Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 27
Klæðadeild L. H. Muller framleiðir (frá vinstri): Midi-
kápu úr íslenzkri Gefjunarull í stærðunum 36—44 og
mörgum litum, verð um 4.500 krónur; stuttur herra-
jakki úr ull (skólajakki), aðskorinn í mitti, margir
litir og stærðir 46—52, verð ca. 4.600 krónur; vatt-
fóðruð terelyne-kápa með loðkraga. Tvíhneppt, að-
skorin og belti ef vill. 6 litir í stærðunum 38—46, verð
4.600 krónur. Vörumerki: „Janus“.
Einnig frá Sjóklæðagerð-
inni og Max eru þessi
velour-náttföt sem eru
með slá er tekin er af fyrir
háttinn. Framleitt i stærð-
unum 36—46 í öllum litum.
Verðið frá ca. 640—900 kr.
Módel Magasín sendir frá
sér þessa kápu úr tvíofnu,
íslenzku ullarbandi, svo-
kölluðu „duffing“. Þessi
kápa er aðallega ætluð til
útflutnings og framleidd í
stærðunum 36—44.
Hönnun: Jón Skúli
Þórisson.
Frá Belgjagerðinni
(Skjólfatagerðinni)
kemur þessi herrajakki
úr (nappa)skinni og kallast
„Safari-jakkinn“. Fram-
leiddur í stærðunum 46—
56 og kostar á milli 8 og
9.000 krónur.