Vikan - 21.05.1970, Side 39
FRÁ RAFHA
BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu og
2 hraðsuðuhellur. — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
56 LlTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar elemant (grill).
Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ OÐINSTORG - SlMI 10322
sagði hún við dyravörðinn á hó-
telinu. — Er nokkurt bréf til
mín?
Milly sá spegilmynd sína, sem
henni fannst frekar ókunnugleg.
Hárið var orðið svart og stutt-
klippt, hún hafði látið laga það
meðan hún stóð við í Berlín. Hún
var ekki svo afleit, en myndi Gi-
anni fella sig við þessa svart-
hærðu stúlku?
— Það er ekkert bréf til yðar,
sagði dyravörðurinn. — En það
er frátekin íbúð handa yður á
annarri hæð.
— Ekkert bréf? spurði hún
aftur.
— Ekki ennþá, ungfrú.
Hún var vonsvikin, en fylgdi
léttadrengnum sem bar töskurn-
ar hennar. Hún var ákaflega
þreytt, enda hafði hún ekki far-
ið úr fötum í 36 klukkutíma.
Hótelíbúðin var notaleg, stór
stofa vel búin húsgögnum, með
ísbjarnarfeld á gólfinu og svefn-
herbergi með tveim rúmum.
Milly flýtti sér að hátta, strax
og drengurinn var farinn. Svo
lagðist hún nakin í rúmið, til að
láta þreytuna líða úr sér. Það
var ekki orðið aldimmt. Hávað-
inn frá götunni náði til hennar
gegnum gluggann.
Milly starði upp í loftið. Eng-
in skilaboð frá Gianni... Henni
var þungt um hjartaræturnar.
Hún var nú komin inn í mitt
Pólland, en hún hefði með gleði
farið um þvert og endilangt
Rússland, jafnvel ennþá lengra,
til að hitta Gianni.
Jæja, hann hafði pantað þessa
glæsilegu íbúð handa henni, —
eða hafði það verið gert frá Vín?
Hafði María Vetsera gert það?
Hún stökk upp úr rúminu, — gat
ekki legið kyrr. Hún ætlaði að
klæða sig og fara niður. Það var
orðið næstum aldimmt nú. Hún
fann ekki gasljósin, en það voru
nóg kerti. Hún kveikti á eldspítu,
— og hrökk við. Það kom eitt-
hvert hljóð frá setustofunni. Eins
og verið væri að læðast þar um.
Hún heyrði skrefin nálguðust.
Hún snerist á hæl og þá
slokknaði á eldspítunni. Hún leit
til dyranna og kom auga á ein-
hverja veru, — eða var það mis-
sýning?
— Er, — er einhver þarna?
spurði hún með skjálfandi rödd.
Veran kom nær.
— Til þjónustu, ungfrú Lub-
owska ... Jóhann nokkurn Orth,
langar til að sýna yður virðingu.
— Gianni! hrópaði hún, frá sér
af gleði, og hljóp í faðm hans..—
Þú ert þá hér!
Já, hann var svo sannarlega
þarna. Hún þrýsti sér upp að
sterklegri bringu hans, fann
arma hans umlykja sig og varir
hans við sínar. Hún fann að
þetta var maðurinn sem hún
elskaði einan.
— Gianni... hvíslaði hún og
strauk fingrunum í gegnum
þykkt hár hans.
Næsta morgun fóru þau Gi-
anni og Milly til Jembice, þar
sem Gianni átti að hafa aðsetur
sitt.
Jembice var ósköp dauflegur
bær. Þar voru um átta hundruð
íbúar, ósköp lítið markaðstorg,
umkringt af tveggja hæða hús-
um, og ein aðalgata, sem hét
Herrenstrasse, hvorki meira né
minna.
Bæjarbúar lifðu konunglegu
lífi á herdeildinni. Við suður-
enda Herrenstrasse voru herbúð-
irnar, með æfingabúðum, hest-
húsum og öllu sem herdeildin
þurfti á að halda. í austri voru
bæjarmörkin birkiskógur, sem
hvarf í blágrárri móðu. Þar fyrir
handan lá Rússland, ríki zarsins.
í nágrenni Jembice voru nokkr-
ar hallir og jarðeignir, sem til-
hejrrðu pólska aðlinum.
f aðalbyggingu einnar af þess-
um landsetrum, sem nú var bú-
ið að selja, hafði Jóhann Salva-
tor fundið sér hentugt húsnæði.
Þar tók ráðskonan Dana Lub-
owska við hússtjórn.
Indælt tímabil í lífi þeirra Gi-
annis rann nú upp.
Fyrstu vikurnar voru dálítið
erfiðar fyrir Milly, en smám
saman vandist hún þeim skyldu-
störfum, sem hún varð að leysa
af hendi, og varð öruggari í
framkomu. Gianni varð ekki ein-
ungis ástvinur hennar, hann varð
líka kennari hennar og leiðbein-
andi.
Hún lærði ekki eingöngu að
stjórna heimili, hún lærði líka
umgengisvenjur aðalfólksins.
Hún lærði frönsku og listasögu,
hún lærði að sitja hest og aka
vagni.
Á þessum mánuðum, sem hún
dvaldi í Jembice, í útjaðri menn-
ingarinnar, varð Milly að full-
kominni hefðarfrú, því að hér
gat hún komið fram við hlið
erkihertogans í samkvæmislífinu.
Þau fóru í heimsóknir til pólska
aðalfólksins og buðu því heim.
Það voru haldnar miklar matar-
veizlur og garðsamkvæmi. Milly
varð fljót til að aðlagast þetta
allt.
Gianni var hamingjusamur
með Milly. Hann jós í hana gjöf-
um. Hann neitaði líka að snerta
peningana, sem hún kom með frá
Vín. Hann ákvað samt að lokum
að nota þá í hennar hag. Hann
HEIMILIÐ
„’Veröld ínrtan veggja ”
SÝIMING
22. MAÍ-7. JÚNÍ 1970
SÝNINGARHÖLLINNI
LAUGARDAL
LT KAUPSTEFNAN
REYKJAVÍK
2i. tw. viKAN 39