Vikan


Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 33

Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 33
• tOKh'l>*iUUkrr Jóhann snnonr meó Tölupum Þegar eitthvað heyrist frá Tötur- um er það yfirleitt svo merkilegt, að fiðringur um mann fasrist allan. I fyrrahaust var það Tataraherferðin, í sumar var það platan þeirra frá- bæra og Janis Carol, og nú er það Jóhann G. Jóhannsson, bassaleikari Óðmanna, sem hefur gengið í lið með Töturum og verður söngvari hljómsveitarinnar, auk þess að grípa í munnhörpu við og við. Bassaleikari verður eftir sem áður Jón Ólafsson, og er hann nú að byrja f Tónlistar- skólanum þar sem hann leggur stund á nám í klarinettleik. Þegar að því kemur að Jón getur farið að leika á það hljóðfæri með Töturum er aldrei að vita nema Jóhann grípi í bassann. Sagði Jón að þeir félagar væru yfir sig hrifnir af þessari nýju ráðstöfun, en því miður gat ég ekki náð í Jóhann sjálfan áður en blaðið fór í prentun. Óðmenn eru þar með hættir. Finn- ur hyggst snúa sér algjörlega að náminu, en hann les lögfræði við Háskóla íslands, en hvað Reynir ætl- ar að gera er óráðið — ótrúlegt er að hann verði í vandræðum. Eins og kunnugt er þá er væntanleg á mark- aðinn LP-plata, eða tvær réttara sagt, svokallað „double-album" með hljómsveitinni, og þar með hefur draumur Jóhanns rætzt; eins og menn muna sagði hann f viðtali við þáttinn í sumar, að það sem héldi Óðmönnum saman væri löngunin til að láta eitthvað liggja eftir. TIL HAMINGJU, TATARAR & JÓHANN! ^Hljómplötu gagnrýni EnoM. Ellv oo Vilhiálmiir Á meðan Engilbert Jensen hefur verið í vinsælli hljómsveit hefur hann verið talinn frábær söngvari, en um leið og hann hefur hrapað niður um eitt sæti á vinsældalistanum, þegar hann hefur hætt í Hljómum sálugu, hafa háværar raddir lýst því yfir að Engilbert geti sko ekkert sungið. Síðan Hljómar liðu undir lok fyrir rúmu ári síðan, hefur lítið borið á Engilbert, en nú er ekki loku fyrir það skotið að hann sé að hefja það sem á útlendu máli heitir „solo career“. Eftir 5—6 ár er ekki hægt að taka því á annan hátt en fagnandi, því Engil- bert Jensen hefur í gegnum árin sannað það og sýnt, að hann er svo sannarlega betri en enginn. Fyrsta sjálfstæða plata has kom nýlega á markaðinn og hefur að geyma tvö lög. Á A-hlið er lagið „Regndropar falla (við hvert fet)“, lag Burt Bacharach's við lélegan texta Þorsteins Eggertssonar. Lag þetta náði miklum vinsældum hér sem víðar um heim fyrr á þessu ári, enda hvorki meira né minna en Óskarsverðlaunalag fyrir árið 1970. Engilbert gerir þessu lagi mjög góð skil, þó svo að textinn dragi nokkuð úr áheyrnaránægju manns. Það sem einkennir þessa plötu er hversu einlægur Engilbert er í flutningi sínum og túlkun, jafnframt því sem hann gerir þetta á sinn eigin, sjálfstæða hátt. Undirleikur er af erlendum toga spunninn, en hinn góðkuni hljóm- sveitarstjóri og útsetjari, Jón Sigurðsson, blæs í rompet í millikafla. í endann vottar fyrir skemmtilegum tvísöng, a la Engilbert Jensen. Hinum megin er lag þeirra stórbítla Lennons og McCartneys, „Let it be“, sem við íslenzkan texta Jóhönnu Erlingson hefur hlotið nafn- ið „Fylgdu mér“. Það skemmir töluvert fyrir Engilbert í þessu lagi að textinn er ekki nægilega þjáll, og því virðist sem Engilbert sé of andstuttur. Ef til vill er það raunin — en ekki hitt. Textinn er í þessum hálfgerða tilbeiðslustíl Jóhönnu, og hef ég þá skoðun að síðar eigi eftir að viðurkenna það að hún hefur haft mikil og góð áhrif á íslenzka dægurtónlistarljóðagerð — og hvað hefur meiri áhrif á almenning? Gunnar Þórðarson leikur einleik á gítar á kafla, og gerir það á frábæran hátt, með öryggi og melódísku sjálfstæði; þessi umsögn er hugsuð út frá sama hlutverki Georges Harrisonar, í útgáfu Beatles. Annar undirleikur er útlendur. Plata þessi er mjög vel hepnuð, en umslag er ekki nægilega frum- legt —- Engilbert sjálfur var með betri hugmynd, sem fékkst ekki í gegn. Og í guðanna bænum, hljómplötuútgefendur, hættið að gefa út nýleg topplög. Bíðið a. m. k. með það í nokkur ár, þar til það fer að vekja þægilegar endurminningar. Upptaka plötunnar er góð og pressun sömuleiðis. Fálkinn gaf út. Framhald á bls. 49 42. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.