Vikan


Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 24

Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 24
Ný og spennandi framhaldssaga Ævintýri á Spáni Eftir Jan Andersen 1. hluti Þjónninn virtist vera undrandi, eins og hann skildi hvað ég hafði sagt. Nú heyrðist í ferðatækinu: „Að beiðni lögreglunnar í Barcelona svipast lögreglan í Gibraltar eftir manni, sem spænska lögreglan leitar að. Öskað er eftir upplýsingum varðandi morð á spænskri stúlku í Barcelona, fsabellu Damas, sem fannst stungin til bana með hnífi í nýtízkulegri íbúð á þriðjudaginn. Lögreglan álítur, að morðinginn sé sálsjúkur, og því er hætta á, að hann fremji fleiri morð ...“ - Anna titraði af hrolli. „Það gengur þá morðingi laus í Barcelona. Ég er fegin að við skyldum hafa verið í Palma á mánudagskvöldið ...“ 1. KAFLI „Ég var svo spennt fyrir að komast burt af skipinu, að ég held ég hefði getað hlaupið allsber beint úr steypibaðinu í landl" sagði Anna, er við gengum niður landgöngubrúna. „Láttu engan hér á Spáni heyra svona nokkuð!" svaraði ég. Ferðin frá Palma á eyiunni Mallorca til Barcelona hafði verið hin ömur- legasta, og við vorum bráðfegnar landtökunni. En skipið hafði fengið slæman mótbyr. Barcelona er stór borg. Við innsiglinguna er risastór stytta af Kolumbusi, sæfaranum mikla, og vegna hins þróttmikla iðnaðar í borginni, er Barce- lona í raun höfuðstaður Spánar. „Skil ykkur ekki," sagði ég einbeittlega við hóp betlaradrengja, sem safnaðist að okkur við hafnargarðinn. Og þessi orð notuðum við heilmikið, þar sem við kunnum ekki spænsku. Anna leit ekki út fyrir að vera orðin tuttugu og tveggja ára. Flún minnti á fugl, sem flögrar grein af grein. Hún var fjörmikil stúlka, Ijóshærð og augun barnslega blá, og spékoppa bar hún í vöngum. Sem betur fór var hún ekki eins fákæn og hún leit út fyrir að vera. „Er ekki bezt að byrja á að koma inn á eitthvert kaffihús?" stakk ég upp á. „Þar getum við lagað okkur eitthvað til. Á eftir getum við fengið okkur bíl og ekið til hótelsins og tekið þar okkar eigin bíl og haldið áfram." „Þú veizt, að ég læt þig um allt," viðurkenndi Anna. En þetta var raunar ékki rétt hjá henni. Hún eftirlét mér einungis vana- verkin, það leiðinlega. En ég þurfti ekki að kvarta, því ég kunni vel við Önnu. Og þannig hafði þetta gengið frá því við hittumst í ítalíu og ákváðum að slá reiturn okkar saman, því það væri skynsamlegra að ferðast tvær saman en ein. Ég held að Önnu hafi þótt mikils virði, að ég skyldi tala ítölsku og frönsku allþolanlega. En Anna talaði aðeins ensku. Við komum til Spánar ásamt fjórum Bandaríkjamönnum og hóp brezkra stúdenta. Einn þeirra kunni eilítið í spænsku. Hann hafði hjálpað okkur við að kaupa lítið notaðan Citroen-bíl, og eftir að hafa gengið vel frá honum í Barcelona fylgdum við hópnum til Balerisku eyjanna. Á hótelinu, sem við gistum þar, gerðist Anna ásthrifin af ungum Frakka. Þetta varð til þess, að við urðum viðskila við hópinn, og nú vissum við ekki, hvort heldur hann var ehn á eyjunum ellegar var þegar kominn aftur til Barce- lona. En, eins og við, ætluðu þau að halda áfram ferðalaginu í bíl. Þetta hafði verið skemmtilegur félagsskapur, og ég vonaði, að við ætt- um eftir að hittast aftur. Ég var orðin smeyk við kunnáttuleysið í spænskunni. Kaffihúsið, sem við völdum okkur var lítið og illa upplýst. Við settumst við borð við glugga, og ég pantaði kaffi og tertustykki. Eftir næringuna leið okkur betur, og með endurnýjuðum kröftum bárum við töskurnar okkar út á götuna aftur. Ég var svo heppin að koma nærri strax auga á leigbíl, og er ég sýndi bílstjóranum miða, sem á var skrifað nafn og götunúmer hótelsins, sem við ætluðum til, sagði hann: „Ah, Americano?" Ég kinkaði kolli, og hann ók brosandi af stað. Eitthvað mun hann hafa gert túrinn dýrari en hann þurfti að vera. Hótelið var ekki upp á marga fiska, en það stóð, að við fengum sama herbergið og síðast. Ég opnaði dyrnar, og við Anna gengum inn. Anna dró gluggatjaldið upp, opnaði glugga, sparkaði af sér skónum og fleygði sér upp í rúm. „Er ekki heldur snemmt að leggjast ( leti," sagði ég aðvarandi. „Við eigum eftir að laga okkur til og hafa fataskipti áður en við borðum." Hún leit undrandi á mig. „Ertu alltaf með úr í maganum, kæra Lísa?" svaraði hún í prýðisskapi. „Já, þegar ég er svöng eins og núna." Anna gaf frá sér lítið andvarp og kastaði fótleggjunum fram úr rúminu. „Jæja. Þetta er víst rétt hjá þér. Viltu þá ekki líta eftir bílnum méðan ég Framhald á bls. 46 24 VIKAN »•tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.