Vikan - 24.07.1969, Síða 30
SlDAN SIBAST
Gorille í lýii starfi
V--------------—----'
Tarfurion
kosstor
Velta nautaatanna á Spáni er
nú orðin yfir 2125 milljónir
króna á ári, en áhorfendum fer
sífellt fækkandi. Er nú komið
svo, að áhorfendabekkirnir, sem
eitt sinn voru ætíð yfirfullir, eru
hálftómir.
Óánægja Spánverja stafar fyrst
og fremst af því, að þeim þykja
nautabanarnir ekki vera nægi-
lega hugrakkir nú til dags, og í
Sevilla var talað um að það
væru nautabanarnir sem væru
hræddir en ekki nautin. Þá eru
nautin einnig yngri en þau voru
áður og horaðri, alin á fiskimjöli
og sojabaunum, sem verður að
fitu í stað vöðva. Áður fengu
þeir að ráfa um og éta sig pakk-
sadda af grasi. Af 200 nautum
sem hafa verið notuð í nautaatið
undanfarið, var búið að saga
hornin af nærri því fjórðungi
þeirra.
En öðru hvoru koma fyrir
spennandi atvik á leikvellinum,
eins og meðfylgjandi myndir
sýna. Það er sá frægi „torero“
Miguelo, sem hér er að kljást
við naut í Las Ventas-leikvang-
inum í Madrid, og var hugmynd
hans að kyssa á horn nautsins.
Eftir myndunum að dæma var
nautið ekkert hrifið af svona
keleríi, og gaf ofurhuganum ör-
lítið stuð. Hann slapp þó ómeidd-
ur. ☆
Maðurinn með sígarettuna
heitir René Serre og veitir for-
stöðu drengjaheimili — fyrir þá
drengi, sem önnur drengjaheim-
ili hafa gefizt upp á.
Ferill hans áður en hann hóf
þetta starf sitt var fremur ó-
venjulegur. Hann tók þátt í að
frelsa Fransara frá nasistunum
og síðar barðist hann í Indó-
Kína. Þegar hann lauk herþjón-
ustu tók hann til við að skipu-
leggja lífvörð de Gaulle, og varð
sjálfur einn harðasti liðsmaður-
inn í þeim lífverði, sem gekk
undir nafninu „Gorillurnar". En
hann var sjálfur alinn upp á
svona heimili, og skildi því vel
þörf þessara drengja, sem höfðu
orðið eitthvað utanveltu í lífinu.
☆
Mennskir
ferOatékkar
Þingmaður úr neðri málstofu
brezka þingsins, Sir Douglas
Glover, hélt því nýlega fram, að
margir pílagrímar á leið frá Af-
ríku til Mekka notuðu „mennska
ferðatékka“ til að standa undir
kostnaði við þessa för, sem hver
rétttrúaður múhameðstrúarmað-
ur telur skyldu sína að fara að
minnsta kosti einu sinni á æv-
inni.
Segir sörinn, að pílagrímarnir
taki með sér þjónustustúlku, sem
þeir síðan geti selt í Saudi-Arab-
íu fyrir allt að 220.000 íslenzkar
krónur, sem er nægileg upphæð
til að kosta þessa dýru ferð. Kall-
ar þingmaðurinn þetta þrælasölu,
og ætlar sér að leggja málið fyr-
ir Sameinuðu þjóðirnar og aðrar
alþjóðastofnanir. ☆
/ '
Gamla konan stóð fyrir fram-
an spegilinn og taldi á sér hrukk-
urnar. — Ef maður gæti nú bara
orðið ung í annað Sinn, andvarp-
aði hún, og í sama bili stóð hjá
henni undurfögur álfamær sem
sagði: — Eg skal uppfylla ósk
þína. Umbra dumbra gumbra
sumbra — og í sama bili varð
gamla konan að bráðungri og
fallegri stúlku. — Ef þú verður
fljót að ákveða þig, bætti þá
álfamærin við, — skal ég veita
þér aðra ósk. Hin nýtöfraða ung-
mær benti af bragði á kött, sem
lá í sólinni í glugganum og sagði:
— Gerðu hann þá að ungum og
fallegum pilti.
Aftur fór álfamærin með töfra-
orðin, og í þeim töluðum varð
kötturinn að ungum og fallegum
pilti, sem stökk til og þreif ung-
meyna í fangið. Hann laut yfir
hana ástríðuheitur og hvíslaði:
— Nú kemur það þér í koll,
væna mín, að þú lézt gelda mig
í haust! *
V________________________________
Einu sinni fór maður til sál-
fræðings í geðrannsókn. Til að
reyna að komast til botns í sálar-
lífi mannsins teiknaði sálfræð-
ingurinn hring á blað og spurði
hann, hvað þetta myndi tákna.
— Þetta er karl og kona, og þau
eru að kyssast, svaraði maðurinn.
Þá teiknaði sálfræðingurinn þrí-
hyrning, og spurði, hvað hann
myndi eiga að tákna. — Það er
augljóst, svaraði maðurinn, —
nú er hann að tæta af henni
spjarirnar. Þá teiknaði sálfræð-
ingurinn ferhyrning, og spurði
sem fyrr, hvað sú teikning myndi
eiga að sýna. — Það leynir sér
ekki, svaraði maðurinn. — nú
eru þau komin upp í ból og....
Þá lagði sálfræðingurinn frá sér
blýantinn og sagði: — Það leynir
sér ekki, góði maður, þér eruð
kynóður. — Eg kynóður? hróp-
aði mannauminginn. — Það vor-
uð þér, sem teiknuðuð allar þess-
ar klámmyndir! ☆
30 VIKAN 30- tbl-
‘•/•‘W.-.yy/M.-.