þvoið síðan á venjulegan
hátt.
— o —
Nuddið matarolíu á hníf-
inn ef þið eruð að sneiða nið-
3o. tbi. VIKAN 23