Vikan - 07.08.1969, Page 20
DREPLEIDINLEGUR OG STORVINSÆLL
ans, og sú eldri, Tricia, hvikar ekki
frá því að hún sé ósköp hversdags-
leg og venjuleg stúlka, sem af til-
viljun einni saman eigi heima í
Hvíta húsinu. Því hefur heyrzt
fleygt að eitthvað sé á milli þeirra
Barrys Goldwaters yngra, sonar
senatorsins fræga frá Arizona, en
þau sjálf og aðstandendur þeirra
vísa öllum spurningum þar að lút-
andi á bug með fyrirlitningu. Raun-
ar kváðu þau ekki hafa sézt nema
einu sinni; í miðdegisveizlu í Hvíta
húsinu, þar sem Barry var borð-
nautur Triciu.
Samkvæmt frásögn eins gestsins
fóru leikar með þeim sem nú skal
greina:
Barry: Þú ert dásamlega fögur.
Tricia: Þakka þér fyrir.
Barry: Þú hefur það fallegasta hár
sem ég hef nokkurn tima séð.
Tricia: Þakka þér fyrir.
Barry: Það væri gaman að fá að
sýna þér Kaliforníu.
Tricia: Eg er fædd í Kaliforníu.
Um tólfleytið voru þau komin sitt
Hjá honum ganga starfsáætlanirnar
fyrir öllu. Heimurinn er varla of-
góður til að bíða.
út í hvorn enda herbergisins, skrif-
aði áðurnefnd Chesshire.
Nixon hefur gefið tengdasyni
sínum golfkylfurnar sínar og fer
sjaldan út í sundlaug Hvíta hússins,
þar sem Lyndon var vanur að busla
allsber.
— Ég fæ nóga hreyfingu við mál-
tíðir, sagði hann nýlega. — Þá hef
ég ærið erfiði við að ýta frá mér
matnum.
Forsetahjónin eru ekki á flæði-
skeri stödd með húsnæði, því að
þau hafa þrjár íbúðir, eina í Hvíta
húsinu, sumarbústað í Key Biscayne
í Flórída og hús í Kaliforníu, sem
kvað vera í einhvers konar spænsk-
um stíl. Oll eru heimili þessi mubl-
eruð samkvæmt dæmigerðum
bandarískum miðstéttarsmekk. Þar
eru stórir, litsterkir sófar, teppi út
í öll horn og meiningarlaus mál-
verk. Lyndon Johnson hafði látið
gera sér heimsins stórkostlegasta
sjónvarpssett, þar sem hann gat séð
fréttasendingar þriggja helztu sión-
varpsstöðva landsins samtímis. Nix-
on lét verða sitt fyrsta verk í Hvíta
húsinu að ryðja því út. Sömu leið
fóru fjarritarnir, sem Johnson hafði
haft til eigin nota. Nýi forsetinn
kunnur höfuðborgarblaðamaður ný-
lega. — Hann miðar allt við pró-
grömm og starfsáætlanir, og ekkert
annað. Dæmi: Fátæktin já, við ætl-
uðum að halda fund um hana á
fimmtudaginn. Nýju atómvopnin —
á prógramminú stendur að fundur-
inn um þau verði síðdegis á föstu-
dag. Og svo er það negrarnir —
ef ég man rétt átti það að vera á
laugardaginn. Og mitt í öllu þessu
lýsir hann því yfir að hann sé
þreyttur og þarfnist hvíldar — og
fer svo til nýja sumarhússins í Kali-
forníu og baðar sig. Ef einhver
kæmi æðandi til hans með frétt um
að rússneskar atómrakettur væru á
flugi til New York, myndi hann
sjálfsagt svara að því miður hefði
hann ekki tíma til að hugsa um það
núna, f járveitingin til varnarmála
væri ekki til umræðu fyrr en ! næstu
viku — samkvæmt prógramminu.
Smáborgaralegur, venjulegur, —
smámunasamur.
Lyndon Johnson bannaði mönn-
um að koma í veizlur í Hvíta hús-
inu í kjól og hvítu, en Nixon hefur
afnumið það bann. Kjólveizlur hans
eru hver annarri líkar. Hann sjálfur
og Pat — sem alltaf gleymir að
setja upp hið skylduga kampavíns-
bros — taka sér stöðu við dyrnar.
Gestirnir vappa inn í langri, stífri
röð og er skemmt með útþvældum
bröndurum, formlegum heilsunum
og fremur hversdagslegum mat.
Forsetinn hvorki drekkur, reykir eða
dansar, og á slaginu tólf hverfur
hann til einkaíbúðar sinnar til að
Ijúka sínum venjulega kvöldlestri.
Tónlistin er áberandi gamaldags og
gestalistinn venjulega sá sami. Eitt
sinn fékk forsetinn þá hugmynd að
rétt væri að bjóða einhverjum
þekktum djassleikara og valdi þá
Duke Ellington, sem stendur nú á
sjötugu.
Maxine Chesshire, fræg í hópi
þeirra blaðamanna í Washington er
um samkvæmislífið skrifa, hefur
sagt að forsetinn horfi alltaf feimn-
islega út í bláinn, þegar Joan, kona
Teddys Kennedys, sem mörgum
þykir falleg, sést meðal gestanna.
Joan Kennedy er hrifin af pínupils-
um, en það er Pat Nixon ekki.
Blaðadeild Hvíta hússins fullyrð-
ir, næstum móðguð ef aðspurð, að
forsetinn iðki engin tómstundastörf.
Hann á það til að horfa á kvikmynd-
ir (uppáhaldið er eins og vænta
mátti Sound of Music) og sjónvarp,
en les ekki fagurbókmenntir og
hefur andstyggð á leikhúsum. Um
aðra meðlimi fjölskyldunnar er enn
minna vitað hvað þetta snertir. Pat
kvað að vísu vera góðgerðasamasta
frú í Washington, eins og vera ber
um konu í hennar stöðu. Yngri
dóttirin Julie er svo til horfin úr
heiminum síðan hún giftist David
Eisenhower, sonarsyni gamla forset-
Nixon-hjónin í sunnudagsferð með
aðra dótturina í bernsku. Nú eru
þær báðar uppkomnar og önnur gift
sonarsyni Eisenhowers.
20 VIKAN 32 tbl-