Vikan - 28.05.1970, Qupperneq 48
ÞRJÁR SÖNGKONUR - ÞRJÁR HLJÓMPLÖTUR
INGIBJORG og BG frá Isa-
firSi með metsöluplötuna ÞIN
INNSTA ÞRÁ sem kom út í
maíbyrjun.
f
ELLY VILHJALMS með írska
verSlaunalagiS ÞAÐ ER SVO
ÓTALMARGT sem kom út í
maílok.
V
ÞDRÍÐUR SIGÖRQARBQTTIR
ÞURIÐUR SIGURÐARDOTTIR
meS tveggja laga plötu sem
kemur út í byrjun Júni.
SG-hljómplötur fást í hljómplötuverzlunum um land allt
Betri helmingur
Churchills
Framhald af bls. 32.
Þegar ungfrú Clementine Ho-
zier giftist Winston Leonard
Spencer Churchill 12. september
1918, vissi hún að hverju hún
gekk.
—■ É'g reyndi ekki að ímynda
mér, að ég hefði gifzt hljóðlát-
um, heimakærum manni, sem
fór á skrifstofuna klukkan tíu á
morgnana og kom aftur reglu-
lega á sama tíma um kvöldið. Ég
vissi, að ég hafði gifzt eins kon-
ar mannlegu eldfjalli, ef hægt
er að taka svo til orða, og það
var skylda mín að skapa heim-
ili fyrir þetta eldfjall.
'É'g hafði mínar eigin hug-
myndir um, hvernig heimili
ætti að vera, enda þótt margar
konur vilji ekki vera á sama
bandi og ég í þeim efnum. Heim-
ilið á að vera friðsamur staður
og gleðilegur, þar sem börnin
geta þroskazt eðlilega og þar
sem maður getur notið kyrrðar
og hamingju.
Alla tíð fann Churchill kyrrð
oCT ró heima hjá sér, enda þótt
hann byggi á mörgum stöðum. f
heimsstyrjöldinn fyrri urðu hon-
um á afglöp, sem bundu þá enda
á miöp glæsilegan feril. Hann
bað þess vegna kónginri um að
mega fara til vígstöðvanna. Cle-
mentine var síður en svo glöð
'rfir bví. að maður hennar ætl-
aði að fara til vígstöðvanna.
Þetta var árið 1915. Hún átti þá
+vser rlae+ur og einn son, Diana,
sem fædd var 1909, Randolph,
sem fæddur var 1911 oe Sarah,
sem fæddist rétt eftir að stríðið
hófst. Tekjur Churchills voru
rýrar um þetta leyti og hann var
T'undskammaður um allt Eng-
land. En Clementine hrevfði
ekki hinum minnstu mótmælum
og lét ekki einu sinni í ljós neinn
vott af óánægju.
— Þegar eiginmaðurinn kem-
ur heim, verður hann að finna,
að þar bíður hans ást og öryggi.
Þar á ekki að bíða hans rifrildis-
gjörn og frek eiginkona, sem
rýkur á hann og skammar hann
um leið og hann stígur fæti sín-
um inn á heimili sitt.
Clementine hefur ekki skrifað
erfðaskrá, en hún hefur skrifað
nokkuð, sem aðeins fáeinir vin-
ir hafa fengið að sjá. Hún skrif-
aði niður það helzta, sem Sir
Winston líkaði að fá að borða.
Hún skrifaði þetta niður, ef svo
skyldi fara, að hún félli frá á
undan honum. Þetta er ef til vill
bezta sönnunin um þá fádæmu
umhyggju, ' sem hún bar fyrir
hinum fræga manni sínum.
— Eiginkona ætti aldrei að
reyna að vera jafnoki manns
síns, sagði hún eitt sinn, — eink-
um ef um stórmenni er að ræða.
Þess vegna kaus Clementine
Churchiil að dveljast í skugga
manns síns. Og meðan hann var
frægur um allan heim, var hún
hinn óþekkti bakhjarl hans,
enda þótt hún hefði bæði hæfi-
leika og fegurð til að bera til
þess að verða fræg.
Hön hjálpaði þeim manni, sem
kom heim með allar áhyggjur
veraldarinnar á herðum sér;
studdi hann og hvatti á þann
hátt. sem pnginn annar gat gert.
Þessi maður fyllti þá húsið
giarnan af sterkri lykt af risa-
stórum vindlum. Ef hann stráði
ösku á nýbónað gólfið eða gólf,-
teDoið, vissi hún. að hann gerði
það vevna þess að hann var ann-
ars hugar. .
Hún minntist aldrei á slíka
smámuni.
☆
Susan Hampshire ...
Framhald af bls. 49.
baráttuglaðir hertogar og
miklir kvennamenn!
Siðustu ættliðirnir eru:
Lord Randolph, sem geklc að
eiga ameríska konu, Jennie
Jerome. Sonur þeirra var Sir
Winston Churchill, sem
frægastur var í heimsstyrj-
öldinni síðari. Randolph,
sonur hans, lézt árið 1968,
og eftirlét syni sínum, blaða-
manninum Winston Chur-
chill, að bera hið fræga nafn.
☆
Palladómar
Framhald af bls. 21.
straumi og stormi, en voldug
og duttlungafull náttúruöfl í
iðrum jarðar. Gils er við-
kvæmur og svo hörundssár,
að hann gefst jafnvel upp fyr-
ir sjálfum sér í einrúmi, ef
eitthvað á bjátar, þó að hon-
um láti að sækja vasklega
móti ofviðri án þess að hrekj-
ast af leið. Ressi drungalegi
einfari getur og mætavel gert
sér dagamun í kunningjahöpi
og varpað af sér fargi hvers-
dagsleikans með bros á vör
og blik í auga, orðið hress í
bragði og látið gamansöm til-
svör fjúka. Vinum sínum er
Gils þvílíkur drengur, að hann
gleymir aldrei samúð, tryggð
eða liðveizlu. Hann steypir
yfir sig hringabrynju og geng-
ur keikur í hildarleik deilu-
þinga, en skortir víkingslund-
ina, hefnigirnina og vígamóð-
inn. Garpskapur Gils felst í
kröftunum, og hann hefur
orðið sterkur af kjarngóðri
fæðu í æsku sinni vestur á
fjörðum, hangiketi, flatkök-
um, riklingi, sméri og skvri.
Gils Guðnmndsso ner gerólík-
ur þeiin eftirhermum í hópi
borgarastéttarinnar, er stunda
laxveiði í sýndarskini en hafa
súkkulaðikökur og rjómatert-
ur að viðurværi. Hann vill ís-
lenzkan mat og engar refjar.
Lú-pus.
Rabbað um ...
Framhald af bls. 5.
máli. í þessum riðli eru lið frá
Marokkó, Búlgaríu, Perú og
Vestur-Þýzkalandi. Er flestra
álit að Vestur-Þjóðverjar vinni
þennan riðil, en mjög skiptar
skoðanir eru um hvaða lið
hreppir annað sætið. Er búizt
við að Búlgarar og Perúmenn
berjist harðri baráttu um það
sæti.
Almennt er búizt við að bar-
áttan um efsta sætið í keppninni
muni standa á milli Brasilíu-
manna og Englendinga. Þessir
aðilar hafa sjö sinnum leikið
saman og hafa Brasilíumenn
sigrað fjórum sinnum, þar af
síðast í fyrrasumar. Englending-
ar hafa unnið aðeins einn leik,
en það var 1956, þegar þeir unnu
á Wembley með fjórum mörkum
gegn tveimur. Tveim leikjum
hefur svo lokið með jafntefli.
Englendingar eru sagðir eiga
við svipuð vandamál að glíma
nú og 1966, eða fremur slaka
sóknarlínu. Þá þurfti Alf Ram-
sey að gera nokkrar breytingar
á sókninni, jafnvel eftir að
keppnin hófst og datt þá niður
á góða lausn, þar sem Geoff
Hurst var. Hurst þykir hinsveg-
ar ekki eins góður í dag og hann
var þá og segja sérfræðingar að
England vanti nú tilfinnanlega
leikmann á borð við Lugi Riva
frá Ítalíu, eða Gerd Muller frá
Vestur-Þýzkalandi.
Vörn enska liðsins er hinsveg-
ar nú, eins og 1966, mjög sterk
og verður ekki þess valdandi að
Englendingar missi af titlinum.
Málum er hinsvegar algjörlega
öfugt farið hjá Brasilíumönnum.
Vörn þeirra er talin fremur slök
og háir þeim mjög reynsluleysi
markmannanna. Sókn þeirra er
hinsvegar mun strekari nú, en
1966, þegar Pele átti einn að
vinna leiki þeirra. Nú hefur
hann annann stórhættulegan
sóknarmann við hlið sér, þar sem
hinn tuttugu og þriggja ára
gamli Tostao er, en hann gerði
tíu af tuttugu og tveim mörkum
Brasilíumanna í forkeppninni.
48 VIKAN 22- tbl-