Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 7
það gerði það nú samt, og nú
veit ég ekki hvert ég á að senda
peningana.
Með fyrirfram þökk.
G.R.
Dagblöffin og Biskupsskrifstofan
taka á móti svona áheitum. —
Mundu samt, aff ekkert er
ómögulegt á þessum síffustu og
verstu tímum!
Viðtalið við Vilhjálm
Pósturinn, Vikan!
Í!g hef undanfarið verið að
dunda við að lesa Vikuna mér
til dægrastyttingar og skemmt-
unar; í sem fæstum orðum vil ég
segja að sú viðleitni hefur bor-
ið nokkuð góðan árangur. En
svo fór ég að lesa viðtalið við
hann Vilhjálm Vilhjálmsson, og
til að hafa líka sem fæst orð um
það, þá vil ég leyfa mér að meina
að það sé uppspuni frá rótum —
eða svo gott sem. Og þessum
parti þarna um dáleiðsluna trúi
ég alls ekki. Það þarf ekki nokk-
ur maður að segja mér að Vil-
hjálmur hafi í rauninni dáleitt
hann — og allra sízt eftir allt
sem þessi blaðamaður er búinn
að vera að fíflast í sumar.
Segðu mér nú eitt, Póstur góð-
ur: (Og án útúrsnúninga). Var
ekki viðtalið, eða allavega þessi
dáleiðslu-hluti, einber tilbúning-
ur?
Kveðja, Dubious.
Nei, Dubious minn, hvert ein-
asta orff sem í viðtalinu var, er
eins satt og þaff getur framast
veriff. Vilhjálmur dáleiddi blm.
í raun og veru, og þó þaff hafi
ekki veriff nákvæmlega eins og
maffur hafffi hugsaff sér dá-
leiffslu, þá getur hann dáleitt.
Og meffal annarra orffa: Hvaff
meinar þú meff því að blm. hafi
veriff aff fífiast?
Ern öldungur
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áð-
ur, en nú er ég í svo miklum
vandræðum að þú verður að
hjálpa mér hvað sem það kost-
ar. Ég er 20 ára og er búinn að
vera með stelpu í 3 mánuði; hún
er nú farin að koma mikið heim
með mér og sefur þar stundum.
Foreldrum mínum líkar mjög
vel við hana og einnig afa mín-
um sem er á heimili okkar (ég
er einkabarn).
En nú kem ég að kjarna máls-
ins: Foreldrar mínir fóru norður
á Akureyri um daginn og ég átti
að gæta hússins og afa á meðan,
en þar sem ég fékk ekki frí frá
vinnu bauðst vinkona mín til að
vera heima. Foreldrar mínir
samþykktu það og einnig afi,
sem ekki taldi verra að hafa
unga blómarós í námunda við
sig.
Svo er ekki meira um það, þau
fara til Akureyrar, og ég í vinn-
una (ég vinn á sendibíl). Um 5
leytið fer ég með vörur í hús við
sömu götu og við búum í; mér
lá ekkert á svo ég stanzaði við
okkar hús fyrst. Enginn var í
eldhúsinu er ég kom inn og
ruggustóll afa stóð auður. Ég
gekk inn í stofu, þar var eng-
inn heldur. Mér dettur þá í hug
að þau hafi bæði lagt sig, því
afi fær sér oft blund á daginn,
og ég læðist að svefnherberg-
inu til að vekja þau ekki (afi er
mjög svefnstyggur). Það sem ég
sá hverfur mér aldrei úr huga.
Vinkona mín (unnusta) og afi
lágu í hjónarúminu, hálf-nakin
og veittust hvort að öðru. Ég
vissi ekki hvort ég ætti að hljóða
eða drepa þau bæði, en ákvað
samt að læðast burt sem ekkert
hefði í skorizt. Það gerði ég, og
er ég kom heim úr vinnunni um
kvöldið leit út frá þeirra hálfu,
sem ekkert hefði gerzt, og auð-
vitað minni líka. Á ég að hætta
við stelpuna eða láta þetta gott
heita?
P.S. Afi er níræður.
Toppías.
Ja, þaff er eins gott aff afi þinn
er ekki á elliheimilinu! En mér
finnst alveg sjálfsagt aff þú
reynir aff tala viff þau fyrst —
þaff er aff segja áffur en þú drep-
ur þau, sem er heldur óráfflegt.
Ef þau láta sér ekki segjast, þá
skaltu fá þér affra dömu; þú
verffur víst aff sitja uppi meff
sama afann, þó það verffi varla
mikiff lengur ef hann heldur
svona áfram.
Hitt er annaff mál aff ég trúi
ekki einu einasta orffi af þessu
bréfi þínu. Ef ég hef rangt fyrir
mér, þá skal ég skrifa um þig
minningargrein einhvern tíma
— vonandi ekki nærri strax.
Meffal annarra orffa: Gerir þú
mikiff af því aff skrifa nafnlaus
bréf?
Strákurinn, sem ég er meS,
gaf mór minnsta kveikjara sem
ég hef séS — svo lítinn aS óg fæ
varla nógu litla steina I hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti ( siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man óg,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eSa strákinn.
Ég er alltaf aS kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
meS ýmsum hætti.
En eld þarf ég aS hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
Mig langar svo í einhvern af þessum
MUady gas kvelkjari
Comet gas kveikjarl
Adonis gas kveikjari
Emprcss gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 sekúndur, og endist svo mánuðum skiftir. Og
kveikjarinn. — Hann getur enzt aS eilifu.
RONSON
Einkaumboð:
I. Guðmundsson i Co. hf.
37. tbi. viKAN 7