Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 23
them! eins og Ameríkanar segja.
Þú skalt ekki koma af stað bylt-
ingu, Willie, þú skalt heldur
stunda hagkvæm viðskipti!
Hann varð eiginlega undrandi
á því hve auðvelt það var. Hann
vann án þess að svíkja lit. For-
sjónin hafði bent honum á hvar
hentugast var að setja spilin.
Hann var hikandi fyrst í stað,
en svo kom þetta allt af. sjálfu
sér.
Sama var að segja um kvenna-
málin. Hann gekk að þeim jafn
kaldur og rólegur og án þess að
hika, enda fékk hann alltaf vilja
sínum framgengt. Það var reynd-
ar þess vegna sem hann leigði
þessa íbúð fyrir fimm árum.
Þegar leigusamningurinn var
undirritaður, þá fékk hann arki-
tekt frá Danmörku, til að inn-
rétta íbúðina og sjá um öll inn-
kaup því viðvíkjandi.
Þetta var íbúð, sem
minningar hafði að geyma
engar
Þann-
:
;
ig vildi hann hafa það, enda hélt
hann sig mest á þessum stað,
hann notaði ‘einbýlishúsið á
Warmdö aðallega til að halda
matarveizlur og önnur sam-
kvæmi fyrir viðskiptavini sína.
Willie Samson hafði náð tak-
marki sínu, en hann var ekki
viss um að það færði honum
nokkra sanna gleði. Hann var
orðinn svo auðugur, að raunar
þurfti hann ekki að vinna neitt,
hann gat auðveldlega lifað á
rentum eigna sinna. Hann hafði
líka duglegt fólk í þjónustu sinni
og þurfti ekki að hafa daglegt
eftirlit með ferðaskrifstofum sín-
um, þetta gekk allt af sjálfu sér.
Wil'ie Samson hafði ekki leng-
ur áhuga á frama. Auðvitað sló
hann ekki hendinni, á móti hag-
kvæmum viðskiptum, ef þau
komu upp í hendur hans, og enn-
þá fann hann hvar von var um
gróða, en nú vildi hann frekar
vera áhorfandi. Þetta hafði það í
för með sér að hann þurfti ekki
að hitta fólk og nú var hann
farinn að verða nokkuð einmana.
.
Það var auðvitað allt annað
með kvennamálin, en aðstaða
hans til þeirra var líka breytt.
Svo var það Katja. Hann hitti
hana rétt fyrir utan dyrnar hjá
sér eitt kvöldið, þegar hann kom
heim. Hún kom þjótandi upp
stigann, dökkhærð, grannvaxin,
með stór og hræðsluleg augu.
Hann hafði sagt henni að eng-
inn byggi á efri hæðunum og
hún sagðist hafa farið húsavillt,
reyndi að skýra það fyrir hon
um á mjög lélegri sænsku. Það
tók hann nokkrar mínútur að fá
hana inn fyrir dyrnar og róa
hana. Það varð upphafið.
Hún var allt öðruvísi en aðr-
ar stúlkur, sem hann hafði hitt
fram að þessu, og hún hreif hann
svo að hann bað hana um að
hitta sig aftur.
Hún var eins og hræddur fugl
og ennþá hafði honum ekki tek-
izt að komast að eftirnafni henn-
ar eða hvar hún byggi. Það var
hún sem ákvað stefnumótin og
þau voru alltaf seint á kvöldin.
Fyrstu sex mánuðina kom hún
mjög oft og hann fann að hann
var ekki haldinn sinni venjulegu
yfirgangssemi. Hún var svo ein-
læg og full trúnaðartrausts að
honum var ekki ljóst hvað var
að ske með hann, hann var orð-
inn ástfanginn af henni.
Hann varð sjálfur undrandi,
þegar honum varð þetta ljóst.
Hann hafði á unga aldri afskrif-
að hugtök eins og ástfanginn“ og
„hrifinn", fannst það ímyndunar-
veiki, og nú, þegar honum var
þetta ljóst, varð hann ráðþrota.
Það hafði heldur ekki nein áhrif
á tilfinningar hans, þótt hann
kæmist að því að hún var hálf-
gerð götustelpa.
En í vetur hvarf hún. Hún
hætti að koma. Hann reyndi að
hafa úpp á henni en það bar eng-
an árangur. Hann reyndi að líta
á þetta raunsæjum augum, telja
sjálfum sér trú um að þessi svo-
kallaða ást væri sjúkdómur, eins
og kvef, sem batnaði með tíman-
um. En í þetta sinn bar það eng-
an árangur. Hann gat ekki
gleymt henni.
Hann leit á sjálfan sig í spegli.
Hvað skyldi fólk sem þekkti
hann í viðskiptaheiminum segja,
ef það vissi að Willie Samson,
sem svo oft hafði töfrað glæsi-
legar konur, sæti nú fastur í neti
lítillar götustúlku? Og að það
hafi verið hún seni sveik hann.
Það yrðu ábyggilega margir til
að hlæja illgirnislega.
Skyndilega greip hann svo
fast í brúnina á barborðinu að
hnúar hans hvítnuðu og í nokk-
ur augnablik starði hann sem
töfraður í spegil, áður en hann
gat snúið sér við.
Hún stóð í svefnherbergisdyr-
unum og brosti þessu feimnis-
lega brosi, sem hann mundi svo
vel eftir.
Katja, Katja! Hvenær
komstu og hvernig komstu inn?
— Manstu ekki að þú fékkst
mér lykla? Þegar ég heyrði að
það var einhver hjá þér. þá faldi
ég mig hér í svefnherberginu. Þú
ert vonandi einn núna?
Hún talaði töluvert betur
sænskuna núna.
— Hvar hefur þú verið í allt
sumar?
Hún brosti og lagði fingur á
munninn. Það var gamla merkið
um að hún vildi ekki svara
spurningum hans.
— En hvers vegna fórstu frá
mér? Og hvers vegna kemurðu
nú?
Hún varð alvarleg á svipinn.
— 5£g hef vandamál, sem ég get
ekki leyst sjálf. Þú gætir kann-
ske hjálpað mér. Ég þarfnast
þess.
Framhald á bls. 46