Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 4
Flestum minnkar jrelsi, þá jeng-
in er kona.
íslenzkur málsháttur.
"
Hált er lífið á hestbaki...
Candice Bergen, 24 ára gömul
bandarísk leikkona, datt af hest-
baki við kvikmyndatöku í Mexi-
kó í sumar og kom niður beint
á sitjandann, eins og þessar
skemmtilegu myndir sýna. Leik-
konan er þaulvön hestum, en
misbauð skapsmunum klársins
við myndatökuna. Bergen hefur
leikið í nokkrum kvikmyndum,
en frægust varð hún hér um árið,
þegar sá kvittur komst á kreik,
að hún ætti vingott við Robert
Kennedy.
Hús úr eintómum pappa
Margir hafa látið sig dreyma
um, að nýjar byggingaraðferðir
gerðu það að verkum, að allir
gætu eignazt sitt eigið hús, án
þess að þurfa að vinna baki
brotnu meira en helming ævinn-
ar. Nú eru taldar nokkrar líkur
á, að Bandaríkjamönnum hafi
tekizt þetta. Þeir hafa smíðað
hús, sem gert er úr eintómum
pappa og er þar af leiðandi hræ-
ódýrt. Hver sem er getur keypt
það tilbúið og reist það sjálfur á
fimm klukkustundum. Stríðið við
handverksmennina er þar með úr
sögunni og allar fjárhagsáhyggj-
ur sömuleiðis.
Fjörutíu fermetra hús úr pappa
kostar ekki nema rúmar 70 þús-
und krónur, og 130 fermetra ein-
býlishús kostar tæpar 300 þúsund
krónur.
Fyrstu pappahúsin hafa staðið
í Kaliforníu í sumar til reynslu.
Framleiðendurnir gera sér vonir
um, að pappahúsin eigi að geta
staðið hvar sem er í heiminum í
hvaða loftslagi sem er að minnsta
kosti í tuttugu ár. Veggirnir eru
þaktir glertrefjahúð og eiga að
vera fullkomlega vatnsheldir.
Burðarásar eru einnig úr pappa
og þakið er sagt svo sterkt, að
tveir menn geti hlaupið á því, án
þess að það brotni.
Allt húsið vegur ekki nema um
500 pund og það kemst fyrir í
tveimur kössum. Ef engir gallar
koma fram, verður hafin fjölda-
framleiðsla á pappahúsunum
innan skamms. Þá pantar maður
bara húsið sitt og fær það sent
heim í pósti!
Kvikmynd um Sharon Tate
Sharon Tate lék hvert hlut-
verkið á fætur öðru á skömmum
en glæsilegum ferli sínum. Nú er
líf hennar og dauði orðið hlut-
verk í kvikmynd. Það er ítalski
leikstjórinn Gian Vittorio Baldi
sem hyggst gera kvikmynd um
ævi Sharon Tate. Undirbúning-
ur myndarinnar er þegar hafinn,
en erfiðlega hefur gengið að
finna leikkonu í titilhlutverkið.
Tvær þykja aðallega koma til
greina: Sænska leikkonan Ewa
Aulin og franska leikkonan
Macha Meril. Ewa er álitin líkj-
ast Sharon meir, en Macha hefur
einn kost fram yfir keppinaut
sinn: Hún er eiginkona leik-
stjórans. . . .
4 VIKAN
42. tbl.