Vikan - 01.10.1970, Page 8
nytsöm framleiðsla neytendum í hag
FATAVERKSMIÐJAN HEKLA AKUREYRI
Heklu-úlpur á
drengi og stúlkur
fást í þremur litum
í stærðunum 4-18.
Gefið börnum yðar Heklu-úlpur,
- sterkar, létfar, hlýjar;
allfaf sem nýjar.
ELDURINN
GERIR EKKI BOÐ Á UNDAN SÉR
c
SLÖKKVITÆKI
Valntlakl
VeljiS þá stærð og gerð slökkvitækja, sem hæfa þeim tegund-
um eldhættu sem ógna ySur. Við bendum sérstaklega á þurr-
duftstæki fyrir alla þrjá éldhættuflokkana. A flokkur: Viður,
pappír og föt. B flokkur: Eldfimir vökvar. C. flokkur: Rafmagns-
eldar. Gerum einnig tilboð í viðvörunarkerfi og staðbundin
slökkvikerfi.
I. Pálmason hf.
VESTURGATA 3 REYKJAVlK SlMI 22235
8 VIKAN «• tw.
á
D L REYMl
í tvo tíma
Kæri draumráðandi:
É'g ætla að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, en ég er búin
að segja hann tveimur konum;
þeim ber bara ekki saman.
Fyrir nokkru reiddumst við
vinkona mín tveimur strákum
sem við erum með, ’og nóttina
eftir dreymdi mig þetta: Við
gengum inn langan gang í kirkju
en prestur í messuklæðum gekk
á undan okkur og fór með okk-
ur inn í stóran sal. Þar fór hann
að lesa yfir okkur. Ég man ekki
lengur hvað hann sagði, en þeg-
ar við fórum tókum við vinkona
mín utan um strákinn sem ég
er með, og spurðum hann hvers
vegna hann væri vondur út í
okkur. - Spurðu Stjána, sagði
hann, en Stjáni er strákurinn
sem vinkona mín er með. En þá
labbar vinkona mín í burtu og
ég tek utan um strákinn og segi:
-— Af hverju ertu vondur?
Þá segir hann: — Hún Maja
er búin að gera mig áhyggju-
fullan í tvo tíma. Hann sagði
mörgum sinnum „í tvo tíma“.
En i þessu kallaði presturinn
í okkur og sagði: — Komið
hingað, þið hafið svo hátt. Svo
opnaði hann dyr í veggnum; ég
fór síðust út en þegar ég labba
út er þar lítil, Ijóshærð stelpa,
sem ég hafði ekki séð áður. En
þegar ég kem út er enginn af
krökkunum þar og presturinn
skellir hurðinni. Fyrir framan
mig var þá kviksyndi og ég var
að hugsa um hvernig ég ætti að
komast yfir það, en þegar ég
steig á grasið opnaðist jörðin og
allir krakkarnir sitja þar og ég
hjálpaði þeim upp úr. Svo
dreifðum við okkur, svo við
dyttum ekki öll þar niður sem
jörðin opnaðist. En þegar við
höfum gengið stuttan spöl yfir
þúfur, þá dett ég og strákurinn
sem eg er með, og vaknaði ég
við það að við vorum að reyna
að komast upp úr.
Afsakaðu skriftina.
XX.
Hefðir þú sofið 10 mínútum
skemur, hefði þig aldrei dreymt
þetta samhengislausa rugl.
MogV
Kæri draumráðandi!
Mér fannst ég koma hingað í
mitt heimapláss úr löngu ferða-
lagi, ásamt eiginmanni mínum á
stórum, yfirbyggðum vörubíl.
Við urðum að sitja á bekkjum
aftan á pallinum, því einhver
annar keyrði. Við fórum hér
niður í þorpið að litlu og gömlu
koti, sem er ekki lengur uppi-
standandi. Þar finnst mér fóst-
urmóðir mín koma út, en hún
er látin.
Hún er mjög tötraleg að sjá og
meðal annars er hún í tveimur
kjólum, og er sá ytri styttri en
sá sem innan undir er. Mér
finnst ég vera undrandi á útliti
hennar og klæðaburði, og að hún
skyldi eiga heima í þessum
húsakynnum. Þó minnist ég ekki
á neitt og tek í sama mund eftir
því að það er mikill snjór, og
finnst mér það furðulegt, því
þetta var að sumarlagi.
Þá tek ég eftir því að ermin
á kjól fóstru minnar er gegnvot
af blóði, og bregður mér mjög
við. Ég spyr hana hvort hún hafi
meitt sig? — Já, segir hún, —
þess vegna fór ég í annan kjól
utan yfir hinn, því hann er orð-
inn gegnvotur í blóði. Svo smeyg-
ir hún upp ermunum á kjólnum
og sýnir okkur þrjú stór göt á
upphandleggnum, hvert niður af
öðru, og drýpur úr þeim blóðið.
Mig hryllir við að sjá þetta, en
i sama bili bendir hún okkur í
átt þangað sem húsið okkar
stendur, en það er einbýlishús, en
þá er húsið okkar horfið og al-
veg auðn þar sem það stóð. En
utar stendur stórt, tveggja hæða
einbýlishús, Ijósbrúnt að lit.
Mér finnst maðurinn minn
segja: — Hér byggi ég ekki aft-
ur. Ég spyr þá hver eigi þetta
hús, og fóstra mín svarar mér
að þeir eigi það nú, hann VM
og hann MK.
LKN.
Þessi draumur boðar ykkur
mikla örðugleika, fjárhagsvand-
ræði og jafnvel slys, en á endan-
um fer allt vel (eins og sjálfsagt
er) því það er fyrir hagsæld og
auðsæld að dreyma nöfn mann-
anna sem þú nefndir. Þvi er að
híta á jaxlinn....
Rétti mér
happdrættismiða...
Kæri draumráðandi!
Mér fannst ég vera heima hjá
systur minni. Ég var alein í eld-
húsinu þegar barnsfaðir minn
kom inn. Um leið og ég sá hann
hellti ég yfir hann skömmum
fyrir það hvað hann kæmi illa
fram gagnvart mér og barninu.
Hann svaraði mér engu en rétti
mér nokkra happdrættismiða og
bað mig að endurnýja þá. f því
fór hann og þar með endaði
draumurinn.
Strúnó, Akranesi.
Þessi draumur er fyrir eigna-
missi eða tjóni barnsföður þíns,
og er ekki ósennilegt að það
komi til með að snerta þig á ein-
hvern hátt.