Vikan


Vikan - 11.09.1969, Qupperneq 15

Vikan - 11.09.1969, Qupperneq 15
 'X-':'-:yV varð til þess að alþjóðlegt hlutafélag fjárglæframanna undir forustu Leó- polds annars Belgíukonungs svældi undir sig Kongósvæðið, sem um síðir var gert að „fríriki" undir stjórn konungs. Stanley réðist [ þjónustu félags þessa og dvaldist í Kongó í rúm fimm ár. Á þeim tíma kom hann af stað áætlunarferðum gufubáta á Kongófljóti, reisti fjölda bækistöðva og lagði veg frá ósum upp að Stanleyspolli. Hann varð ekki síður guðlegur í aug- um hinna innfæddu en Livingstone, þótt ólíkur væri. Bula Matari köll- uðu undirmenn hans hann — það þýðir Bergbrjótur — og á sláandi vel við þennan ódrepandi þjark og hörkutól, sem hafði að lífsreglu að taka ævinlega erfið verkefni framyfir létt verk og löðurmannleg. Á þessum árum grundvallaði hann frírfkið Kongó. Það hefði hann nú mátt láta vera, því að í klóm Leópolds kóngs og óaldarlýðs þess, er að honum safnaðist varð „ríki" þetta að slíku víti spillingar, arðráns og fjöldamorða, að það á sér naumast hliðstæðu [ allri nýlendusögu Evrópu- manna á nítjándu öldinni og um aldamótin síðustu. Sumir segja að negr- ar þeir er ráðsmenn Belgakonungs réðu af dögum næstu árin hafi ekki verið miklu færri en (búar Kongó eru [ dag. En vitaskuld hefur Stanley ekki ætlazt til þessa. Slðasta Afrlkuleiðangur sinn fór Stanley til bjargar skrítnum Þjóðverja sem gekk undir nafninu Emfn pasja. Hann var upphaflega velkristinn læknir, en gekk ( þjónustu Tyrkjasoldáns og síðar kedífans f Egyptalandi. Gekk hann þá af trúnni, gerðist Múhameðingur og skipti um nafn. Gerði í þrjú ár kannaði Stanley Kongófljótið, oft á eintrjáningi. Þannig hélt hann áfram starfi Livingstones. kedífinn hann um síðir landsstjóra yfir svæði því, er Egyptar þóttust eiga í Suður-Súdan og þar um kring. En 1882 hófst í Súdan hin fræga uppreisn gegn Egyptum og brezkum umsjónarmönnum þeirra er Madíinn stjórn- aði og Gordon hershöfðingi var sendur til að kæfa; við þá atburði kann- ast nú margir vegna kvikmyndar með Laurence Oliver og Charlton Heston, sem nýlega var gerð um þá og sýnd hér á landi sem víðar. Madfinn var sigursæll og náði fljótlega völdum í mestöllu Súdan; allar samgöngur milli Egyptalands og efstu Nílarlanda voru þar með rofnar. Var Emin nú jafn rækilega týndur siðmenningunni og Livingstone áður, og áttu flestir von á að örlög hans yrðu svipuð og Gordons. Það var Brezka Austur-Afrlkufélagið, sem réð Stanley til ferðar þessar- ar. Leiðangurinn var bæði vel búinn og fjölmennur, meðal annarra voru í honum allnokkrir hvftir menn. Stanley þræddi Kongófljót að beygju þess f suður og tók þaðan beina stefnu á Albertsvatn, en þar í námunda var Emfn talinn vera. Ferð þessi varð óhemju erfið og sfzt heppnuð af leiðöngrum Stanleys. Tippó Tib, sem enn stundaði kaupskap sinn á þess- um slóðum, hafði lofað að sjá leiðangrinum fyrir vistum, en sveik það; hefur honum trúlega verið farið að þykja nóg um fyrirgang Evrópumanna Framhald á bls. 39. 37. tw. VIKAN 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.