Vikan


Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 41

Vikan - 11.09.1969, Blaðsíða 41
 BILALOKK grunnfyllir, spartl, þynnir, slípimassi, vinyllakk, málmhreinsiefni, álgrunnur, silieone hreinsiefni gwÍ&ko — Þú ert því ekki vön, fyrr en þú ert komin á skrifstofuna. í fyrsta sinn sá Helen, að fólk er á verði undir eins, ef eitthvað víkur út af hinni föstu venju. — En þetta er svo óvenjulegur morgunn. Frank á að verja Ang- usmálið á mánudaginn, svo ég þarf að skrifa ósköpin öll í dag. Þar að auki verð ég að leggja á mér hárið í matartímanum. Eg kem við hjá þér um sjöleytið. — Nei, elskan mín, gerðu það ekki. Þú þarft ekki að koma í kvöld. — Daginn, sem ég „æfi“ mitt eigið brúðkaup, ætla ég sannar- lega að heilsa upp á hana mömmu mína! Hún reyndi að hlæja, og hélt áfram: — Þú verður að reyna að gefa þér tíma til að taka á móti mér. Hún skoðaði sig vandlega í gangspeglinum. Augun voru mött og undir þeim voru dökkir baugar. Skórnir voru í sama stíl og kjóllinn, sem var þriggja ára. En sem betur fór leit hann ekki út fyrir að vera það. Það myndi verða tímakorn, þar til hún hefði efni á að kaupa nýjan. Hún og Frank spöruðu hvern eyri til þess að kaupa sér íbúð. í jóla- gjöf hafði hún gefið honum gras- klippur og hann hafði gefið henni plöntuskeið og kröfsu. Þau hlökkuðu mest til að eignast sinn eig'n garð. Og auk vaxta og af- borgana af húsnæðinu, myndu börnin þurfa sitt. Og hún ætlaði ekki að bíða í mörg ár, áður en hún eignaðist barn, eins og svo margar vinkonur hennar höfðu gert. Hún skoðaði líka upphaf að lykkjufalli í öðrum sokknum, og reyndi að gera sér hugmynd um, hvort hann myndi duga einn dag t'l. Svo hristi hún hneyksluð höf- uðið. Þarna var hún sjálf og móð- ir hennar líka í bráðum lífsháska, og hún var með vangaveltur yfir lykkjufalli á sokk! Hún sneri sér við í dyrunum og virti fyrir sér íbúðina. Hún hafði lokað eldhúsdyrunum, slökkt á eldavélinni og sleppt kettinum sínum, Hermanni, út. Venjulega lá hann sofandi á dag- inn á rúminu hennar. En í dag vissi hún ekki, hve seint hún myndi koma heim, eða hvort hún kæmi yfirleitt nokkuð aftur. Að minnsta kosti ekki fyrr en eftir brúðkaupsæfinguna. Stofuglugginn var ofurlítið op- inn, og venjulega hafði hún hann þannig. Nú lokaði hún honum kyrfilega. Svo fór hún hraðferð um íbúðina og opnaði alla skápa og dyr á gátt. Hún vildi geta sannfærzt um það á augabragði, þegar hún kæmi heim, hvort nokkur væri í felum. Hún opnaði útidyrnar hljóð- lega. Venjulega rykkti hún þeim upp og skálmaði út, glöð að mæta nýjum degi. Ég hef andstyggð á þér, hafði Martha, bezta vinkona hennar, einu sinni sagt. Þú ert ein af þessum glöðu, jákvæðu konum, og ég þoli ekki þes.s kon- ar fólk klukkan níu á morgnana. Hermann hafði hrakið schaffer hund upp í horn. Vesalings hund- urinn skalf af hræðslu við óarga- dýrið, en reyndi samt að hegða sér sem verðugur fulltrúi síns kynþáttar. — Svei, skammastin, Hermann hrópaði hún. Hermann settist í flýti og reyndi að láta líta svo út, sem hann væri bara að njóta góða veðursins. Helen dró andann léttara. Það var gaman að hafa Hermann ná- lægt sér. Hann var þó altént sýn- ishorn af eðlilegum raunveru- leika. Henni dauðbrá, þegar hún skynjaði hreyfingu við hlið sér. Hún hafði ekki heyrt til Margie, sem var þó ólíklegt, því Margie var feit og þungstíg. Hún leit út eins og fuglahræða með djúpa skugga undir augunum og slap- andi augnalok. Illa litað hár hennar leit út eins og hún hefði gengið langa leið afturábak eftir vindgöngum. — Halló, þú hefur þó ekki ver- ið í partýi í gær? spurði Margie og bætti svo við: — Ég bankaði uppá hjá þér í gærkvöldi. Helen lét augun hvarfla yfir blettinn. — En leiðinlegt. Ég var að vinna. — Þú segir ekki! Fram til eitt á nóttunni! Earl sagðist hafa hitt þig við ruslatunnurnar. Þið eruð þó ekki með eitthvað óhreint í pokahorninu, þið tvö, ha? Hún hló glaðklakkalega. Hvað svo sem þau höfðu rifizt um, var nú gleymt og grafið. Hvernig í ósköpunum fór fólk að því að öskra hvort á annað og formæla hvort öðru aðra mínútuna, en elskast og hlæja saman hina? Það myndi Helen aldrei geta. Þegar hún varð einhverjum verulega reið, strikaði hún hann um leið út af vinálista sínum. Hún var viss um, að Frank væri eins far- ið. Það var óhugsandi að vinna tvö ár með sama manmnum, án þess að kynnast honum út í æsar. Og hún trúði ekki á þá kerlinga- bók sem sagði, að aldrei væri hægt að kynnast manni öðru vísi en að giftast honum. Helen var svo niðursokkin í hugsanir sínar, að hún áttaði sig ekki fyrr en hún var komin út að sundlauginni. Nýgift hjón, sem unnu á næturvöktum, böð- uðu sig þar með ærnum busla- gangi og köstuðu á milli sín stór- um baðbolta. Hún ímyndaði sér sig sjálfa og Frank undir svip- uðum kringumstæðum komandi sunnudag, ef ekkert henti hana áður. — Þessi rödd. Hafði hún ekki verið kunnugleg á einhvern máta? Hún varð að reyna að rifja hana upp fyrir sér. Hún mátti til. Meðan hún vakti í morgunsárið, hafði hún reynt það af alefli. Kannski hafði hún ekki farið nægilega langt aftur í tímann. Þetta gat verið einhver, sem hún hafði kynnzt í skóla. Þegar hún kom að bílnum, leit hún fyrst inn í hann að aftan en síðan niður eftir götunni. Þar var allt með sama hætti og aðra morgna. Fyrir aftan hana tróð Margie sér inn í Volkswagen við hliðina á Earl, sem rak höfuðið út um gluggann og veifaði henni. Þegar hún var sezt undir stýri, tók hún að festa á sig öryggis- beltið, en svo mundi hún allt, og það var eins og að fá högg í höf- uðið. í myndunarafl hennar hafði alltaf verið auðugt. Aldrei fram- ar gæti hún sett á sig öryggis- belti. Hún gaf sér nægan tíma til að láta vélina hitna, og virti stöð- ugt fyrir sér umferðina. Svo fikraði hún sig með bílinn út á akbrautina, en varð að stanza næstum strax á rauðu ljósi. Fast á eftir henni ók annar bíll og stanzaði mjög nærri hennar. Okumaðurinn var ungur maður, hávaxinn og svartur á hár og skegg. Þótt hann liti aldrei á hana, fannst henni, að hann gæfi henni gaum. Skelfingin stóð bara fáar sek- úndur, en svo náði hún aftur stjórn á sér. En við næst um- ferðarljós þrengdi röddin frá nóttinni áður sér inn í vitund hennar: gróf, hörð og hótandi. Það var eins og maðurinn væri þarna í bílnum hjá henni og gæti kyrkt hana hvenær sem væri. Hún litaðist óttaslegin um. — Helen, sagði röddin ógn- andi. — Helen, líttu á gólfið við fæturna á þér. Fæturna, Helen, fæturna! Ljósið skipti yfir á grænt. Hún tók ekki af stað, heldur þreifaði niður á gólfið og fann vasa- senditækið. — Einmitt, sagði röddin, og skipaði svo: — Settu það ofan í veskið þitt. Já, gerðu það, og haltu svo áfram. Hún starði örvæntingarfull á bílana í kringum sig. Einhvers staðar frá virti hann fyrir sér hverja hennar hreyfingu. Það gat verið úr skrifstofuglugga, það gat verið frá gangstéttinni. Hann 37. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.