Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 5

Vikan - 11.09.1969, Side 5
0 vísur vikunnar Braut vor er sjaldan blómum stráð og breytileg sjónarmiðin hjá stórveldunum er stöðugt háð stríð til að vernda friðinn. Úrskeiðis gengur ýmsum flest ætli þeir gagn að vinna og yfirleitt ber nú einna mest á óspektum friðarsinna. Þrátt fyrir heit og hávært raus af hólminum margir renna og fyrir skömmu varð fjandinn laus í Friðarsamtökum kvenna. V____________________________________________J SKRÍMSLIÐ í LOCH NESS SÝNIR SIG EKKI ENN BEINAFUNDUR LEYSIR GAMLA GÁTU Gáta, sem austurríska saka- málalögreglan hefur glímt við í 50 ár, leystist á óvæntan hátt er bóndi nokkur reif millivegg í einu útihúsa sinna. Þar inni fannst nefnilega beinagrind. Lögreglan var fljót að ákvarða að þetta var beinagrindin af bóndanum Jóhanni Gioessl. Sá hafði átt bæinn í eina tíð, og rekið þar myndarlegt bú, unz hann hvarf algjörlega sporlaust árið 1919, 73. ára gamall. Sonur hans, Franz, tók við búskapnum — og frillu föður síns, hinni 35 ára gömlu Katrínu Stadtschmidz- er. Lögreglan hafði þau alltaf grunuð um að vera völd að hvarfi gamla mannsins, en aldrei fannst nokkuð lík, svo ekkert var á þau sannað. Nú hefur það verið gert; kaldhæðnislega fór svo að hvorki Franz né Katrína nutu „frelsis- ins“: Hann hengdi sig árið 1934 og hún lenti á vitlausraspítala um sama leyti. -fr • korn • Kurteisi: Að muna eftir af- mælisdegi konu sinnar, en gleyma, hvað hún er orðin göm- ul. • Góðverk: Þegar skáti býðst til að fylgja lögregluþjóni yfir götuna. • Grœnland: Land, þar sem norðurljós eru notuð í staðinn fyrir götuljós. • Hagl: Harðsoðin rigning. • Þj óðarauður: Peningaupp- hæð, sem íbúarnir skulda hver öðrum. • Stjómkœnska: Listin að fá vilja sínum framgengt, án þess að afla sér óvina. • Piparkarl: Maður, sem getur farið í sokkana sína í hvorum enda þeirra sem er. • Fullorðinn maður: Sá, sem er hættur að lengjast — nema á breiddina. • Sérfrœðingur: Læknir, sem getur vanið sjúklinga sína á að vera ekki veikir nema í heim- sóknartímanum hans. • Hagjrœðingur: Maður, sem hefur vísindalega þekkingu til að sýna fram á, að sala á jóla- trjám sé meiri í desember en maí. SAMMY DAVIS VIÐ GRÁTMÚRINN Bandaríski söngvarinn og leik- arinn Sammy Davis, Jr. var al- varlegur í bragði er hann heim- sótti ísrael í sumar. Hann heim- sótti m.a Grátmúrinn í Jerúsal- em og herbúðir í Jórdandalnum. — Sammy sagðist bæði vera hrærður og óstyrkur er hann sæi í fyrsta skipti það land sem hann hefði gert að eigin landi er hann snerist til gyðingdóms. Það gerði hann líka nokkuð sérstæð- an: Það eru ekki til margir ein- eygðir, blakkir Gyðingar. ☆ ÖRLAGARÍKT SUMARLEYFI Árið 1961 flýði Austur-þýzki landamæravörðurinn Bernd Hirtz til vesturhluta borgarinnar. Það- an fór hann til Múnchen, fékk góða og stöðuga atvinnu sem bif- vélavirki og fannst aftur gaman að lifa. En í sumar gerði hann mestu mistök ævinnar. Hann fór í sum- arleyfi til Ungverjalands, var gripinn af lögreglunni þar og af- hentur Ulbricht með það sama. í Austur-Þýzkalandi bíður hans nú 5 ára fangelsi fyrir liðhlaup. ☆ Skrýmslið alræmda í Lock Ness veigrar sér eitthvað við að sýna sig ennþá, en ferðamenn- irnir sem streyma til Lock Ness geta ekki kvartað yfir deyfð þar um slóðir. Þar morar allt í alls- konar fólki sem er að gera hinar og þessar rannsóknir. Og hver veit nema skrimslið eigi eftir að sýna sig eftir allt saman. Skiptir annars nokkru máli þó það sé platskrímsli? Nú á nefnilega að fara að taka kvikmynd við Lock Ness og skrímslið leikur þar nokkuð stórt hlutverk. En hið eina og sanna skrímsli þáði ekki hlutverkið, svo til bragðs var tekið að búa til annað. Verður það byggt úr fíb- erglassi og stjórnað af pínukaf- bát. Myndin á að fjalla um þann fræga Sherlock Holmes og viður- eign hans við „Nessie“. Á meðan heldur hinn 28 ára gamli Georgiubúi Dan Taylor, áfram að dútla við einsmanns- kafbátinn sinn, en á honum ætl- ar hann að leita skrímslið uppi, taka af því myndir og ef til vill bút af skrápunum, sem hann ætl- ar síðan að gera á rannsóknir. Ef Nessie blessunin finnst, það er að segja.... ☆ 37. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.