Vikan - 01.10.1970, Page 48
heppnina með sér, aðrir leituðu
með logandi ljósi og fengu ekki
einu- sinni herbergiskytrur. Og
vegna þess að til stóð að rífa
húsið, var leigan ekki svo há.
Loksins voru þau búin að fá
fast athvarf, svo þau þurftu
ekki að laumast inn á herbergi
hvors annars, eða jafnvel leigja
sér hótelherbergi, til að geta
verið samvistum.
Þessar tvser vikur sem þau
höfðu búið þar, áður en þau
fóru burt úr bænum, höfðu þau
notað til að koma sér fyrir. Þau
höfðu hlegið sig máttlaus, þegar
þau voru búin að bera upp dótið
sitt, þetta var eins og krækiber
í ámu, ekki einu sinni nóg í
hálft herbergi. En flygilinn og
teikniborðið fylltu svolítið upp.
Og svo höfðu þau reynt að snapa
saman gamalt dót hjá ættingj-
um og vinum og keypt smávegis
ódýrt á fornsölum. Það var til-
hlökkunarefni að koma sér fyrir
aftur.
Þá voru þau komin upp. And-
dyrið var svalt í hálfrökkrinu.
Cissi hljóp upp stigann, gat ekki
beðið eftir Sten, sem var að
borga bílstjóranum og taka við
töskunum. En þegar hún opnaði
dyrnar sló hitinn og óloftið á
móti henni, jafnvel ennþá mollu-
legra en úti á götunni. Sten setti
frá sér töskurnar og þurrkaði af
sér svitann.
— Púh, hér er heitt! Opnaðu
gluggana og svo förum við út
. að borða, meðan loftið hreins-
ast....
Það var svolítið kjánalegt að
koma heim, til að fara strax út
aftur, en Cissi sá að þetta var
skynsamleg tillaga. Þau mættu
engum á leiðinni út, það var eins
og húsið væri mannlaust.
Sten tók undir arm hennar og
þau gengu inn á „Players Inn“.
Það var notalegt þarna inni. Á
borðinu stóð körfuflaska með
rauðvíni og karfa með brauði,
einhver framandlegur blær yfir
öllu. Hnífapörin voru með tré-
sköftum og keramikdiskarnir
stórir og dökkbrúnir.
Þau fengu sér nautasteik og
með henni fengu þau stórar skál-
ar af salati og heljarstóra pipar-
kvörn. Cissi steinþagði og naut
þess að borða. Það var Sten sem
rauf þögnina:
— Hvað segirðu um að lofa
gluggunum að standa svolítið
lengur opnum og fara í bíó?
Cissi kinkaði kolli, svolítið
undrandi. Það var eins og Sten
vildi draga það sem mest á lang-
inn að fara heim, eins og hann
kviði fyrir því. Stundum hafði
hún það á tilfinningunni að hún
þekkti hann alls ekki, þótt þau
væru búin að vera saman í hálft
annað ár.
Framhald í næsta blaði.
Eg flyt ekki í dag
Framhald af bls. 29
sagði herra Cartwrighl, —
en ég er hræddur um að þið
verðið að koma aftur á
morgun.
— Þú veizt sjálfur að það
er ekki hægt, sagði röddin.
— Við eigum að flytja fyrir
þig i dag.
— Og ég segi á morgun,
sagði herra Cartwríght.
— Ég er einungis að
hlýðnast skipunum, sagði
röddin. — Viltu að ég segi
yfirmanni mínum hvað þú
sagðir?
— Segðu yfirmanni þín-
um að við ætlum ekki að
flytja í dag og svo nær það
ekki lengra.
Herra Cartwright lokaði
og læsti. George fjarlægði
byssuna. — Hvers konar
fyrirtæki ert þú að skiptá
við ? spurði hann. — Eru þeir
svona harðir að þeir lcoma
tvfsvar og heimta að fá að
fiytja?
Herra Cartwright svaraði
ekki og George varð litið út
um gluggann. Allt í einu
stökk hann til hhðar með
hræðslusvip á andlitinu.
— Clay! Upp með þig!
Löggan er fyrir utan!
Nú heyrðist margfalt fóta-
tak fyrir utan og á endanum
var lamið hraustlega á dyrn-
ar.
— Opnið! hrópaði ný
rödd. — Þetta er lögreglan!
Clay ’stökk upp af sófan-
um og skaut þremur skotum
í gegnum dyrnar. — Hvem-
ig fundu þeir okkur? æpli
hann á félaga sinn.
Púðurreykur erti nefgöng
herra Cartwrights, og rétt á
eftir skutu lögreglumennirn-
ir i gegnum gluggann. Herra
Cartwríghl fann kúlurnar
þjóta allt í kringum sig og
liann þreif í konu sína og dró
hana með sér inn í eldhúsið.
í hávaðanum og ruglingn-
um öskruðu bófarnir hvor á
annan. — Við verðum að
komast héðan út! hrópaði
Clay.
— Það er ekki hægt!
svaraði George. — Við verð-
um þá að skjóta okkur út!
Skyndilega komu tveir
hlutir í gegnum stofuglugg-
ann, og áður en hægt var að
snúa sér við sást ekki lianda
skil í stofunni fyrir þykkri
þoku. Herra Cartwright fór
að nudda augun. — Tára-
gas! sagði hann við konu
sína.
Rétt á eftir opnuðust úti-
dyrnar og Clay og George
lilupu út, skjótandi út i loft-
ið. Fyrir utan voru nokkrir
lögregluhílar og hópur lög-
reglumanna sem svöruðu
skothríðinni. Bófarnir féllu
slrax. Tveir bílar komu til
viðbótar og fleiri lögreglu-
menn komu út með vopnin
í skotstöðu.
— Ekki skjóta! hrópaði
Bifreiðaeigendur! Munið að vetur fer í hönd og tímabært
að gera snjóhjólbarðakaupin.
Eins og endranær bjóðum við yður hina óviðjafnanlegu
NOKÍA-snjóhjólbarða.
Flestar stærðir fyrirliggjandi.
v---------------------------- ...___________________________^
r A
ÞAÐ ERU ALUR
SAMMÁLA UM GÆÐI
NOKÍA
HJÓLBARÐANNA.
V_________________J
Sendum í póstkröfu.
ALLT Á SAMA
STAÐ
Egill
¥ilhjálm§»on li.f.
Laugaveg 118, sími 2-22-40.
48 VIKAN 40- tbi.