Vikan


Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 27

Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 27
þetta starf er fyrir ungt og lifandi fólk, enda eru sífellt fleiri að fá áhuga á því. Ég kenndi einn tíma í viku í háskólanum í fyrravetur og býst við að gera það aftur í vet- ur. Nemendur mínir voru aðeins fjórir (í bókasafnsfræðum), mjög áhugasamir og skemmtilegir. Ég held að fólk sé æ meira að gera sér grein fyrir því, að bóka- söfn eru ekki bókageymslur, held- ur mennta- og menningarmiðstöðv- ar. Á Borgarsjúkrahúsinu fer einnig fram svolítið sérstök starfsemi, sem sé útvarp. Hingað til hefur aðeins verið útvarpað þrjá tíma í viku, en við vonumst til að geta aukið það eitthvað í nánustu framtíð. Tvær dagskrár eru sendar úr útvarps- herbergi spftalans, og einnig er út- varpað kvöldvöku geðdeildar, en Jón AAúli hefur veg og vanda af þeim samkomum. Þessar dagskrár samanstanda af tónlist, sögum, Ijóð- um og þar fram eftir götunum; — mörgu eftir sjúklingana sjálfa, og þá lesa þeir stundum eigin verk. Ég veit af svona sjúkrahússút- varpsstöð í Stokkhólmi, og nýlega barst mér bréf ásamt úrklippum frá þeim sem hefur með það að gera, bar sem sagði meðal annars, að betta væri svo virt og vinsælt þar f borqinni, að jafnvel vinsælustu Ég neut ekki dvalarinnar sem skyldi . . . skemmtikraftar byðust hreinlega til að koma þar fram endurgjaldslaust. Og einu sinni í viku er heilmikil dagskrá, eingöngu með þekktum skemmtikröftum." Mér verður á að spyrja Kristínu hvenær hún sofi; hún getur naum- ast haft mikinn tíma til að gera neitt annað en að vinna. Hún brosir viðkunnalega, bros- inu sem allir þekkja, og segir hæ- versklega: „Jú, ég sef alveg nóg og mér finnst að konur eigi að vinna af öllum kröftum að sínum áhugamálum. Það er það sem okk- ur vantar hér: Konur sem taka virk- an þátt í uppbyggingu þjóðfélags- ins, þingkonur og annað. En ég skal viðurkenna það, að éq hef takmarkaðan tíma til að skemmta mér, og hefur það verið bannig alveg síðan ég lauk námi. Fn eins og ég seqi, þá er drengur- inn númer eitt, þá starfið oa síðast éo. Oq þó maður hafi yfirleitt aldr- ei nægan tíma til að gera hlutina eins og maður vildi qera þá, finnst mér ég aldrei vera f tímaþröng Éq les töluvert, eins og starfið reyndar krefst, og þá mest bók- menntir viðvfkiandi faainu. En ég nr nÞI<i eins on sumir kollegar mín- ir sem lesa allt spjaldanna á milli. Fo les bað sem éq hef áhuga á og annað ekki." . . . sonurinn var eftir heima, og á mér var betra að tala sem minnst um hann. Við fáum okkur aftur í bollana og höldum áfram að spjalla f stíl- hreinni og látlausri stofunni heima hjá Kristínu, þar sem hún býr ásamt syni sínum í Drápuhlíðinni. Það er komið víða við, og áður en við vit- um af hefur stóri vísirinn farið allt- of langt fyrir önnum kafna Kristínu og pakksadda VIKU-menn. Því þökkum við fyrir okkur og kveðjum húsráðanda, Kristínu H. Pétursdóttur, sjónvarpsþulinn sem er bókavörður, kennir bókasafns- fræði við Háskóla fslands og hefur ótal fleiri störf með höndum. Þú þekkir hana. Hún brosir til þín í hverri viku — á skermi stofu- stássins. ó. vald. 37. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.