Vikan - 11.09.1969, Page 29
PLASTIC ONO BAND
FRÆG
FYRIR TILVILJUN
Lagið „Oh Happy Days“ hef-
ur notið mikilla vinsælda hér
á landi sem svo víða erlendis.
Lagið er flutt af hinum
bandarísku Edwin Hawkins
Singers, en einsöngvari er
Dorothy Morrison. Það kom
mörgum á óvart, að þetta lag
skyldi komast í efsta sæti
vinsældalistans brezka, þar
sem hér er um negrasálm að
ræða en ekki pop-lag. Einna
mest kom þetta þó söngstjór-
BEE GEES MEÐ SJONVARPSÞÆTTI
Nú hafa Bee Gees sent frá
sér nýja tveggja laga plötu
með laginu „Don‘t Forget To
Remember“. Þykir þetta lag
mun betra og vænlegra til
meiri vinsælda en „Tomorrow
l’omorrow“, en það var fyrsta
lagið, sem Bee Gees fluttu án
Bobin Gibb. Lagið sömdu
þeir bræður Barry og Maur-
ice, en þeir hafa einmitt sam-
ið mörg fallegustu lög Bee
Gees. Einsöng í laginu syngur
Barry. Hann er fyrir miðju
á myndinni. Sá skeggjaði er
Maurice, bróðir hans, en
þriðji maðurinn er trvmbill-
inn Colin Petersen. Lengst af
hafa Bee Gees verið finnn
saman. Nú þegar Robin og
Vince eru farnir og hljóm-
sveitin er orðin að tríói, velta
margir því fyrir sér, hvort
Bee Gees muni bera sitt barr.
Eftir að nýjasta plata þeirra
kom út, bendir allt til þess,
að þremnningarnir séu á
grænni grein og þurfi engu
að kvíða um framtíðina. Þeir
Framhald á bls. 34.
Lagið „Give Peace A Chance“
hefur að undanförnu verið of-
arlega á vinsældalistum í
mörgum löndum. Á plötunni
er upplýst, að flytjendur séu
„Plastic Ono Band“. For-
ráðamenn plötufyrirtækisins
Apple komust þó í nokkurn
vanda, þegar þeir voru beðn-
ir um mynd af „hljómsveit-
inni“ til birtingar í blöðum.
Þeir dóu þó ekki ráðalausir
heldur létu frá sér fara þessa
mynd, sem sýnir John Lenn-
on og Yoko Ono ásamt seg-
ulbandstæki og hljóðnema í
plasthylkjum, en tækin eru
hin sömu og notuð voru við
upptökuna. Óþarfi er víst að
og taka fram, að segulbands-
tækið er japanskt! Lagið
„Give Peace A Chance“ var
hljóðritað 2. júní 1969 í her-
bergi númer 1742 í „Hotel La
Reine Elizabeth“ í Montreal
í Kanada. Viðstaddir upptök-
una og þátttakendur í henni
voru um 40 baðamenn, sjón-
Framhald á bls. 45
anum, Ed Hawkins, á óvart.
Hann hafði upphaflega látið
kór sinn æfa þetta lag með
það fyrir augum, að það yrði
ílutt í söngvakeppni, sem kór-
inn hugðist taka þátt í. Lag-
ið var hljóðritað í kirkju einni
á heimasegulbandstæki til
þess að kórfélagar gætu gert
sér grein fyrir því, hvernig
það hljómaði. Fyrir tilviljun
barst þessi upptaka til eyrna
forráðamanni plötufyrirtæk-
isins „Buddha“. Hann óskaði
eftir að fá að gefa lagið út á
plötu. Þótt söngstjóranum
Framhald á bls. 33.
APAKÖTTUR
Þekkið þið náungan á mynd-
inni? Jú, þetta er Peter Tork,
sem til skamms tíma var einn
af Apaköttunum frægu. Peter
virðist kominn í hippastandið
eftir myndinni að dæma, en
það er talsvert langt frá þeirri
ímynd, sem Apakettirnir voru
og eru enn í augum aðdá-
enda um allan heim. Daman
í fangi Pésa er „bara vinkona“
að því er hann sjálfur segir.
Hann segist ekki hafa neinar
áætlanir um hjúskap á prjón-
unum. Af Apaköttunum
þremur er það helzt tíðinda,
að kvikmynd þeirra, Head,
hefur nú verið frumsýnd í
Framhald á bls. 34.
37. tbi. VIKAN 29