Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 8
Smíðum hilluskilrúm úr öllum viðartegundum.
Leitið upplýsinga og fáið tilboð hjá framleiðanda.
Sverrir Hallgrímssoi
Smíðastofa, Skipholti 35, sími 36938.
HILLOSKILRÖM
teiknuð af Þorkeli G. Guðmundssyni, húsgagnaarlcitekt.
Urval
EINA TÍMARITIÐ SINNAR TEGUNDAR
HÉR Á LANDI
í MAÍHEFTI ÚRVALS
ERU MEÐAL ANNARS ÞESSAR GREINAR
★ Við getum varizt mengun * Rétt beiting líkamans
★ Hvað gerðist á Marie Celeste? ★ Með steinaldar-
mönnum í Nýju-Guineu ★ Ekki verður allt með
orðum sagt ★ Eitt ár í lífi búrhvalsins ★ Joan
Sutherland — söngkona alarinnar ★ Síðasti geirfugl-
inn ★ Eldingin — stórskotalið náttúrunnar ★ Mað-
urinn sem uppgötvaði radarinn ★ Veitið fráskildum
eiginmönnum tækifæri ★ Ævintýrið um Grimms-
bræður ★ Það er hægt að lækna krabbamein
Tveir draumar um
sveinbarn
Herra draumráðandi!
Mig langar til að senda Jþér
tvo athyglisverða drauma. Mig
dreymdi þá ekki, en ég kem að
því á eftir hvern dreymdi þá.
Föður minn dreymdi síðast-
liðna nótt, að hann og mamma
væru búin að eignast ljómandi
fallegt sveinbarn, en pabbi var
svolítið hissa á því að mamma
vildi skíra drenginn Þorvarð.
Sömu nótt dreymir móður
mömmu minnar, að hún sé upp
á Landsspítala, og sér þar inni í
einni stofunni nýfætt sveinbarn.
Henni fannst endilega að hún
ætti einhver ítök í barinu en
ætti það þó ekki sjálf. Á enni
barnsins var grafið í. H., en það
eru upphafsstafir pabba míns.
Hún var eitthvað að reyna að
strjúka þessa stafi af, en það
tókst ekki.
Ég hef. áður sent þér draum,
en hann er sem betur fer ekki
kominn fram. Mér þætti vænt
um, ef þú myndir vilja ráða
þessa drauma.
L. í.
„Böl er að þá barn dreymir,
nema sveinbarn sé og sjálfur
eigi“ segir máltækið. Og það er
merkilegt hversu oft er að marka
gömul orðtök og ýmsa hjátrú,
sem virðist ekki beysin fljótt á
litið. En það er eins og undir-
vitundin hafi ráðið ferðinni, þeg-
ar þessi gamla speki varð til.
Hvað sem því líður, þá er eng-
inn vafi á því, að báðir þessir
draumar eru nátengdir og tákna
það sama: Persónulegan ávinn-
ing til handa föður þínum, hvort
sem hann verður á sviði fjár-
mála eða hvort um verður að
ræða mikinn heiður, sem ekki
verður til peninga metinn. Ann-
aðhvort er líklegast að verði, og
allavega er óhætt að fullyrða, að
draumurinn táknar eitthvað
mjög gott í sambandi við föður
þinn.
Brotinn hringur
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi að ég drægi á
fingur mér stóran gullhring sem
mér virtist vera giftingarhring-
ur, og þótt mér mikið til hans
koma. Er ég hafði haft hann á
fingri mér um stund, og fannst
tími til kominn að taka hann
ofan, reyndist mér alls ómögu-
legt að ná honum af mér.
Sé ég þá allt í einu, meðan ég
er sem óðast að reyna að finna
ráð til að ná honum af mér, að
hann tekur að verða svartur og
fer loks af honum allur glans,
en í því hrekkur hann í sundur,
og man ég mjög greinilega að
mér varð mjög starsýnt á hinar
djúpu skorur sem í hann komu.
Og fékk ég miklar áhyggjur
af því hvernig ég ætti að fara að
því að borga gripinn, þar sem
mér fannst að hann hlyti að vera
mjög dýr.
Þess skal getið, að aðeins ég
einn var sá sem átti í þessum
erfiðleikum.
Ég vona að þú ráðir þetta vel,
og dragir ekkert undan, því ég
hugsa að þessi draumur minn
boði eitthvað slæmt, en sé ekk-
ert rugl. — Vonast eftir svari
bráðlega frá yður, kæri draum-
ráðandi, með fyrirfram þakk-
læti.
Virðingarfyllst,
E. S.
Jú, þaff er rétt ályktaff, aff
draumurinn sá arna getur tæp-
ast boðaff neitt sérlega gott. Þó
er hann ekki fyrir neinum ótíff-
indum, ekki mannsláti, vinslit-
um effa neinu slíku. Hann er lík-
lega fyrst og fremst fyrir von-
brigffum. Þú munt skyndilega
komast aff raun um, aff þú hefur
gert þér alrangar hugmyndir um
eitthvaff, sem var þér hugfólgiff
og kært. Skýjaborgin hrynur
semsagt í rúst á örskömmum
tíma og þú situr eftir meff sárt
enniff. En engan skaffa bíður þú
af þessum vonbrigffum á verald-
lega vísu, og ef aff líkum lætur
mun andlega heilsan verffa söm
og jöfn fyrr en varir.
Geltandi hundur
Kæri þáttur!
Gætir þú sagt mér, hvað það
táknar að dreyma hund, bæði
hund, sem sýnir manni blíðuhót,
en þó fyrst og fremst geltandi
hund, sem eltir mann, en mig
dreymdi einmitt einn slíkan um
daginn.
Með þökk fyrir hjálpina.
H.
Hundar tákna misjafnt í draumi
eftir útliti og framkomu. Vina-
legir hundar boffa gott, en gelt-
andi, grimmir og urrandi hund-
ar hiff gagnstæffa. Sjái maffur
hunda hlaupa á undan sér, tákn-
ar þaff falska vini og rógburff.
Hvítir hundar merkja gleffi. Ef
hvítir hundar láta ófrifflega,
gelta og urra og eru margir
saman, boffa þeir fannkomu.
Svartir hundar boða hins vegar
svik og illan lifnaff. Rífi hundur
klæði manns í draumi, merkir
þaff óvináttu og fláræffi.
8 VIKAN
21. tbl.