Vikan - 01.10.1970, Síða 9
Pv /1/^xF^f i—1 n
SSKARTGRIPIRl
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist.
- SIGMAR Ot PÁIMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355 og
Laugaveg 70. Sími 24910
Systir þín er ólétt
Kæri draumráðandi!
Mér fannst ég vera heima hjá
mér með vinkonu minni fyrr-
verandi. Hún segir við mig: —
Heyrðu, hún systir þín er ólétt.
Eg varð mjög hissa, en þá
sagði hún mér að systir mín
hefði beðið sig að segja mér
þetta, því hún þyrði það ekki
sjálf. Eg varð strax reið við
systur mína, að hún skyldi ekki
hafa sagt mér þetta fyrst. Þá
sagði vinkona mín mér að þetta
væri allt í lagi, hún væri svo vel
undir þetta búin að öllu leyti,
en læknirinn væri ekki búinn að
staðfesta gruninn.
Mér fannst þessi draumur
undarlegur, því systir mín er
orðin 18 ára og hefur aldrei ver-
ið við karlmann kennd. Hún er
líka á skóla. og því varð ég hissa
á orðatiltæki hennar í draumn-
um. Mér fannst líka undarlegt
hvernig mér leið; það var eins
og ég fylltist gremju yfir því
hvað hún væri kærulaus, af því
að mamma er engin manneskja
í að taka barn.
Með fyrirfram þökk.
EJ.
Þessi draumur boðar systur
þinni einhver mótlæti, þó ekki
alvarleg. Sennilegast, er að hún,
ung og óreynd, lendi í einhver.iu
ástarævintri. og taki það alvar-
legar en ætlun hins aðilans er.
Það er töluverð tíðarandaspcki
í niðurlagi bréfsins.
Rautt blóm op svört föt
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi tvo drauma með
stuttu millibili um daginn, og
lðngar að fá þá ráðna.
Sá fyrri er svona:
Mér finnst ég ætla að fara að
opinbera trúlofun mína, og mað-
urinn situr við borð, hlaðið alls
konar mat, en ég stend hjá og
segi, er trúlofanir berast í tal:
„Mér er nú ekki sama hverjum
ég trúlofast.“
Þá stendur hann upp og ég sé
að fingur hans eru alsettir silf-
urhringum. Hann tekur einn af
sér og dregur hann á fingur mér.
Ég kyssi hann fyrir og er alsæl.
Þá dregur hann upp öskju, dreg-
ur upp tvo gyllta hringa, báða
með einhvers konar pinna upp
úr. Á pinnanum eru blóm, hvítt
á öðrum og rautt á hinum, með
öfuga liti innan í.
Svo biður hann mig að velja.
Ég valdi rauða blómið, en set
ekki hringinn upp strax. Þá seg-
ir hann: „Settu upp hringinn,
því annars skila ég þeim báðum
strax.“ Þá set ég hann upp og
nær hann yfir alla hendina, og
fannst mér hann of stór fyrir
mig, en hafði hann samt. Eg
man að ég hugsaði í draumnum:
„Það er eins gott að vera ekki
með þennan í vinnunni.“
Hinn er svona:
Mér fannst ég vera við ein-
hvern skíðaskála og ekki hugsa
um annað en að komast út úr
húsinu og heim. Ég var blá-
klædd í draumnum en alltaf að
hugsa um að skipta um föt þeg-
ar ég kæmi heim. Þá ætlaði ég
í svartar buxur, svarta peysu og
setja á mig svarta húfu, vettlinga
og klossa.
Svo mætti ég stúlku með
vöggu á undan sér (í skálanum)
og fannst mér ég eiga dúkku
sem ætti að vera í vöggunni og
fór að gramsa í henni, en fann
ekki dúkkuna, því vaggan var
full af telpukjólum í öllum lit-
um. Sagði stúlkan að dúkkan
væri undir kjólnum, og fannst
mér að dúkkan ætti að fara á
sýningu sem átti að vera i skál-
anum.
VELJIÐ
t e d d y
VORUMERKIÐ, SEM ALLIR ÞEKKJA.
V_____________________/
FROMLEIÐUM:
Telpnakápur
telpnaúlpur
drengjaúlpur
barnagalla
drengjafrakka
telpnadragtir
kápur
kvensíðbuxur
kvenúlpur
SOLIDO: Fataverksmiðja
Bolholti 4, IV hæð.
Ég held áfram að reyna að
komast út en kemst ekki. Þá
mætti ég pabba mínum, sem
spyr hvert ég sé að fara. É'g segi
honum það og einnig hvernig ég
ætli að klæða mig. Þá segir hann
hlæjandi: „Ha, ha, svartklædd á
rauðum skíðurn!"
Ég varð leið yfir því að skíð-
in skyldu ekki passa við fötin og
vaknaði við það.
Þakka fyrirfram.
Anný.
Fyrri draumurinn boffar þér
smávægileg óþægindi, sem geta
ágerzt, ef þú ekki gáir að þér,
en niðurlag draumsins bendir til
þess að þú mundir gera það.
Síðari draumurinn boðar þér
mikla eftirvæntingu; þú átt eft-
ir að hlakka mikið til einhvers
hlutar og búast við mikilli gleði,
en verður svo fyrir einhverjum
vonbrigðum — mjög svo tíma-
bundnum þó, en þú verður allra
líklegast að deila þessari gleði
þinni óskiptri.
Svar til ÞÆÖ
Draumur þinn er mjög óljós,
og koma þrjár ráðningar til
greina: Ykkur vinkonunum sinn-
ast eitthvað, og verður það al-
gjörlega þín sök; hún svíkur
vináttu þína; hún lendir í slysi
— og er það misráðið hjá okkur
að telja þann möguleika siðast-
an....
40. tbi. VIKAN 9