Vikan - 11.09.1969, Side 25
SKEMMTILEGAST AÐ
UMGANGAST FÓLK
OG ÞJÓNA ÞVÍ
Viðtal við Kristínu H. Pétursdóttur, sjónvarpsþul og bókavörð.
TEXTI: ÓMAR VALDIMARSSON
MYNDIR: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
„Fyrst kemur drengurinn minn,
svo starfið og siðast ég."
Það er Kristín H. Pétursdóttir,
sjónvarpsþulur, bókavörður, kenn-
ari, útvarpsstjóri og fleira sem tal-
ar. Og hún heldur áfram:
,,Sem stendur er Þórir, sonur
minn, kaupamaður ( sveit, þar sem
hann hefur verið síðastliðin sex
sumur, en hann var fermdur 1 vor.
Osköp venjulegur strákur, sem
gengst örlítið upp í því að mamma
hans er i sjónvarpinu öðru hvoru.
— í rauninni var það alveg fyrir
tilviljun að ég gerðist sjónvarps-
þulur. Ég hafði verið beðin að sjá
um skrásetningu og umsjón filmu-
safns sjónvarpsins, og svo fóru þeir
að eggja mig til að sækja um starf
þular. Nú, ég gerði það og allir
vita framhaldið.
— Daginn áður en ég var í
fyrstu útsendingu, var ég á gangi
niður í bæ; mér varð litið upp fyrir
mig, og er ég sá öll loftnetin gnæfa
yfir mér, hugsaði ég með mér:
Drottinn minn! Hvað er ég að flækja
mig inn í?
Nú líkar mér það starf nokkuð
vel, en ég held að ég fari fljótlega
að hætta — yngri og ferskari stúlk-
ur ættu að taka við.
Jafnframt þularstarfinu hef ég
aðstoðað við kvikmyndasafn sjón-
varpsins; séð um að skrásetja öll
hljóð (effekta) og tónlist hljóðsetn-
ingardeildarinnar. Þetta er nokkuð
mikið starf og margbrotið, en við
reynum að gera það eins einfalt og
unnt er að komast af með."
Kristín hefur lokið prófi í bóka-
safnsfræðum, eins og ef til vill
hefur komið fram í framangreindu.
En bezt er að láta hana segja sjálfa
frá námi sínu og menntun:
„Ja, er ekki bezt að byrja á því
sem kallað er byrjun," segir hún.
„Ég er fædd og uppalin á Siglu-
firði, næst yngst fjögurra systkina,
og var alla t(ð þar þar til ég fór í
Menntaskólann á Akureyri. Að
stúdentsprófi loknu ætlaði ég á há-
skóla ( Bandaríkjunum en 16 marka
sonur kom í veg fyrir að svo yrði.
Hálfu öðru ári síðar hélt ég þó
utan og nam við Brenau College í
37. tbi. VIKAN 25