Vikan


Vikan - 24.07.1969, Side 29

Vikan - 24.07.1969, Side 29
DUSTY Dusty Springfield hefur ástæðu til að vera hress þessa dagana. Hún lét nýlega frá sér fara 12 laga plötu, sem hefur hlotið slík- ar viðtökur, að fátítt er. Platan, sem var hljóðrituð vestan hafs, heitir „Dusty in Memphis'*. Þyk- ir söngur Dusty með miklum ágætum á þessari plötu, sömu- leiðis útsetningar laganna og þá ekki hvað sízt hljóðritunin, sem að sögn manna, sem telja sig Framhald á bls. 36. SIMON OG GARFUNKEL Kýjasta lagi Simon og Gar- funkel, „The Boxer“, hefur vegn- að vel á vinsældalistunum að undanförnu. Þetta lag er að sjálf- sögðu eftir Paul Simon, eins og Framhald á bls. 45. TOMMI GERIR LUKKU VESTRA Tom Jones hefur heldur betur spjarað sig vestan hafs að und- anförnu. Hann hefur komið fram á skemmtistöðum í New York og Las Vegas og gert slíka lukku, að elztu menn muna ekki annað eins. í New York kom hann fram í hinum fræga skemmtistað „Copacabana" og er í frásögur fært, að enginn skemmtikraftur, sem þar hefur komið fram, hafi fengið jafn háa greiðslu og Tom. Forráðamenn skemmtistaðarins líktu Tom við Frank Sinatra, þegar hann var upp á sitt bezta. Slík var hrifning manna, að jaínvel ráðsettar konur á miðj- um aldri skríktu af gleði, þegar g'oðlð birtist í sviðsljósinu. Frá Few York hélt Tom til Las Vegas, og þar kemur hann fram um þessar mundir í skemmti- staðnum Flamingo, sem er einn þekktasti skemmtistaður þar um slóðii' en ekki að sama skapi til- komumikill að sögn. Þótt gestir verði að greiða morð fjár til að sjá Tomma virðist enginn horfa í aurinn, því að á hverju kvöldi verða hundruð manna frá að hverfa. Þetta mun vera einsdæmi í sögu þessa rótgróna skemmti- staðar. í næstu skemmtihúsum úir og grúir af eftirsóttum og vinsælum kröftum, þar eru m.a. Andy Williams og Ray Charles, en þeir þykja nú gamaldags sam- anborið við Tom Jones. Ekki er að efa, að sjónvarps- Framhald á bls. 45. a FIMMTA VIDBIN Bandaríski söngflokkurinn „5th Dimension“ hefur hlotið miklar vinsældir fyrir tvö lög úr hinum umtalaða söngleik „Hair“. Lögin eru „Aquarius“ og „Le The Sun Shine In“, tvö vin- sælustu lögin í söngleiknum fléttuð saman í eina heild. Lögin komust á skammri stundu í efsta sæti vinsældalistans vestan hafs, en þau hafa furðu lítið heyrzt hér á landi. Söngflokkurinn „5th Dimension“ er löngu þekktur fyrir frábæran söng, og hafa sumir talað um „Mamas og Papas“ í sömu andrá. Þótt stíll þessara tveggja flokka sé ámóta, ber flestum saman um, að „5th Dimension" hafi vinninginn. Þess má geta, að bandaríski lagahöf- undurinn Jim Webb hefur mikið dálæti á „5th Dimension“, og vinsælustu lögin sín hefur hann samið fyrir þennan söngflokk. Má nefna m.a. lagið „Up up and away“. Líka hefur John Philips í „Mamas og Papas“ samið lög fyrir flokkinn, m.a. „Go Where You Wanna Go“, en það komst í efsta sæti vinsældalistans vestra. „5th Dimension" hafa sent frá sér nokkrar hæggengar hljómplötur, og hafa þær verið fáanlegar í hljómplötuverzlun- um hér. Þess má geta til gamans, að meðan Hljómar voru og hétu, höfðu þeir mikið dálæti á „5th Dimension" og höfðu mörg laga söngflokksins á efnisskrá sinni. ☆ T in . 30. tw. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.