Vikan


Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 15

Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 15
Það er ólýsanleg tilfinning að vera í Surtsey — ótruflaður af allri menningunni. Karl Sæmundsson og Ævar Jóhann- t csson í einni eldrásinni. Þeir eru háð- ir í Surtseyjarfélaginu, hafa komið út í eyna oft og eru orðnir þaulkunnug- ir öllum staöháttum þar. -V- Á leiðinni upp að Strompi. Það er bratt þangaö upp, en það hefst samt sem áður. Við skoðuðum hann f krók og kring og stundum var erfitt að fóta sig í halianum. blautum fötum og þorna þau þá á skammri stundu. Eftir að liafa dvalið þarna í rólegheitum góða stund og notið yls- ins í grillinu og litafegurðarinnar allt í kring, auk þess að vera þarna ótruflaðir af allri menningunni, þá er mál að fara að lialda aftur áleiðis heim i Pálsbæ. Þórólfur ætlaði að vera kominn um kl. 6 og flytja okkur í land. Við höldum niður að ströndinni austur með Strompfjalli. Við suður- og austurströndina liafa myndazt háir hamrar. Þar nauðar brimið dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, og hefur orðið töluvert ágengt. Á einum vetri hefur losnað mikið magn af grjóti úr björgunum og borizt norður með ströndinni. Eru það þá orðnir vel slípaðir og ávalir fjörugrjótsbnullungar. Svo liratt gerist þessi mikla framkvæmd. Þarna eru þúsundir tonna af hraungrjóti mul- ið niður og hver steinn slípaður á alla kanta. Ef við lítum í kringum okkur í ríki náttúrunnar, þá eru mörg undrin sem gerast við fætur olckar. Við erum komnir langleiðina heim og göngum fjörusandinn. Er við komum nokkuð frá strönd- 'inni, má líta þar alls konar hluti, sem skolað liefur á land í stórbrimunum. Þar liggja alls konar hlutir úr áli og plasti. Þar eru stærðar tré og fallega formaðar rótarhnyðjur, sem væru talin verðug listaverk ef þær stæðu í einhverju nútíma listasafninu og væru húin að fá á sig þekkt nafn. Við göngum framhjá Einbúa á leið heim í Pálsbæ. Áður var Einbui áfastur við Bólfell, en nú hafa veður og vindar ásamt sjónum, sem bi’aut sér leið sinn i Lónið, unnið á hon- um, svo að hann er nú svipur hjá sjón við það sem áður var og er stöðugt að minnka. Sennilega hverfur hann með árun- um. Þegar við komum heim í Pálsbæ er Hálfdán með lieitt kaffi á borðum, sem við njótum vel eftir göngutúrinn. Flugvélin kemur og við erum selfluttir til Vestmannaeyja °g fljúgum svo þaðan með annarri vél til Reykjavíkur. Þetta hefur verið vel lieppnaður dagur og ferðin tekizt ágætlega. Oft hafa Surtseyjarferðir verið slarkkenndar, þegar farið liefur verið með bátum í alls konar veðrum, því að á skömm- um tíma skipast veður í lofti. Stundum getur landtaka ver- ið slæm á gúmmíbát, í öldurótinu sem stöðugt nauðar á Sur tseyj arströndum. Framhald á bls. 32. Zí.tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.