Vikan - 21.05.1970, Blaðsíða 12
Þrátt fyrir Heklugosið
nýja er Surtsey enn
ævintýralegasta
náttúruundrið.
Greinarhöfundur við einn af gömlu t
gígunum. Þar er ennþá mikill hiti, þó
að liðin séu þrjú ár síðan hann gaus.
fljótlega; og erum við nú ný lentir á þessum flugvelli og
ætlum að dvelja liér í dag, til þess að undirbúa veru vísinda-
manna, sem hér munu dvelja í sumar, svo og annarra gesla.
Það er laugardagur 18. apríl 1970, almanakið segir sumar-
mál. Veður er ágætt, vestan gola og smá skúra- eða élja-
drög út við sjóndeildarhringinn.
Við erum fimm, sem fórum út í Surtsey í dag. Einn flaug
beint út í eyju, en hinir flugu til Vestmannaeyja og þaðan
selflytur Þórólfur flugmaður mannskapinn út í Surtsey á
litla REB-anum sinum. Hún tekur aðeins einn farþega, en
er góð i þessar ferðir, þar sem hún lendir og tekur sig upp
á mjög stuttri braut.
Hálfdán á Kvískerjum ætlar að dvelja í eyjunni um mán-
aðar tíma, ásamt pilti úr Vestmannaeyjum. Hann ætlar að
rannsaka fugla- og dýralífið þar. Hálfdán er þekktur vísinda-
maður á þvi sviði úr heimabyggð sinni, öræfunum. Ævar i
Geisla ætlar að koma vindrafstöðinni í lag, sem við settum
upp i fyrra haust. Hann veit allt um rafmagnið en þar þori
ég lielzt ekki að koma nærri. En ég ætla aftur á móti að sjá
um húsið, taka lilera frá gluggunum og annað sem húsinu
heyrir til. Það er alltal' nóg að starfa þegar komið er út í
Surtsey. Fimmti gesturinn er Sigurgeir ljósmyndari. Hann
hefur ekki komið hér áður, en er þegar hrifinn af þessu unga
landi við fyrstu sýn.
Það er unnið af kappi við alls konar störf. Farangurinn er
borinn af flugvellinum lieim i Pálsbæ, en svo heitir húsið
hér, til lieiðurs prófessor Paul Bauer. Húsinu var gefið nafn
í september 1966. Önnur heiti á stöðum sem ég nefni i þess-
ari grein, munu vera til orðin manna á milli, þeirra sem liér
hafa dvalið og komið, en munu ekki vera staðfest af ör-
Lifir hún? Þessi
spurning brann á
vörum manna fyrstu
mánuðina. En nú
er Surtsey orðin sjö ára
og hefur sannað
tilverurétt sinn.
wMm
^Tilgangur ferðarinnar að þessu sinni
var að vinna ýmis undirbúningsstörf
undir leiðangra sumarsins, meðal
annars koma vindrafstöðinni í lag, en
liún var sett upp í fyrrahaust.