Vikan - 15.10.1970, Síða 18
/
Það er sagt um blaðamenn að þeir viti
lítið um margt, en þegar blaðamaður hitt-
ir mann sem veit einhver lifandis ósköp um
ákveðið efni, þá er ekki laust við að hann
finni til öfundar og langi til að vera með í
því, óski þess að hann hefði heldur snúið sér
að slíku lífsstarfi í upphafi.
Þannig er það að hitta Georg Klein, pró-
fessor í æxlalíffræði við Karolinsku stofn-
unina í Stokkhólmi. Þegar hann segir frá
starfi sínu með ákafa, gneista greindarleg
augun.
Georg Klein er heimsfrægur krabbameins-
sérfræðingur. Hann kom til Svíþjóðar frá
Ungverjalandi árið 1947 með Evu, konunni
sinni, sem aðstoðarprófessor við sömu stofn-
un; þau hafa alltaf fylgzt að. Þau voru mjög
ung, þegar þau tóku kandidatspróf í læknis-
fræði, og eftir að hann hafði lokið dósents-
þjónustu, fékk hann prófessorsembætti, með
sínu eigin starfsliði og tilboð um að halda
rannsóknum sínum áfram í Svíþjóð, en hann
hafði áður afþakkað mjög gott tilboð um
slika stöðu frá Bandaríkjunum. Síðan hef-
ur verið komið upp sérstakri byggingu fyrir
rannsóknastarfsemi hans með milljónastyrk
frá krabbameinsfélagi sænska ríkisins.
í þessu þriggja hæða húsi hefur hann
hundrað manna starfslið og oft koma er-
lendir vísindamenn til að vinna að rann-
sóknum sínum á þessum stað.
Á neðstu hæð eru hýstar um 50.000 mýs,
sem notaðar eru til rannsókna og meðferð-
ar, því eins og gefur að skilja, er ekki hægt
að gera tilraunir á lifandi fólki.
Það er almennt talað um krabbamein sem
einn sjúkdóm og að rannsóknir gangi út á
það að finna eitthvert allsherjar lyf, sem
geti ráðið bót á honum, — árið 1980 — 1985
1990, það hefur jafnvel verið spáð í
hvenær það komi á markaðinn. En þetta er
nú eitthvað annað, segir Georg Klein.
Það eru margir sjúkdómar og mjög ólíkir,
sem heyra undir krabbameinið, og það eina
sem þeir eiga sameiginlegt er að krabba-
meinsfrumur hlýða ekki þeim lögmálum,
sem venjulegar frumur eiga að gera. Þær
skipta sér örar og verða að æxlum. En það
er hægt að óhlýðnast lögmálum á margan
hátt. Georg Klein líkir þessu við byltingar
og geðsjúkdóma — þar er líka um truflun í
kerfinu að ræða og líka með mismunandi
móti. En þar sem ástæðurnar eru með mis-
munandi móti, verða lyfin og aðgerðirnar,
sem vonazt er eftir, að vera með mismun-
andi móti.
Vissar frumur, til dæmis þarmafrumur,
skiptast alla tíð. Gömlu frumurnar hverfa
einfaldlega úr líkamanum og allt er í lagi.
Ef frumuskiptingin er hægari en eðlilegt er,
þá koma sár. En ef hún er hraðari, þá
myndast æxli. Slíkt æxli getur verið góð-
18 VIKAN
42. tbl.