Vikan - 11.09.1969, Síða 4
SPAKMÆLI
SIÐAN
SÍÐAST
Því sem sínkur saman dregur,
kemur ómildur og eySir.
# fólk í fréttunum
PÁLL PÁFI VI. hefur nú lent í vandræð-
um með einkaher sinn, sem samanstend-
ur af 150 hermönnum, þar af 7 foringj-
um. Segja hermenn hans heilagleika, að
laun þeirra, sem eru 98.000,00 lírur á
mánuði séu vart fyrir salti í grautinn,
og hóta að fara í verkfall fái þeir ekki
kauphækkun.
Her þessi er talinn einn sá albezti í
heiminum; það er að segja, hermennirnir
eru bezt agaðir. Undanfarin 150 ár hefur
sérlegur fulltrúi páfans valið þá sjálfur
(ekki alltaf sami maðurinn, þó) úr þús-
undum rómverskra hermanna. Og áður en þeir eru teknir inn í her-
inn, eru þeir látnir sverja að þeir muni ekki hverfa úr hernum
nema þeir ætli að gifta sig.
Páfinn hefur reynt að leysa vandann með því að bjóða hermönn-
unum að skipta á milli sín tveim milljónum líra í eitt skipti fyrir
öll, og eins að þeir verði aðeins frjálsari, en þeir hafa neitað slíkum
ölmusum, og bent á, að páfinn hafi talað um það í Genf, að koma
yrði á réttlæti milli vinnuveitenda og launþega: Nú getur hann sýnt
það í verki, segja þeir.
HÓPUR UNGMENNA stóð fyrir utan
heimili Tedda Kennedy í Hyannis Port,
á Þorskahöfða og krafðist betri skýring-
ar á atviki því sem allir tala nú um, er
Mary Jo Kopechne drukknaði í bíl hans
eftir partý á eyju fyrir utan strönd
Massachusetts. —■ Víða um Bandaríkin
kom í ljós augljós gremja og óánægja
með sjónvarpsræðu Kennedys eftir slys-
ið, og voru þessi ungmenni vafalítið full-
trúar þess hóps. Annar hópur unglinga
réðst á móti andmælendunum, — stúlka
nokkur kastaði eggi en annars gekk allt
NÝJASTA SKAMMARYRÐI fyrir Banda.
ríkjamenn er „geimsvaldasinnar“. Þeir
fara heldur ekki leynt með það, að þá
langar geysilega að lenda á Mars — nú
eftir að þeir hafa lent á tunglinu. Wern-
her von Braun segir að það geti vel skeð
á árinu 1982, svo lengi sem þeir fái næga
peninga til geimferðarannsókna.
Hugmyndir teiknarans um Mars-skipið
byggjast á þeim er von Braun hefur lát-
ið frá sér fara. Farið verður að vera
knúið kjarnorkueldflaugum, og þar sem
ferðin til Mars og heim aftur getur tek-
ið meira en eitt ár, verður að vera mun þægilegra og heimilislegra
um borð í þeirri ferju en Apollo. (Skissan til vinstri sýnir afstöðu
nágranna okkar í himingeimnum til sólar). Örlítið varkárari sér-
fræðingar nefna fremur ártölin 1985—‘6 sem hugsanleg fyrir Mars-
lendingu. ☆
/v-Áý rÁÁ'
STRÍÐIÐ SEM ALDREI TEKUR ENDA
í meira en 9 þúsund ár hefur
mannskepnan barizt við engi-
sprettur með öllum hugsanlegum
aðferðum og enn í dag er sigur-
inn ekki unninn. Á hverju ári
eyðileggja þessar skaðræðispödd-
ur fyTir tugi milljóna króna á
dollara ofan, og einkum á þeim
svæðum þar sem fólkið má verst
við því.
/-----------------:----------->v
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Veljerðarríki er þjóðfélag,
þar sem karlar og konur
hafa sama kawp, nema
hvað konan verður að
vinna tíu sinnum lengur
heima hjá sér.
V______________________________j
En framfarir eiga sér alltaf
stað og í London er til stofnun
sem einbeitir sér að því að drepa
og uppræta þessar skepnur, þ.e.
engispretturnar, Anti-Locust Re-
search Centre. Þúsundir engi-
spretta eru aldar upp í rannsókn-
arstofum fyrirtækisins og þar
pota vísindamenn í þær alveg
villt og galið. Eitt orðugasta við-
fangsefnið í sambandi við þess-
ar rannsóknir er að reyna að
komast að hvaða hormónar það
eru í líkama engisprettunnar sem
stjórna þeirri eðlishvöt þeirra
að safnast saman í hópum sem
telja milljónir. Annað verkefni
er að gera tilraunir með kemísk
efni sem notuð eru til að eyða
þessum óþverra, og ef miðað er
við staðreyndir, er ekki hægt að
segja annað en að það hafi bor-
ið góðan ávöxt: Fyrir 20 árum
síðan þurfti 4—5 lítra eiturs til
að drepa ca. 3000 engisprettur en
í dag má, með sama magni, binda
endi á líf allt að þriggja milljón
padda.
☆
4 VIKAN
37. tbl.