Vikan - 15.10.1970, Side 6
Atbugiðf
HEIMILISTÆKI:
Frystikistur, 270, 350 og 550 I.
Frystiskápar, 160 og 400 I.
Kæli- og frystiskápar 220 I.
frystir, 170 I. Kælir.
Kæliskápar 150, 240 og 400 I.
Gaskæliskápar í sumarbústaði.
Eldavélaviftur.
Eldavélar, þrjár mismunandi gerðir.
Rafmagns- og gashellur.
Olíuofnar, þrjár stærðir.
Gufubaðsofnar.
Einnig glæsilegt úrval af lömpum
og gjafavörum.
RAFTÆKJAVERZLUN
H. Q. (Judjónssoo
Stigahlíð 45, Suðurveri, sími 37637.
Skelegg
skötuhjú
Kæri Póstur!
Það hefur talsvert verið rifizt
um það að undanförnu, hvort
glæpamyndir í sjónvarpinu séu
hættulegar fyrir börnin eða ekki.
Ég hef fylgzt með þessum um-
ræðum og fæ ekki skilið hvern-
ig nokkur maður getur haldið
því fram, að það sé „skemmti-
legt“ og „gagnlegt" að horfa á
svæsnar glæpamyndir, þar sem
morð og annar óhugnaður ræður
ríkjum. Mér finnst það liggja
svo í hlutarins eðli, að slíkur
ófögnuður hafi slæm áhrif á
næmgeðja börn (og fullorðna
reyndar líka), að ekki þurfi að
eyða mörgum orðum að því. É'g
skil ekkert i sjónvarpinu okkar
að vanda ekki betur val sitt á
framhaldsþáttum og kvikmynd-
um. Nýjasta ,,snilldin“ hjá þeim
er þáttúr, sem heitir „Skelegg
skötuhjú". Þessi þáttur er ein-
hver sá furðulegasti og lélegasti
samsetningur, sem ég hef nokk-
urn tíma séð. Það vantar ekki,
að þarna eru alls konar ólíkleg-
ustu afbrigði af geðveikum
morðingjum og misyndismönn-
um. En þó er svo að sjá, að
minnsta kosti öðru hverju, að
þetta eigi allt saman að vera
tómt grin. Ja, þvílíkt grín! Ég
skora eindregið á sjónvarpið að
hætta nú þegar við þennan
myndaflokk, jafnvel þó búið sé
að kaupa eitthvað ákveðið magn
af bonum. Það er nóg af óhugn-
aðinum fyrir í sjónvarpinu, þótt
ekki sé þessari viðurstyggilegu
vitleysu bætt ofan á.
Með þökk fyrir birtinguna.
H.
Þett-> voru sveimér hressilegar
skamrn.r oc ekki á hver.ium degi,
sem Póstinum berst svo skorin-
ort Uréf. við erum sammála
h-éfrjtara í meginatriðum, þótt
ef tit viU sé of diúnt tekið í ár-
inni hjá honum. Umræddir þætt-
ir ern alveg misheponaðir og
mættu missa sín — Póstinum að
meinalausu.
Öqutæqi oí? ös:umenn
Minn elskulegi Póstur!
Ás+arþakkir fyrir birtingu á
seinasta bréfi mínu. En nú þarf
ég að koma einni kvörtun á
framfæri.
»
Mér finnst efni íslenzka ríkis-
útvarpsins gott að einu undan-
skildu: Umferðarþátturinn um
kl. 13. Þessir menn, sem eru allt-
af að vara okkur við hættum í
sambandi við ökutækin, geta al-
drei sagt annað en „ögutægi og
ögumenn". Þessi latmælgi fer
svo ferlega í taugarnar á mér.
Nú kann sumum að virðast þetta
engu máli skipta, hvort sagt er
ökutæki eða „ögutægi". En þeg-
ar maður þarf að hlusta á sömu
rulluna um „ögutægi og ögu-
menn“ dag eftir dag, fer maður
alveg úr jafnvægi, að minnsta
kosti ég.
Ég grátbið þá, sem flytja um-
ferðarþáttinn í útvarpinu að
reyna, þó ekki væri nema reyna,
að segja ökutæki og ökumenn.
Góði Póstur! Ég þakka fyrir-
fram fyrir birtinguna. Hafðu
það gott.
Sigga frá Saurabæli.
Við komum þessari umkvörtun
hér með á framfæri. Það er
hverju orði sannara, að Iatmælgi
sumra manna hér fyrir sunnan
er ósköp hvimleið. Björn Sigfús-
son, háskólabókavörður, gerði
eitt sinn gys að þessu á skemmti-
legan hátt í sjálfu útvarpinu.
Hann sagði, að það væri dapur-
legt að hlusta á menn, sem hefðu
mikið á milli handanna, segjast
hafa „migið“ á miili handanna!
Úti á nóttunni
Kæri Póstur!
Ég hef áður skrifað þér og ég
fór eftir svari þínu og sé ekki
eftir því. Nú langar mig til að
biðja þig að hjálpa mér aftur.
Ég er alveg ofsalega hrifin af
strák og hann er hrifinn af mér.
Við erum búin að vera saman í
eina viku og þessa viku hef ég
ekki komið heim fyrr en seint
á nóttunni.
Mamma veit með hvaða strák
ég er. Henni er ekki beinlínis
illa við hann, en samt ekkert vel
við hann heldur. Hún vill til
dæmis ekki, að ég sé með hon-
um. Eg hef ekki farið eftir því,
sem hún hefur sagt, og nú er
hún búin að setja mig í straff.
Ég veit það sjálf, að ég hef
breytzt, síðan ég kynntist þess-
um strák, og mömmu er illa við
það.
Nú, kæri Póstur, langar mig
að biðja þig að hjálpa mér. —■
Hvað á ég að gera? Á ég að
bjóða honum og fleiri vinum
heim, svo að ég þurfi ekki að
vera eins lengi úti á kvöldin?
Eða á ég að halda áfram að vera
næturgestur í öðrum húsum?
Vonandi fæ ég svar fljótt.
Fyrirfram þökk.
Ein í vandræðum.
(j VIKAN 42- tbi.