Vikan


Vikan - 01.10.1970, Qupperneq 11

Vikan - 01.10.1970, Qupperneq 11
því, er að siglingafræði laut, harla bágborin, hjátrú, hindur- vitnum og kreddum blandin. Ekkert kunnu menn þá til varð- veizlu nýmetis, og næringar- fræði var þeim óþekkt hugtak, enda varð skyrbjúgur og aðrir fjörefnisskortssjúkdómar mörg- um slíkum leiðangri að tortím- ingu. Við alla þessa örðugleika og hættur bættist svo það, að skipverjar voru oftast nær úr- hrök hafnarborgaskrílsins, því að þessar ferðir höfðu, og ekki að ósekju, það orð á sér, að fáir vildu til þeirra ráðast, er aðra úrkosti áttu. Yfirmennirnir voru oft og tíðum skipverjunum engu betri. Leiðangursforingjarnir máttu því sífellt vera við upp- reisn búnir. Þeir áttu um það eitt að velja að refsa hverjum þeim grimmilega, er mótþróa sýndi og allur agi byggðist á ótt- anum við pyndingar og líflát. Leiðangurssaga Magellans ber þessu ljós vitni. Það jók og á örðugleika hans, hvað stjórn sn^rti, að Spánverjarnir, sem fjölmennastir voru á flotanum, höluðu hann og töldu sér sýnda litilsvirðingu, er þeim var skip- að undir stjórn Portúgala. Þeir biðu því fyrsta tækifæris, er þeim gæfist, til þess að svíkja hann og koma fram við hann hefndum. Nokkrir stjörnufræðingar, landfræðingar, sagnritarar og aðrir lærðir menn tóku þátt í leiðangri þessum. Þeirra á með- al var ítalskur aðalsmaður, sagn- ritarinn Antonius Pigafetta. Hann var Feneyjabúi, en fékk leyfi Karls keisara til þess að taka þátt í leiðangrinum. Piga- stendur ofar við fljótið, fóru þar fram hátíðáhöld mikil í Santa Maria de la Vittoria kirkju. Þar tók Magellan við konungsfánan- um og sór Karli keisara holl- ustueiða, en yfirmenn leiðang- ursflotans sóru Magellan trú og hlýðni sem foringja sínum. Flotinn stefndi til Kanaríeyj- anna. Magellan hafði boðið, að hans skip skyldi ætíð fara fyrst, einnig að blys skyldu loga á skutlyftingu hvers skips á nótt- um, svo að sæist til ferða þeirra, og með ljósmerkjakerfi, er hann hafði samið, gat hann gefið öll- um flotanum fyrirskipanir um stefnu og seglahögun, er myrkt var orðið. Hinn 26. september var flotinn kominn að Teneriffa, og þótt skammt væri af ferðinni, var þó þegar tekið að örla á mótþróa meðal yfirmannanna. Skinstiórinn á ,,San Antonio“, Juan de Cartagena, krafðist þess, að Magellan skýrði frá fyrirhug- aðri siglingarstefnu flotans, en Magellan svaraði því einu, að Cartagena kæmi slíkt ekki við. Frá Kanaríeyjunum hélt flot- inn suður með Afríkuströndum og hreppti óhagstætt veður alla leið suður að miðjarðarlínu. Um þriggja mánaða skeið áttu þeir við sífelldan mótbyr að stríða; oft var hvassviðri og steypiregn. Er Magellan bauð að minnka skyldi matarskammt skipverja, vakti það óánægju og undirróð- ur, sem Cartagena skipstjóri efldi eftir mætti. Magellan sá, að skjótra og róttækra gagnráða þurfti við. Hann boðaði æðstu menn flotans til fundar við sig á skin sitt. ..Trinidad". og setti þar skipsrétt. Cartagena lézt LOFTUR GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR SKRIFAR UM SÆFARANN OG LANDKÖNNUÐINN FERDINAND MAGELLAN til Kanaríeyjanna, hvað þá lengra. Ahöfn flotans var af ýmsum þjóðum, þótt Spánverjar væru þar liðflestir. Auk þeirra voru í þeim hóp 25 ítalir, 20 Portúgal- ar, 10 Frakkar, nokkrir Þjóð- verjar, Hollendingar, Grikkir, negrar, Malajar og einn Eng- lendingur. Ekki verður því ann- að sagt, en áhöfn flotans hafi verið æði mislit og líkleg til sundrungar. Betur hentaði leiðangursfor- ingjum í þá daga, að þeir væru harðfengir og kjarki gæddir um- meðalmenn. Þeir sigldu litlum, illa búnum skipum um ókunn höf. Sjókort þeirra voru villandi og verri en engin, mæl- ingatæki öll ófullkomin og þekk- ing foringjanna sjálfra á öllu fetta var djarfur maður og hraustur og lærður vel. Hann reyndist Magellan tryggur og einlægur förunautur og sýndi þrásinnnis, að hann var þess al- búinn að leggja líf sitt í hættu hans vegna. Hann reit síðar sögu leiðangursins, er þykir hin merk- asta, þótt ekki sé hún laus við ýkjur og hindurvitni. Er þess heldur ekki að vænta, því bæði var það, að þekking lærðra manna átti þá enn nokkra sam- leið með hjátrúnni, og ýkjur þóttu sjálfsagt krydd í hverri ferðasögu, — og virðist sá smekkur þrálátur með mönnum. Hinn 20. september 1519 lagði floti Magellan í haf frá hafnar- bænum San Lucar við mynni Guadalquiver. Áður en flotinn lagði af stað frá Sevilla, er hvergi smeykur, atyrti og lítils- virti leiðangursforingjann og hvatti áhafnir skipanna til upp- reisnar gegn honum. Magellan hlýddi á mál hans, en bauð síð- an, að hann skyldi lagður i fjötra. Er Cartagena heyrði þá skipun, trylltist hann af bræði, skírskotaði til spánskrar aðals- tignar sinnar og bauð skipstjór- um og öðrum yfirmönnum flot- ans að veita sér aðstoð og taka Magellan höndum. Enginn varð þó til þess að veita Cartagena lið. Festa og hugrekki Magell- ans vakti aðdáun og virðingu leiðangursmanna; spanski aðals- maðurinn var lagður í fjötra, og þeir, sem stutt höfðu undirróð- ur hans, þögnuðu um hríð. Þegar flotinn kom suður fyrir Framhald á bls. 36 Það var fríður floti, sem lagði af stað í fyrstu ferðina umhverfis jörðina. En aðeins eitt skip komst heilu og höldnu aftur til baka og aðeins örfáir menn lifandi af þeim sem lögðu af stað. Þetta er teikning af skipinu, sem kom aftur, en það hét „Viktoría“. 40. tbi. YiKiAN 11

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.