Vikan


Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 14

Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 14
Strompurinn myndaðist í litlu gosi, sem varð 1. janúar 1967 og hálf- fyllti Lónið. Nú er fiægt að ganga þurrum fótum þar sem Lónið var áður. í Surtsey eru fjöll og dalir eins og vera ber í íslenzku landslagi. Þar er hraun, þar er stöðuvatn og þar er falleg baðströnd með fínum sandi. Þar er allt eins og það á að vera. Surtsey hefur verið sannkallað óskabarn jarðfræðinga og vísindamanna. Um sumarmál í Surtsey verður hiti á stóru svæði. t fyrra mældist hann 80° C. um 30 cm undir yfirborðinu. Siðan hefur liann breiðzt töluvert út og er nú nokkur hiti í Svarta-gilinu. Af kollinum á Stromp- fjalli er gott útsýni yfir eyjuna og til lands, enda rís liann ca. 150 metra yfir liafið. Við horfum yfir hvosina þar sem gamli gígurinn var og standa gufustrókarnir víða upp i loftið. Þann 24. september 1966 var þarna keilumynduð hraun- skál á að gizka 30—40 m i þvermál og ca. 10—20 m há. Þá var hún full af glóandi hraunleðju, sem vall og kraumaði eins og í grautarpotti. tJt yfir barmana skvettust hraunkless- urnar, þegar grauturinn þeyttist glóandi hátt í loft upp. Á nokkrum stöðum runnu út úr skálinni glóandi hraunlækir, sem liðuðust niður hallandi hraunbreiðuna og mynduðu glóandi munsturmyndir í bláleitu morgunhúminu. Þar sem þessir hraunlækir runnu í sjó fram stigu upp voldugir gufu- bólstrar, sem mynduðust við kælingu á þessum mikla eldi. Nú eru þetta aðeins minningar. Grautarskálin brotin og hrunin saman, og grauturinn glóandi er nú storknuð hraun- hella. Þetta minnir á risa, sem verið liefur i hamförum en liggur nú yfirunninn og magnþrota, þar sem gufu leggur upp af likama hans eftir átökin miklu. Við göngum niður i lægðina miklu vestur af Bunka, þar er gríðarstór gígur. Þar mun fyrsta hraunrennslið liafa hyrjað í Surtsey. í gíg þessum hafa verið umbrot rnikil. Þar sér niður í djúpar gjár eða hellisop, þar sem hraunið hefur runnið um á leið til sjávar. Yfirborð þar er ójafnt og illt yfirferðar. Við látum nægja að lita yfir þetta svæði og höld- um því næst yfir mjög litauðugt hraunið. Þar má sjá marga fallega steina með fjölbreyttum litum og formum. Við kom- um við i Grillinu. Það er dálítil lægð í hrauninu með sand- botni innan um steinana. Að sunnanverðu er svolítill skúti, en út úr honum gýs þessi notalegi ylur, sé maður í hæfilegri fjarlægð. Vilji maður grilla kjúkling, pylsu eða annað, þarf maður bara að festa þetta á tein og stinga þvi lengra inn i hellismunnann. Þarna komum við gjarnan ef við erum í

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.