Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 13
híasi tókst að jafna metin í síð-
ari hálfleiknum.
í leiknum gegn KR-ingum,
höguðu veðurguðirnir sér þann-
ig að vart var hægt að ætlast
til þess að liðin léku knattspyrnu
af nokkru viti og lauk þeim leik
með marklausu jafntefli.
Eftir fyrstu umferð keppninn-
ar sýndi tafla sem eitt dagblað-
anna birti af stöðunni í deild-
inni að Akranesliðið var í neðsta
sæti. En er liðið hafði leikið þrjá
leiki var staðan í mótinu þessi:
Keflavík 2 2 0 0 5:1 4
K.R. 3 1 2 0 2:1 4
Valur 3 1 1 1 4:4 3
Fram 2 1 0 1 2:2 2
Víkingur 3 1 0 2 2:4 2
Akranes 3 0 2 1 1:3 2
Akureyri 1 0 1 0 1:1 1
l.B.V. 1 0 0 1 2:3 0
Eins og sést eru lið Akureyr-
inga og Vestmannaeyinga þau
einu sem eru fyrir neðan Akra-
nesliðið er hér er komið sögu,
og bæði höfðu leikið tveim leikj-
um færri, en lið Akurnesinga.
Qobá tr bikaríno aítur
ktHm ipp á Skna
Texti: Ólafur Brynjólfsson
Ljósmyndir: Egili SigurSsson.
En hér verða þáttaskil á frammi-
stöðu liðsins og ísinn brotnar í
fjórða leik keppninnar er það
vinnur Fram á Melavellinum
með tveim mörkum gegn einu,
en Eyleifi hafði tekizt að gera
sigurmarkið á síðustu mínútum
leiksins og átti það eftir að hafa
örlagaríkari afleiðingar en marg-
an grunaði þá.
Upp frá þessu breyttist hagur
iiðsins mjög til batnaðar og í
fimmta leik sínum vinna Akur-
nesingar sjálfa íslandsmeistar-
ana frá Keflavík með fjórum
mörkum gegn tveimur í mjög
skemmtilegum leik, sem fram
fór á Akranesi. Var þetta fyrsti
tapleikur Keflvíkinga í keppn-
inni.
Eftir þennan leik er liðið far-
ið að nálgast efsta sætið, einr,
og sést á töflunni hér fyrir neð-
K.R.
Akranes
Keflavík
Fram
Vikingur
Valur
Akureyri
Í.B.V.
5 2 3 0 6:1 7
5 2 2 1 7:6 6
4 2 1 1 7:5 5
4 2 0 2 5:5 4
4 2 0 2 5:5 4
4 1 1 2 5:7 3
2 0 1 1 2:3 1
2 0 0 2 2:7 0
Og enn heldur liðið áfram sig-
urgöngu sinni og vinnur hvern
sigurinn öðrum glæsilegri. f
sjötta leik sínum vinna Akurnes-
ingar Akureyringa fyrir norð-
an, en skömmu áður höfðu Akur-
eyringar burstað Vestmannaey-
inga í bæjarkeppni og var álitið
að vart tækist Akurnesingum að
sækja nema annað stigið norður.
En raunin varð önnur og unnu
þeir leikinn örugglega 3—1.
Næstu tvo leiki vann Akra-
nesliðið einnig: Vestmannaeyinga
með fjórum mörkum eegn einu.
í hreinum einstefnuleik og þá
hefndi liðið ófaranna frá fyrsta
leik sínum í keppninni og vann
Víkinga með tveim mörkum gegn
engu. Er hér var komið sögu, var
mótið liðlega hálfnað og liðinu
hafði tekizt að ná fyrsta sæti,
eins og taflan sýnir.
Ak^anes
Keflavík
Fram
K.R.
Í.B.V.
Akureyri
Vikingur
Valur
8 5 2 1
8 5 12
8 5 0 3
8 3 3 2
7 3 0 4
6 2 13
8 2 0 6
7 115
16:8 12
13:8 11
13:10 10
11:9 9
8:14 6
13:11 5
8:16 4
5:11 3
Þá kom marklaus leikur gegn
Akureyringum á Akranesi og
síðan stórkostlegur leikur gegn
KR á Laugardalsvellinum sem
lengi mun í minnum hafður fyrir
falleg mörk, mikla spennu sem
ríkti frá fyrstu mínútu hans til
hinnar síðustu og þá ekki sízt frá-
bæran leik Eyleifs, sem vart hef-
ur í annan tíma leikið betur en
þarna.
KR-ingar byrjuðu þennan leik
af þvílikum krafti og dugnaði,
að það leit helzt út fyrir að þeir
ætluðu að gera út um leikinn
þegar í byrjun og skoruðu þeir
strax á annarri mínútu glæsilegt
mark og héldu nokkru eftir það
þungri pressu á mark Akurnes-
inga. En smátt og smátt komst
lið þeirra í gang með sitt netta
Framhald á bls. 49
Á árunum frá 1951 til 1960 unnu
Akurnesingar IslandsmótiS sex sinn-
um. Þá lék Ríkharður Jónsson stórt
hlutverk í þeim sigrum og í íslenzkri
knattspyrnu almennt. Ekki er hlut-
verk Ríkharðs minna i dag, þvi óhætt
er að fullyrða að enginn þjálfari hafi
náð jafn góðum árangri sem hann i
sumar. Akurnesingar nú nýorðnir Is-
landsmeistarar og islenzka landslið-
ið, undir stjórn Rikharðs náði mun
betri árangri í sumar, en oftast ^ður.
42. tbi. viJvAN 13