Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 7
Þú skalt tvímælalaust bjóða
honum og vinum þínum heim,
þ. e. a. s. ef mamma þín leyfir
þér það. Með því móti gæti
mamma þín kynnzt stráknum, og
ef til vill líkar henni betur við
hann þá. Móður þinni mun
áreiðanlega líka það miklu bet-
ur að hafa ykkur heima, svo að
hún geti sjálf fylgzt með hvern-
ig þið skemmtið ykkur. Það er
allt annað en gaman fyrir móð-
ur að sitja ein heima og bíða
fram á rauðanótt eftir að dóttir
hennar komi heim.
Friður á jörð
Virðulegi Póstur!
Mér leikur mikil forvitni á að
vita, hverjir það eru sem tala í
laginu „Friður á jörð“ með
Samsteypunni. f hvaða röð tala
þeir. Er til dæmis Pétur Kristj-
ánsson fyrstur?
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
E.
Nei, það er Sveinn Guðjónsson,
sem fyrstur tekur til máls. Næst-
ur er Pétur Kristjánsson og síð-
astur er Birgir Hrafnsson.
Satt og logið
Kæri Póstur!
Ég hef lesið nógu mikið í sál-
fræði til að vita, að á ákveðnu
aldursskeiði taka börn upp á því
að skrökva. É'g man ekki alveg
á hvaða aldri þetta er, en mig
minnir að það sé þegar börn eru
innan tíu ára aldurs. Er það ekki
rétt hjá mér? En hvað er hægt
að gera við sextán ára ungling,
sem ekki getur með neinu móti
vitað hvenær hann segir satt og
hvenær hann lýgur? Ég hélt
fyrst, að umræddur unglingur
lygi til þess að ekki kæmist upp
um eitthvert miður sæmilegt at-
hæfi, sem hann hefði í frammi.
En nú hef ég komizt að raun
um, að svo er ekki. Hann hefur
alls ekkert óhreint mjöl í poka-
horninu, blessaður, ef svo má að
orði komast. Hann virðist hins
vegar alls ekki gera sér grein
fyrir því, hvað er satt og hvað
ekki. Þetta getur skiljanlega
komið sér mjög illa bæði fyrir
hann og aðstandendur hans.
Kæri Póstur, hvað mundir þú
ráðleggja mér að gera i þessu
óvenjulega vandamáli?
Með fyrirfram þakklæti.
Sv.H.J.
Það er rétt, að börn taka upp á
því að skrökva, þegar þau eru
fimm, sex og sjö ára eða jafnvel
yngri og er það talið eðlilegt. Þá
gera þau engan greinarmun á
staðreyndum og hugarflugi sínu.
Það er nokkuð óvenjulegt, ef
þetta eldist ekki af börnum, og
umræddur unglingur er vissu-
lega orðinn of gamall til að vera
haldinn slíkum ágalla. Það væri
líklega bezta ráðið að leita til
sálfræðings. Vel er hugsanlegt,
að þessi árátta unglingsins eigi
sér einhverjar sálrænar orsakir,
sem hægt sé að kippa í lag.
Palladómarnir
Kæri Póstur!
Mig langar til að færa Vik-
unni og Lúpusi þakkir fyrir
palladómana, sem birzt hafa að
undanförnu. Þeir eru reyndar
misjafnir eftir því hvaða þing-
maður á í hlut, og er ekki við
öðru að búast. En nokkrir þeirra
hafa verið mjög góðir, eins og
til dæmis dómarnir um Gylfa Þ.
Gíslason og Jóhann Hafstein,
enda þar um að ræða menn, sem
betur eru þekktir og meira í
sviðsljósinu en aðrir þingmenn.
Lúpus er reyndar stundum ær-
ið berorður, svo að sumum þyk-
ir víst nóg um, en mér finnst
þetta einmitt vera kosturinn við
hann. Menn sem hafa gert
stjórnmál að ævistarfi sínu
verða að sætta sig við, að um þá
sé rætt á opinskáan hátt. Og
þótt einhverjum þyki lítið til
þeirra koma, er svo sem ekki
um neinn endanlegan dóm að
ræða. Eg hef verið ósammála
Lúpusi hvað nokkra þingmenn
snertir. Sérstaklega þótti mér
hann hnýta ómaklega i Gils
Guðmundsson og Jón Árnason.
En hvað um það: Palladóm-
arnir eru skemmtileg lesning og
eitt af því fáa efni í Vikunni,
sem ekki er ætlað táningum.
Að endingu kem ég að aðal-
efni þessa bréfkorns míns: Mér
er sagt að Lúpus hafi áður skrif-
að palladóma, sem hafi fyrst
birzt í blaðinu Suðurland og síð-
an verið gefnir út í bók sérprent-
aðir. Getur þú sagt mér, hvað sú
bók heitir?
Með þökk fyrir hjálpina.
Akranesingur.
Palladómar Lúpusar hafa vakið
mikla athygli, sérstaklega marg-
ir þeirra, sem komið hafa núna
undanfarnar vikur. Þess var get-
ið, þegar palladómarnir hófust,
að Lúpus hefði skrifað um þing-
menn 1956, en flestir þeirra eru
horfnir af því þingi, sem nú sit-
ur. Dómarnir voru gefnir út sér-
prentaðir undir nafninu „Sjá
þann hinn mikla flokk“. Líklega
er sú bók löngu uppseld, en
mætti ef til vill fá hana hjá fom-
bóksölum. — Við mótmælum þvi
eindregið, að palladómarnir séu
eina efni Vikunnar, sem ekki sé
ætlað táningum.
r-IGNIS-n
- FRYSTIKISTUR
IGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
innkaup og sparar yður snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti í loki — hlifðarkantar á hornum —
Ijós i loki — færanlegur á hjólum — Ijósaborð með
rofa fyrir djúpfrystingu, kuldastilli og 3 leiðbeiningar-
Ijósum, „gult djúpfrysting" — „grænt venjuleg frysting"
— „rautt ot lág frysting". —
\
Stærðir Staðgr.verð Afborg.verð
145 Itr. kr. 16.138,— kr. 17.555,— { út + 5 mán.
190 Itr. kr. 19.938.— kr. 21.530,— $ út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24.900,— kr. 26.934,— -j- út + 6 mán.
385 Itr kr. 29.427,— kr 31800— -j út + 6 mán.
RAFTORG
VIÐ AUSTURVÖLL
SÍMI 26660
Þér sparið með áskrift
VIKAN
SKIPH0LTI 33 - SlMI 35320
«2. ,M. VIKAN 7