Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 9
Liljur
Kæri draumráðandi!
Mér fannst ég vera heima hjá
mér, og sá ég út á götuna. Úti
fyrir fannst mér veðrið vera
gott, sólskin og logn. Allt í einu
sá ég hempuklæddan prest koma
gangandi með hatt á höfði og í
hattinum voru tvær stórar og
fallegar páskaliljur. Mér fannst
hann ganga beint inn í húsið á
móti og hverfa þar inn en ekki
lokaði hann dyrunum. Eftir and-
artak finnst mér eldri dóttir
konunnar í húsinu koma út og
kalla til litlu systur sinnar (sem
ég sá ekki) og segja að hún væri
að fara. Svo fer hún inn og rétt
á eftir kemur presturinn út,
stúlkan með honum og tvær aðr-
ar unglingsstelpur. Gengu þau
niður tröppurnar — og vaknaði
ég í sama mund við vekjara-
klukkuna.
Kona í Grindavík.
Draumnr þessi er ákaflega hag-
stæffur og boffar þér gott eitt,
hamingju og hagsæld. Innan
skamms kynnistu kvenmanni, og
frekar tveim en einum, og verff-
ur þaff þér til mikilla heilla, því
dugnaffurinn og kærleikurinn
skín út úr hverju tilliti og verki
þessa manneskja.
Hringurinn brotnaði
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi þennan leiðin-
lega draum um daginn:
Mér varð litið á hönd mína og
sé að giftingarhringurinn er
sokkinn inn í hendina á mér. Eg
fór að reyna að ná honum af, og
við það spíttist gröftur úr fingr-
inum á mér. Að lokum náði ég
honum þó af mér, en þá var
hann svo þunnur að þegar ég
skoðaði hann betur þá brotnaði
hann í marga parta.
Vonast eftir ráðningu sem
fyrst.
Kona á Stokkseyri.
Þetta boðar þér óvænt happ, sem
þú gætir auffveldlega misnotaff
þér. Sennilegast byrjar þú á því
aff misnota þér þaff á einlivern
hátt, lítilvægan, og ef þú ekki
gáir aff þér, þá mun happ úr
hendi þér sleppa mjög auðveld-
lega og eftir á ertu verr á þig
komin en áffur.
Sterkir litir
Kæra Vika!
Mér fannst ég vera ásamt vin-
konu minni í dökkum bíl og
ríkti þar algjört hljóð. Mér
fannst ég vera orðin Ijóshærð,
en er dökkhærð í rauninni og
vinkona mín, sem sat við hlið-
ina á mér í bílnum, var í alveg
snjóhvítum fötum.
Svo fannst mér ég líta í aftur-
sætið, og þá var það fullt af
hvítum eggjum. Þaðan leit ég á
stýrið og var það eldrautt, hend-
urnar sem héldu utan um það
snjóhvítar og maðurinn sjálfur
sem keyrði mjög dökkur. Ég
ætlaði út úr bílnum en þá voru
engin handföng á hurðinni, en
maðurinn rétti mér gulan lyk-
il sem ég opnaði með.
Síða gekk ég eftir breiðum,
steyptum vegi og var ég alein á
veginum. Framhjá stórum blokk-
um fór ég, að sjoppu og þar
keypti ég blað. Þá kom hvítur
Volkswagen sem stoppar og við
stýrið er ljóshærður maður sem
skipar mér inn í bílinn. Keyrði
hann mig heim.
Draumadís.
Þetta er öllum sem hlut eiga aff
máli fyrir einhverjum vandræff-
um, sennilega veikindum. Hlut-
verk mannsins sem keyrði fyrri
bílinn í draumnum, er sennileg-
ast það aff vara ykkur viff, en
einhvern veginn virffist allt velt-
ast þannig aff þiff takiff lítiff
mark á honum •— eða læknum.
Allir í jarSarför
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi núna fyrir skömmu. -—
Hann var þannig:
Mig dreymdi að ég væri barna-
pía hjá mömmu vinkonu minn-
ar, en hún tekur börn í gæzlu.
Mamma hennar (vinkonu minn-
ar) sem heitir X og fyrrverandi
vinkona hennar sem heitir Z,
talast ekki lengur við, en nú
hringir hún og biður X að koma
með sér til Keflavíkur til að vera
við jarðarför móður sinnar. X
segir já, og spyr hvort ég og
frændi vinkonu minnar sem býr
sjá þeim megi ekki koma með,
hvað Z kveður já við, og segist
þá ætla að taka frænda sinn með
líka. En einhvern veginn fer það
svo að frændinn B og ég verðum
eftir en hin fjögur fara. Þá kem-
ur það upp úr kafinu að þetta
var allt ráðabrugg af hálfu B
frændans og Z vinkonunnar, því
vinkona mín er nýfarin að vera
hrifin af strák og þetta var ein-
mitt hann sem fór með þeim. B
frændinn sem er búinn að vera
með sömu stelpunni nokkuð
lengi (og ætlaði hún að koma til
hans þetta kvöld) biður hana að
koma ekki. Ég er pínulítið hrif-
in af þessum strák, en hef eng-
an séns í hann.
Kæri draumráðandi! Þessi
draumur hefur sótt svo á mig að
ef þú vildir gjöra svo vel og ráða
hann fyrir mig, yrði ég allra
þakklátust.
Með fyrirfram þakklæti.
Gúddý.
Ef eitthvaff, þá boðar þessi
draumur þér þaff aff þú átt ein-
hvern séns í þennan frænda B.
Annars hef ég ekki mikla trú á
aff þessi draumur boffi nein sér-
stök straumlivörf í lífi þínu effa
annarra, en einhverja gleffi átt
þú í vændum.
Ty-Phoo
teið bragðgóða
fæst nú í
flestöllum
verzlunum
borgarinnar.
Reynið næst
TY RHOO
42. tbi. VIKAN 9