Vikan


Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 42

Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 42
einnig af móður og barni. Þessar myndir hafði hann tekið sjálfur, en mitt á meðal þeirra hafði hann hengt gamla Ijósmynd af sjálfum sér sem barni i fangi móður sinn- ar. A öllum veggnum hægra meg- in voru myndir af börnum að leik. Við dyrnar voru hins vegar allt aðr- ar myndir: nasrmyndir af ungu fólki við mótmælaaðgerðir. Þessar mynd- ir sýndu, hvernig lögreglan beitti valdi sínu miskunnarlaust. Fyrir utan eigin Ijósmyndir áfti hann lítið annað en Ijósmyndatæki sín. A bak við spegilinn hafði verið stungið nokkrum happdrætt- ismiðum. Þeir minntu hann óþyrmi- lega á, að gæfunni hafði enn ekki þóknazt að brosa við honum Eða hafði hún kannski gert það þrátt fyrir allt? Ef til vill um leið og hann hitti Cathy? Klukkan var níu, og nú ætlaði hann að hringja til hennar. Skyndilega var hann orðinn sannfærður um, að hún mundi marka þáttaskil í lífi hans. í fyrsta skipti í langan tíma langaði hann til að hefjast verulega handa og reyna að koma Ijósmyndunum slnum á framfæri; reyna að selia stórblöðunum „Life" eða „Look" þær, eða að minnsta kosti einhverj- um dagblöðum. Hann leit á stækk- uðu myndina af nöktu ungu móð- urinni með barnið í kjöltu sér. Þeg- ar hann kipraði saman augun, sá hann Cathy I hlutverki móðurinn- ar. Hann hló, opnaði augun aftur til fulls og teygði sig eftir síman- um. Cathy kom út úr baðherberginu. Vatnsdropar glitruðu enn á nökt- um líkama hennar eftir baðið. Hún leit andartak á sjálfa sig í speglin- um og hugsaði með sér, að horuð væri hún alls ekki. Grönn, en alls ekki horuð. A rúminu lá dagblað útbreitt. Hún tók það upp til að athuga betur smáauglýsingarnar. í sama bili hringdi síminn. Hún teygði sig eftir símtólinu, en dró skyndilega höndina að sér aftur. Á borðinu, þar sem síminn stóð, hafði hún einnig stillt upp lítilli mynd af Mal- colm. Þvert yfir hana hafði hann skrifað: Gangi þér vel og gleymdu mér ei. Síminn hringdi aftur, en Cathy snerti hann ekki. Þetta hlaut að vera Ken Daly, og henni fannst hún vera að svíkja Malcolm, ef hún gæfi honum undir fótinn. Hún mundi allt í einu eftir því, að hún var allsnakin og hraðaði sér inn í baðherbergið að sækja handklæði til að skýla sér. Síminn hringdi án afláts og loks gat Cathy ekki hlust- að á hann lengur, svo að hún á- kvað að svara hringingunni. Ken sagðist hringja til að bjóða henni í hádegisverð og sýna henni San Francisco. Hann lagði til, að þau borðuðu á „Top of the Mark", jafnvel þótt það væri eingöngu stað- ur fyrir ferðamenn. En hann lofaði, að hún skyldi þar fá að sjá útsýni, svo stórkostlegt, að hún hefði aldrei séð neitt því líkt áður. Hann var svo viðfelldinn í símanum og tal- aði svo skemmtilega, að Cathy þáði boðið að lokum. Hádegisverðurinn heppnaðist með afbrigðum vel. Og útsýnið yfir borgina var sannarlega þess virði að sjá það. Veitingahúsið var stað- sett ofarlega í skýjakljúf. Þau sáu vel yfir allan flóann, brúna, San Quentin og strandlengjuna mót norðri, þar sem hvítar, dýrindis vill- ur stóðu í röðum á bakkanum. Cathy fannst auðvelt að tala við Ken. Eftir að hafa drukkið eitt glas af Bloody Mary, var feimni hennar horfin með öllu og þau töluðu sam- an eins og þau hefðu þekkzt allt lífíð. Hún sagði frá uppvexti sín- um í Lundúnum; frá föður sínum, sem hafði unnið sem sölumaður hjá sömu skóverksmiðjunni allt sitt líf og var nú, aðeins fjörutíu og fimm ára, orðinn slitinn og gamall langt um aldur fram. Hún sagði frá móð- ur sinni, sem á sínum tíma hafði þótt undrafögur og var nú löngu hætt að elska manninn, sem hún giftist. Hún sagði Ken frá því, að faðir hennar hefði alltaf fyrirlitið vinnu sína; að hann hefði haft list- ræna hæfileika og hve stoltur hann varð, þegar í Ijós kom, að Cathy hafði erft þá. Hann hafði stritað baki brotnu til að geta kostað mennt- un hennar, en það hafði verið móð- ir hennar, sem hvatti hana til að freista gæfunnar í Ameríku. Móður hennar dreymdi um fé og frama og hún hélt, að tækifærin væru miklu meiri í Ameríku en Englandi. Þjónn kom með matseðil. Þau pöntuðu einn drykk til viðbótar. Og yfir öðru glasi sínu af Blody Mary sagði Cathy honum frá Mal- colm. Hún hafði verið með honum næstum í heilt ár. Hann var ást- fanginn af henni og vildi kvænast henni, það er að segja samkvæmt þeim skilningi, sem hann lagði í giftingu og hjónaband. Malcolm var brezkur hippi, útskýrði hún fyrir Ken. — En hann er þrjátíu oq eins árs. Ég held, að hann sé óþrosk- aður eftir aldri. Er hann ekki orð- inn of gamall til að vera hipoi? — Jú, áreiðanlega, sagði Ken. — Hann er orðinn hundgamall. — En hugsaðu þér, hve öfund- sjúkur hann mundi verða, ef hann vissi um þig. — Vissi hvað um mig? — Að þú býrð í Haight-Ashbury, auðvitað. Ken varð undrandi: — Hvað veizt þú um Haight-Ash- burv? — Það er jú hippahverfi San Francisco-borgar. Alla hippa í Lund- únum dreymir um að komast þang- að I þeirra augum er það líkt og fvrir múhammeðstrúarmenn að komast til Mekka. Ken hló. — Ég hafði ekki hugmynd um, að Haight-Ashbury væri svona frægt í Evrópu. — Jújú. Mig dauðlangar til að koma í þetta fræga hverfi. „Make love. not war". Hippar, sem koma og gefa manni blóm og svoleiðis. — Þannig er þetta bara ekki lengur. Blómin eru löngu horfin og LSD komið í staðinn. Cathy varð svo vonsvikin á svip- inn, að Ken lagði hönd sína yfir hennar í huggunarskyni. — En ég skal samt fara með þér þangað, lofaði hann. — Þér er öllu óhætt, á meðan þú ert í fylgd með mér. Vana sínum trú hafði Cathy tek- ið upp blýant og rissað á serviett- una, á meðan hún talaði. Ken tók serviettuna og virti fyrir sér það, sem hún hafði teiknað. — En þetta er gott, Cathy. Veru- lega gott. — Finnst þér það? Heldurðu, að það verði erfift fyrir mig að fá vinnu hér? — Alls ekki. Ég skal hjálpa þér til þess eins og ég get. Ég hef ýmis sambönd á þessu sviði, skil- urðu. Onnur hver auglýsingastofa í borginni er á höttunum eftir mér. En ég vil ekki taka auglýsinga- myndir. Ég hef sett mér miklu æðra takmark. — Það hef ég hins vegar ekki. Ekki strax að minnsta kosti. Maður verður jú að hafa peninga til að geta lifað. — Hreinn misskilningur, sagði Ken. Maður á að byrja á toppinum en ekki botninum. Aldrei að selja sig ódýrt. Ertu búin að borða? Þá ætla ég að sýna þér útsýnið bet- ur. Hann borgaði reikninginn, tók í höndina á Cathy og leiddi hana út úr veitingahúsinu, á svalir fyrir utan. í einu horninu voru litlar dyr með stóru skilti, sem á stóð: Neyðar- útgangur. Hann opnaði dyrnar og dró hana með sér inn. Fyrirvara- laust fann Cathy, að hún stóð á litlum járnpalli, sem var að því er virtist i lausu lofti. Járnstigi lá upp að þaki skýjakljúfsins. Cathy leit niður og greip andann á lofti. Þau voru stödd ótrúlega hátt uppi og stóðu þarna á litlum járnpalli og höfðu ekkert til að halda sér í. Hún greip eldsnöggt í eitt þrep járn- st'gans og hélt sér þar dauðahaldi. — Þú skalt ekki horfa niður, sagði Ken. Að svo mæltu tók hann að klifra upp stigann. — Ken, hrópaði Cathy skelfingu lostin. Hann leit niður til hennar: — Hvað er að? Komdu upp! — Ertu vitlaus? Mig dauðsvim- ar. — Erfiðleikarnir eru til þess að sigrast á þeim. Komdu nú, Cathv! Hann teygði höndina niður í átt- ina til hennar. — Upp með þig, upp á efsta tindinn! — En, guð á himnum, góði Ken — Himnum, það var rétta orðið. Við förum alla leið til himna, upp í sjöunda himin. Komdu! Hún þorði varla að llta upp til hans. Stiginn riðaði allur, þegar hann steig í þrepin. En loks tók hún samt að fikra sig upp eftir honum, hægt og hægt NÆSTI DAGUR Á EFTIR var mánu- dagur. Klukkan tíu um morgun- inn, hringdi Ken og sagðist hafa þefað uppi atvinnu, sem Cathy átti eindregið að sækja um. Þetta var einmitt starf við hennar hæfi, á auglýsingastofu. Hún átti að taka leigubil til Alcoa Building, snúa sér til afgreiðslunnar á fjórtándu hæð og spyrja eftir Meg Stone. Hann sagði, að Meg þessi væri góð vinkona sín. Hann hafði hringt til hennar í gærkveldi og sagt henni frá Cathy. Meg taldi ekki fráleitt, að hún gæti fengið vinnu hjá fyrir- tækinu, sem hún vann hjá sjálf og sagði honum að senda Cathy til sín fyrir klukkan tólf. Cathy fann til hlýju og þakklætis í garð Ken. Hann er í einu orði sagt töfrandi, hugsaði hún með sér þar sem hún sat í leigubíl á leið til Alcoa Building. Hann hafði eitthvað við sig, sem minnti á Malcolm. En hann var miklu staðfastari. Stað- fastur? Hún hló með sjálfri sér, þegar henni varð hugsað til snjó- boltans og hvernig hann hafði feng- ið hana til að klifra upp á þakið á skýjakljúfinum. Nei, staðfastur var ekki rétta orðið. En hann var skemmtilegur, mjög skemmtilegur. Það var einkennilegt, hve minn- ingin um Malcolm hafði fölnað. En hún hafði aldrei verið verulega hrif- in af Malcolm, — ekki jafn hrifin og hún gæti orðið af Ken I afgreiðslunni spurði hún um Meg Stone og var boðið að fá sér sæti og bíða. Hún fann til tauga- óstyrks. Hún var orðin rök á hönd- unum og vonaði, að hún þyrfti ekki að heilsa neinum með handabandi. Meg Stone reyndist líka vera ó- venjulega falleg og smekklega klædd, þegar hún birtist loks. Hún var klædd í maxikjól með leður- belti, sem var prýtt málmskrauti. Cathy fannst hún vera eins og herfa útlits í örstuttri, aðskorinni kápunni sinni. En Meg brosti vingjarnlega til hennar. — Eruð þér Cathy Palmer? Ken hringdi til mín í gær og sagði mér frá yður. Ég skil nú hvers vegna hann gerði það, bætti hún við og virti Cathy fyrir sér frá toppi til táar í einni svipan. Cathy roðnaði: — Það var mjög vingjarnlegt af yður að taka á móti mér, sagði hún. — O, ekkert að þakka. Komið, ég skal kynna yður fyrir J.J. John- son. Hann er deiIdarstjóri. Þér eruð vonandi með sýnishorn með yður? Gott, þér skuluð sýna honum þau og síðan sjáum við hvað setur. Meg Stone geðjaðist vel að Cathy allt frá fyrstu stundu. Hún hafði þekkt Ken frá því að hann kom til San Francisco. í fyrstu höfðu þau farið oft út saman, en sambandið milli þeirra hafði aldrei orðið veru- lega náið. Þó nóg til þess, að Ken reyndi til við hana. Kvöld nokkurt í herberginu hans hafði honum næstum tekizt að sigra hana. En Meg hafði ekki látið að vilja hans; hvers vegna vissi hún ekki. Henni leizt vel á Ken, en það var eitthvað 42 VIKAN 42. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.