Vikan


Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 44

Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 44
Þotuflug er ferðamáti nútímans - HVERGI ÓDÝRARI FARGJÖLD FLUCFÉLACISLANDS FORYSTA í ÍSLENZKUM FLUGMÁLUM / ---------------------------- Nútíminn gerir fyllstu kröfur til hraða og þæginda á ferða- lögum og þota Flugfélagsins uppfyllir þær. Ferðin verður ógleymanleg, þegar þér f Ijúgið með Gullfaxa. 13 þotuferðir vikulega til Evrópu í sumar. I____________________________/ ÞJÓNUSTA HRAÐI ÞÆGINDI arfatnað fyrir útlenzka frú, sem koma frekar klæðalítil til eyjar- innar. Saumakonur á staðnum saumuðu fötin, og þar með var hann búinn að fá frægðarorð sem tízkumeistari. Það var ekki ein- göngu á Capri að það orð fór af honum, heldur alla leið til frönsku Rivierunnar og Porto- fino. Emilio Pucci var orðinn fræg- ur, og fyrirspurnir frá vinum og kunningjum og fínum smábúð- um (boutiques) komu honum til að setja upp vinnustofu í Flor- ens. Og þegar ítalska tízkan var fyrst sýnd í heimaborg hans, ár- ið 1950, þá var tízkuhús hans löngu orðið þekkt um heim all- an. Markgreifinn í Florens fram- leiddi hentugan fatnað handa ný- tízku konum, sem stöðugt voru á ferðinni og allsstaðar með. — Áður var tízkan nokkuð stöðnuð, en hinar frjálslegu kon- ur nútímans þurfa hentug föt, sem hindra ekki eðlilegar og frjálsmannlegar hreyfingar. Glæsileg kona á að hafa falleg- an limaburð og frjálsmannlegar hreyfingar, og fötin mega ekki hindra það. Emilio er mjög hugmyndarík- ur, og mjög litaglaður. Þeir litir sem hann hefir mestar mætur á eru: kóralrautt, Capriblátt, möndlugrænt og Emilio-rautt. Herrarnir geta líka fengið mjög litskrúðug hálsbindi, (allt of lit- skrúðug, finnst sumum), skyrtur og sokka. Á hverju ári sendir Emilio Pucci frá sér tvær send- ingar af fatnaði, hver þeirra meira en 500 snið. Hann sýnir alltaf fatnað sinn, áður en tízku- meistararnir í París fara á stúf- ana, og þá safnast kaupendur allsstaðar að úr heiminum. Flest- ar af þekktustu konum heims kaupa fatnað hjá Pucci, þar á meðal Jaqueline Onassis, Liz Taylor, prinsessurnar Grace af Monaco og Margrét Bretaprins- essa. Hann segist haga tízkufatnaði sínum aðallega eftir sólskins- löndunum, fyrir lífið í sólinni. í sólinni glitra konur Pucci eins og eðalsteinar, og hann seg- ir: — Þegar Guð skapaði fílinn og / nashyrninginn, þá færði hann þá í gráan hjúp, en þegar hann skapaði kolibrifuglinn og para- dísarfuglinn, þá notaði hann alla regnbogans liti. ☆ V._________________________________________________________——______________________________' 44 VIKAN 37- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.