Vikan - 07.08.1969, Side 39
hemlunum á bíl Jims, og hann
sat á sér að hlaupa ekki til og
opna fyrir Cathy. Hann fór með-
alveginn, stóð við stigann í and-
dyrinu. Hann heyrði að hún
stakk lyklinum í skrána, og í
sömu svipan var hún komin inn.
Um leið og hann sá hana, vissi
hann. Með hressilegu brosi reyndi
hún að dylja sársaúkann. Ó,
Cathy, hugsaði hann, — hvað
hefur skeð?
Hún reyndi að vera kæruleys-
isleg og sagði: — Hæ, pabbi, og
röddin var hálfri áttund ofar en
hún átti að sér.
Fjandinn hafi það, hversvegna
gat hann ekki tekið þessu skyn-
samlega og farið upp að hátta?
Það var þetta afskræmda bros
hennar. — Ætlarðu ekki að
spyrja mig hvernig ég skemmti
mér? sagði hún og fór úr káp-
unni. Hún var vön að fleygja
henni á stól, en nú hengdi hún
hana snyrtilega upp.
— Já, var gaman? Hann von-
aði að hans eigin svipur gæfi
ekkert til kynna. Ef hún ætlaði
að láta sem ekkert væri, þá ætl-
aði hann að gera það líka.
— Já, hljómsveitin var góð,
þeir voru verulega svalir. Hún
settist niður í neðsta þrepið í
stiganum. — Hljómsveitarstjór-
inn var agalega spennandi, með
hár alveg niður á axlir. Og hann
söng líka vel.
— Það var svei mér gaman.
Hún leit upp. — Charlie Mit-
chell dansaði ekki við mig. Það
heyrðist varla nokkur tirtingur
í röddinni. — En við stelpurnar
skemmtum okkur vel saman. Við
dönsuðum saman, raunar ekki
saman, það veit enginn nú hver
dansar við hvern. Nema í hægu
dönsunum. En það eru bara
krakkarnir sem eru saman, sem
dansa þá. Hún hélt áfram, lýsti
skreytingunum, hvernig hver var
klæddur, hún talaði, eins og
þögnin yrði henni kvöl. Og allan
tímann leit hún út eins og lítið,
yfirgefið barn.
EATHA-HAKA 500 er •éntak-
lega hljóSelnangruS. — Gatur
otaOlO hrar aon ar in þaaa aO
yalda hávaOa.
Öruggarl en nokkur önnur
gagnvart forvltnum bömum og
ungllngum.
HurOlna er ekki hœgt aO opna
fyrr en þeytlvindan or STÖÐV-
UÐ og dælan búln aO
vélina.
RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yOar mun ávallt skila yOur full-
komnum þvotti ef þér aOelna gætiS þees aS nota rétt þvottakerfl,
þ. e. þaS sem viS á fyrir þau efni er þér ætliO aO þvo.
MeS hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og aG auki sjálfstæSu
þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yflar.
Þvottakerfin eru:
1. Ullarþvottur 30* 7. ViObótarbyrJunarþvottur 90*
2. ViOkvæmur þvottur 40* 8. Heitþvottur 90”
3. Nylon, Non-Iron 90* 9. LitaSur hör 60°
4. Non-Iron 90° 10. Stlfþvottur 40°
5. SuSuþvottur 100* 11. Bleiuþvottur 100*
6. Heitþvottur 60” 12. Gerviefnaþvottur 40”
Og aS auki sérstakt kerfi fyrlr þeytivindu og tæmingu.
En hún var ekki lítið barn, og
það var það sorglega við það.
Fyrir skömmu síðan hefði hann
getað tekið hana í faðm sér,
kysst á sára blettinn, en nú gat
hann ekkert að, gert. Áður hafði
hann getað rekið á brott erfiða
drauma, með því að tala blíð-
lega við hana. Hann hafði getað
fullvissað hana um að hún myndi
ekki deyja þótt tekinn væri úr
henni botnlanginn, en nú var
hann hjálparvana.
— Og svo spiluðu þeir síðasta
lagið, og ég sá að ballið var að
verða búið, og Charlie Mitchell
ætlaði ekki að dansa við mig.
Hann var hinum megin í saln-
um, og hann leit ekki einu sinni
í áttina til mín.
Jerry var líka hræddur við
þögnina.
— Það getur verið að hann sé
feiminn, sagði hann, og hugsaði
HllflB ER flBKIH HflHS HÍA?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Siðast er dreglð var hlaut verðlaunin:
Starfsstúlkur Vöggustofunnar við Hlíðarenda.
Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar.
Nafn _ _____
Heimili
32.
Örkin er á bls.
32. tbi. VIKAN 39