Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 30
EIDHHS VIKUNNAR
UMSJÓN: DRÖFN H. FARESTVEIT, HÚSMÆÐRAKENNARI Franskbrauð
V2 Itr. vatn
50 gr. pressuger
1 msk. salt
2 msk. olía
800 gr. (10 dl.) hveiti
Gerið leyst upp [ volgu vatninu.
Blandið í salti, olíu og ca. V2 m|öls-
ins. Deigið hnoðað. Bætið þv( sem
eftir er smátt og smátt um leið og
hnoðað er. Deigið hnoðað slétt og
sprungulaust. Látið hefast í ca. 30
mínútur. Takið frá dálítinn bita af
deiginu og skiptið hinu ! 4 álíka
stóra bita. Hnoðið hvert brauð fyrir
sig og setjið á smurða plötu. Rúll-
ið litla deigbitanum sem tekinn var
frá í 8 mjóar lengjur og snúið 2
og 2 saman og setjið ofan á hvert
brauð. Látið brauðið hefast um
helming. Penslið með sundursleg-
inni eggjahvítu og bakið við 220°
í ca. 25 mínútur. (4 brauð).
8RAUDID BÖKIINIIIIB SJÁLFAB
Hveitikrans með
eplamauki
V2 Itr. mjólk
2 dl. eplamauk
V2 tsk. salt
2 dl. sykur
40 gr. pressuger
ca. 800 gr. hveiti
FYLLING:
50 gr. smjörlíki
4 msk. sykur
1 msk. kanell
Blandið volgri mjólk með epla-
maukinu, salti, sykri og pressugeri.
Mjölið hnoðað smátt og smátt upp
í og látið hefast um helming. Hnoð-
að síðan slétt og sprungulaust og
skiptið því í tvennt. Fletjið hvorn
hluta fyrir sig f aflanga köku.
Smjörlíkið breytt á deigið, kanel og
sykri blandað saman, og stráð yfir.
Rúllið upp og mótið krans og setjið
á smurða plötu. Klippið í kransinn
og takið aðeins í flipana á víxl Lát-
ið hefast. Penslið með eggi og strá-
ið perlusykri yfir. Bakið við 200°
í ca 25 mínútur.
30 VIKAN 42 tw.