Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 10
Hræðslukenndir
o
Richard Burton er hræddur við dauð-
ann og mikinn mannfjölda. — Hræðsl-
an við að verða gleymdur, við að
hverfa, heldur mér vakandi á nótt-
unni. En ég er líklega ekki einn um
þetta
0
Howard Hughes var einu sinni heims-
frægur flugmaður og flugvélaverk-
fræðingur, en hann fer í felur. Jafn-
vel einkaritari hans hefur ekki séð
hann í mörg ár.
e
Hvað er Brigitte Bardot að segja við
fyrrverandi eiginmann sinn? Hún bað
hann að setja upp arin í dagstofunni,
en hann varð dauðskelkaður. Hann er
sjúklega eldhræddur.
O
Hinn auðugi skipaeigandi Onassis er
hræddur við morgundaginn, — hann
er ekki hræddur við að eyða pening-
um, en lifir í eilífri angist fyrir því
sem bíður hans á næstu krossgötum.
•— Ég er hræddur við tvennt,
segir Richard Burton. Mann-
þröng og dauðann. Þetta byrjaði
fyrir alvöru, þegar ég kvæntist
Elisabeth Taylor. Fólk hópaðist
að okkur, hvar sem við komum
fram. Stundum varð þetta alger
hrollvekja. Þegar ég lék Hamlet
á Broadway, varð ég að fá að-
stoð lögreglunnar til að komast
til lsikhússins og frá því. Ef ég
hefði ekki fengið þá aðstoð,
hefði ég aldrei komizt í nám-
unda við leiksviðið. Ég viður-
kenni að é<* var hræddur og ég
er ennþá dauðhræddur um að
einhver stingi hnífi í bakið á
mér, þegar ég er í mannþröng.
Það er stöðugt verið að hóta
okkur lífláti, bæði í síma og
bréflega og rétt áður en Hamlet
var frumsýndur, þá fékk leik-
hússtjórnin tilkynningu um að
það yrði fleygt sprengju í mig,
meðan á sýningu stæði.
Ég vakna á miðjum nóttum og
þreifa eftir sígarettupakkanum
og meðan ég ligg reykjandi í
myrkrinu hugleiði ég hvað um
mig verði. Ég er hræddur við
að deyja, að verða skilinn einn
eftir, verða að engu. Og ég verð
andvaka alla nóttina vegna þess-
arar hræðslu. En ég býst ekki
við að ég sé einn um þetta. . . .
Richard Burton er kvalinn af
hræðslukennd, tvöfaldri hræðslu-
kennd, hann er hræddur í mann-
þröng og hræddur við dauðann.
Það er rétt hjá honum, hann
er ekki einn um þetta. Við þekkj-
um öll fólk, sem á einn eða ann-
an hátt er haldið einhverri
hræðslukennd, eins og innilok-
unarkennd eða hræðslu við auð
svæði.
Svo eru aðrir sem hafa ein-
kennilegar hræðslukenndir, eins
og sjúklega hræðslu við óhrein-
indi. Og margir óttast töluna 13.
Sú hræðsla er svo algeng að
mörg hótel nota ekki herbergi
númer 13 eða 13. hæð.
En það versta hlýtur að vera
hræðslan við allt.
Tsjaikovski þjáðist af allsherj-
ar hræðslukennd. Hann var sjúk-
lega þunglyndur, hræddur við
kynferði, konur og dauðann.
Hann var stöðugt hræddur um
að höfuðið dytti af honum og
þess vegna studdi hann við það
með vinstri hendi, þegar hann
hélt á taktstokknum í þeirri
hægri.
Okkur finnst þetta hlægilegt,
en það hefur honum ábyggilega
ekki fundizt sjálfum.
Hræð'slukennd frú „Corn Flakes“
er eiginlega frekar sérvizka.
Það er athyglisvert að áber-
andi hræðslukenndir gera frek-
ast vart við sig hjá auðugu fólki.
10 VIKAN 42 tbl-