Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 34

Vikan - 11.09.1969, Side 34
Zager og Evans Harttítarkarfir INNI OTI BlLSKÚRS SVALA HURÐIR ýhHi- & 'Utikuftir H Ö. VILHJÁLMSSDN RÁNARBÖTU 'Z SÍMI19669 V. ' r m Framhald af bls. 28. verskum veitingastað og fengu að launum fyrir söng- inn eins mikið af mat og þeir gátu í sig látið. Nú þegar þeir félagar eru orðnir þekktir og eftirsóttir skemmtikraftar syngja þeir enn á þessum veitingastað. Þeim finnst maturinn góður! ☆ Hún fór í megrunarklúbb.... Framhald af bls. 31. öllu sem hún átti, og gat ekki feng- ið nokkra flík í búðum. Um það leyti var hún farin að vinna í skyrtuverksmiðju, og ein af vinnufélögunum hjálpaði henni við saumaskapinn. Þær sprettu upp gömlum kjól, og sniðu eftir hon- um. Brjóstmál Aliciu var tiltölulega lítið, samanborið við annan vöxt, svo hún gat keypt brjóstahaldara, sem voru ætlaðir gömlum konum. Hún tók sauma úr skálunum. Hún varð líka að panta sérstaklega stóra sokka, venjulegar stærðir náðu henni ekki upp fyrir hné. Svo kom að því að Elsie og unn- usti hennar giftu sig. Alicia keypti fleiri metra af Ijósrauðu silki, og saumaði kjól fyrir brúðkaupið. Eina ástæðan fyrir því að hún fékkst til að fara í brúðkaupið var að hún tilbað þessa systur sína. Það reyndu allir að fullvissa hana um að kjóllinn væri dásamlegur, en hún vissi ósköp vel sjálf að það var ekki satt. Megrunarklúbburinn Þegar Elsie flutti að heiman, varð Alicia mjög einmana. Hún bjó með móðurbróður sínum, sem var mjög sérvitur. Hún hugsaði mikið um dauðann. Hún gat ekki varizt því að hugsa um að ættingjar hennar höfðu yfirleitt ekki verið langlífir, flestir látizt um fertugt. Banamein þeirra var i flestum tilfellum orsök offitu, til dæmis hjartasjúkdómar, sykursýki og of hár blóðþrýstingur. Alicia hafði á tilfinningunni að þetta yrðu líka örlög hennar. En hún talaði aldrei við neinn um þessar hugsanir sínar. Þremur árum eftir lát móðurinn- ar, hringdi Minnie Sommers til Ali- ciu. Minnie Sommers var fyrirlesari í Weight Watchers International, sem eiginlega er hægt að kalla ,,fé- lag baráttunnar við hitaeiningarn- ar". Maðurinn hennar vann í sömu verksmiðju og Alicia, og hann hafði margoft beðið konu sína að hafa samband við Aliciu. Þetta var eiginlega á móti öllum reglum klúbbsins, því að til þess var ætl- azt, að þeir sem vildu fá inngöngu í klúbbinn, óskuðu þess sjálfir. En M'nnie lét undan þrábeiðni bónda síns. Alicia vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, en Minnie bað hana um að koma á klúbbfund á þirðju- dagskvöld, og sagðist ekki vilja hlusta á mótmæli. Alicia fór þangað, í þeim tilgangi að reyna að hlýða klúbbreglum, að minnsta kosti eina viku. Fjórtán mánuðum síðar, í febrú- ar 1967, var Alicia Madeiros búin að ná því takmarki að léttast um 84 kíló! Alicia ætlar að verða kennslukona Hún er eiginlega ekki ennþá bú- in að venjast því að vera þetta grönn. í fyrstu var hún hrædd við að borða reglulega. Ef hún sá ís- topp, minntist hún fitunnar og fékk í sig hroll. A nóttunni vaknaði hún oft af martröð, og fannst þá að hún væri orðin ofboðslega feit aftur. Hún fylgir ennþá matarreglum klúbbsins. Þegar hún byrjaði á megruninni, sagði Minnie henni að hún myndi örugglega fá ógeð á margs konar fæðutegundum, sem hún hafði áður verið hrifin af. Ali- cia trúði henni ekki, en það kom á daginn að hún hafði á réttu að standa. Hún snertir ekki smjör og kartöflur, og finnst þykkar sósur vondar, og ef hún borðar kökur, þá verða þær að vera sérstök tegund. Nú getur Alicia keypt tilbúinn fatnað númer 42—44, en þegar hún velur sér föt, þá þykir henni gaman að því að velja fyrst of stór númer, til að geta sagt: — Ég held ég þurfi eitthvað minni stærð. Nú er Alicia ein af fyrirlesurum klúbbsins, og hún reynir að upp- örva alla, sem eiga við þetta erfiða vandamál að stríða. Fyrir mörgum árum var það inni- leg ósk Aliciu að fara í háskóla, og taka kennarapróf, en hún vissi að hún hefði aldrei kjark til að standa fyrir framan nemendur. En síðan hún varð grennri, hefur áhugi hennar vaknað á ný. Hún sækir nú kvöldnámskeið við Bridgewater State College, tvö kvöld í viku, svo það tekur langan tíma fyrir hana að ná takmarkinu, en hún er nú þegar búin að Ijúka byrjunarprófi, sem sýnir það að hún hefur góða von um að ná settu marki með góð- um árangri. ' ☆ Apaköttur Framhald af bls. 29. Lonrlon, og hefur hún fengið nokkuð misjafna dóma. Þeir eru væntanlegir til Bretlands innan tíðar, þar sem þeir halda hljómleika. Kemur þá í Ijós, hvort þeir sveinar eiga jafn mikil ítök í fólki og áð- ur fyrri meðan þeir voru fjór- ir saman. ☆ Bee Gees.... Framhald af bls. 29. hafa nú hafizt handa um gerð 13 sjónvarpsþátta, sem sýndir verða í vetur í brezka sjón- varpinu og má ætla, að þætt- irnir auki að mun vinsældir þeirra, sem eru þó miklar fyr- ir. ☆ Julie Rogers Framhald af bls. 28. horfir með nýjustu plötuna hennar og er Julie hin kátasta. Hún gifti sig líka á dögunum. Sá lukkulegi heitir Terrv Dor- an, en það var hann sem fyrstur tók eftir sönghæfi- leikum hennar, og það var hann, sem kom henni áleiðis í músikbransanum. ☆ Sumarbú í eyðibyggð Framhald af bls. 21. rýmið, á þriðja hundrað selir á ári og 40 kg af hreinum dún. Og, það sem aldrei var nefnt: Fjöldi af mjög elskulegu fólki. Við höfum varla fyrr tekið land, en okkur var boðið inn að borða. Soðið selkjöt. Óvenjulegur matur fyrir fólk sunnan úr Mosfellssveit og nágrenni (Reykjavík). Ég verð að játa, að ég varð að taka á tölu- verðu þreki til að halda niðri morgunmatnum og enn meira til að koma fyrsta selbitanum ofan á hann, en annar bitinn var betri og sá þriðji góður, það endaði með því að ég fékk mér aftur á disk- inn. Konunni þótti kjötið gott frá fyrsta bita og dótturinni líka, en sonurinn lagði hreint ekki í þetta grásvarta kjöt. Vissulega er það öðruvísi á litinn en kindakjöt, en Ijómandi matur og grátlegt til þess að vita, að ekki skuli vera hægt að nytja það nema að heldur litlu leyti. Það voru hjónin Elín Guðmunds- dóttir og Guðmundur Pétursson, sem buðu okkur að borða. Guð- mundur er sonur Péturs í Ófeigs- firði, sem margir þekkja og enn fleiri þekkja til, hann var aftur Guð- mundsson Péturssonar og giftist sá Guðmundur til Ófeigsf jarðar og keypti síðar hluta af jörðinni. Hann var rómaður garpur og gerði með- al annars út áttæringinn Ófeig á hákarlaveiðar. Ófeigur er enn til, heill og óbrotinn, enda alltaf happafleyta, kominn yfir öldina og nýtur nú hvíldar á byggðasafninu að Reykjum í Hrútafirði. Guðmundur heitinn Pétursson á meðal annars heiður af því, að hafa fyrstur manna tekið upp elda- mennsku á hákarlaskipi. Fram til 1880 höfðu menn ævinlega farið með kaldan mat í hákarlalegur, svo entist til viku og stundum lengur, því útilegurnar gátu orðið langar. Þetta voru erfiðar ferðir að öllu leyti, því ofan á kuldann og kalda mat'nn voru varla tök á að sofna, meðan á útilegunni stóð. Það hef- ur því verið mikil framför, þegar Guðmundur fann það upp að hvolfa botnlausum pottgarmi á upphringaða keðju og kveikja eld í þeim potti en setia annan yfir. Það er sonarsonur hans og nafni, Guðmundur Pétursson, sem nú nvt’ar hlunnindin í Ófeigsfirði að mestu. Með honum er kona hans, Flín. on fjórir synir þeirra, þrír vaxnir úr grasi. Fleira fólk var þó í Ófeigsfirði þessa daga; Pétur Guð- mundsson, og kona hans, Ingibiörg Ketilsdóttir, foreldrar Guðmundar, Fior'ður sytir Péturs. Ófeigur, Ket- ill oo Inqólfur, bræður Guðmund- Framhald á bls. 37. 34 VIKAN 37- tbl' DPŒ 37. tbi. VIKAN 35

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.